Innlent

Taka strætóstöðina í Mjódd í gegn eftir ofbeldisatvik

Birgir Olgeirsson skrifar
Bæta á öryggi farþega í Mjódd með nýrri lýsingu, öryggiskerfi og bættu aðgengi. Endurbætur á farþegasalnum standa yfir og eiga að klárast 5. desember.
Bæta á öryggi farþega í Mjódd með nýrri lýsingu, öryggiskerfi og bættu aðgengi. Endurbætur á farþegasalnum standa yfir og eiga að klárast 5. desember. Vísir/Vilhelm

Farþegasalurinn í Mjódd er tekinn í gegn og undirbúnar eru umfangsmiklar endurbætur á strætóstöðinni sjálfri. Skipta á öllu ofnakerfi salarins, endurnýja sætisaðstöðuna og setja upp nýja lýsingu og öryggiskerfi. Ofbeldi á svæðinu og slæmt ástand aðstöðunnar eru meðal ástæðna framkvæmdanna.

Vinna við farþegasalinn við Þönglabakka er þegar hafin og á að ljúka 5. desember. Framkvæmdir við stöðina utandyra gætu hafist vorið 2027, en sú tímasetning er óstaðfest.

Salurinn endurnýjaður og stöðinni breytt

Auk þess að skipta um ofnakerfið á að lagfæra rafmagn, mála allan farþegasalinn og gluggana og koma fyrir nýjum sætum. Skjáir munu sýna rauntímaupplýsingar um ferðir Strætó og vegglistaverk eftir Stefán Óla Baldursson prýða tvo veggi salarins.

Guðný María Jóhannsdóttir, formaður umhverfis- og skipulagsráðs, segir umgengni á svæðinu hafa verið ábótavant og ástand aðstöðunnar kallað á framkvæmdir. Rafvirki sé þegar að störfum í salnum og málningarvinna í gangi.

Úr kynningu á framkvæmdunum þar sem farið er yfir núverandi stöðu tengdri almenningssamsgöngum. Reykjavík

Við strætóstöðina sjálfa á að bæta gönguþveranir og tryggja þrepalaust innstig í vagnana. Þar á jafnframt að bæta lýsingu, skjól og sætisaðstöðu og gróðursetja tré og útbúa gróðurbeð.

Samkvæmt kynningu borgarinnar á framkvæmdunum er hönnun stöðvarinnar á lokametrunum. Kostnaðaráætlun á að liggja fyrir í nóvember og mögulegt útboð er fyrirhugað í febrúar. Ekki kemur fram hvenær útiframkvæmdunum á að ljúka.

Vonast til að breytt umhverfi hafi áhrif á hegðun

Þegar hefur verið ráðist í aðgerðir til að auka öryggi. Bekkur og ruslatunna voru fjarlægð að beiðni lögreglu og gróður snyrtur til að bæta sýn eftirlitsmyndavéla. Lýsing á gönguleið að undirgöngum hefur einnig verið bætt.

Fegra á farþegasalinn með vegglistaverki og gera sætisaðstöðuna meira aðlaðandi. Reykjavík

Spurð um ofbeldið sem vísað er til í kynningunni segir Guðný að snyrtilegra umhverfi geti haft áhrif á hegðun þeirra sem fari um svæðið.

„Það er bara þannig að þegar maður er ekki í fögru umhverfi að þá kannski dregur það fram einhverja ákveðna hegðun þannig að það var bara ákveðið að ráðast í þessar framkvæmdir til þess að gera þessa stoppistöð snyrtilegri og það var ekkert vanþörf á því.“

Endurbæta á alla sætisaðstöðu í farþegasalnum með húsgögnum sem eru fest við gólfið og þurfa lítið viðhald.reykjavík

Hún vonast jafnframt til þess að breytingarnar verði til þess að fleiri nýti stöðina.

„Þannig að með þessu erum við að vonast til þess að fólk beri meiri virðingu fyrir þessu umhverfi sem að þarna er.“

Kona varð fyrir árás sex ungmenna

Vísir hefur áður fjallað um ofbeldi og öryggisvanda í Mjódd. Þann 11. maí var greint frá árás á konu á fimmtugsaldri við biðskýli í Mjódd. Sex ungmenni á aldrinum fjórtán til sextán ára voru þá til rannsóknar vegna árásarinnar.

Lögregla hafði undir höndum myndbönd sem sýndu ungmennin veitast að konunni með höggum og spörkum og rífa í hár hennar. Konan leitaði sér læknishjálpar vegna áverka á andliti og líkama.

Í framhaldsfrétt tveimur dögum síðar sagði Sigrún Kristín Jónasdóttir lögreglufulltrúi myndböndin sýna talsverða heift. Barnavernd hafði verið kölluð til og tveir úr hópnum sendir á Stuðla vegna þess að þeir voru undir áhrifum vímuefna. Hluti hópsins hafði áður komið við sögu lögreglu vegna óspekta í Mjódd.

Vörðu fjórum milljónum á mánuði í gæslu

Í júlí ræddi Vísir við Pétur Karlsson, trúnaðarmann hjá Strætó, um öryggi vagnstjóra. Hann sagði ógnvænlega hegðun daglegt brauð í starfinu, þótt líkamlegar árásir væru ekki daglegur viðburður.

„Fólk telur sig ekki nógu öruggt í þessu,“ sagði Pétur, sem taldi þörf á öryggisgæslu í vögnum eða á stöðvum á borð við Mjódd.

Í sömu frétt kom fram að Strætó hefði áður varið fjórum milljónum króna á mánuði í öryggisgæslu í Mjódd, en gæslunni hefði verið hætt í júní 2025.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×