Hafandi áratugareynslu af heimsóknum í Fjölskyldu- og húsdýragarðinn vegna illa skipulagðrar dreifingar barneigna hef ég fylgst með þessum frábæra garði drabbast niður um langt skeið.
Leiktækin hafa oft virst illa farin eða jafnvel ekki í rekstri. Rými hafa staðið auð, reitir þar sem áður var líf og fjör hafa farið í órækt og víða um garðinn má sjá merki þess að erfitt hefur verið að halda starfseminni við.
Fjölskyldu- og húsdýragarðurinn er einstakur. Þar hafa kynslóðir barna kynnst íslenskum húsdýrum, leikið sér og átt góðar stundir með fjölskyldum sínum. Starfsfólk garðsins hefur unnið mikilvægt starf við að halda þessu gangandi en átt erfitt með að byggja upp góða upplifun þegar tæki bila, viðhald dregst og fjárfestingar ganga ekki eftir. Starfsfólk er sett í aðstæður sem engum eru hollar.
Þess vegna finnst mér spennandi að lesa um að borgarstjórnarmeirihlutinn hyggist kanna hvort einkaaðilar geti komið að rekstri og uppbyggingu garðsins. Það eru fjölmargar leiðir til að reka svona starfsemi og engin sérstök ástæða til að ætla að núverandi fyrirkomulag sé það eina rétta.
Það er ekki hægt að halda áfram á sömu leið
Samkvæmt samantekt Friðjóns R. Friðjónssonar varaborgarfulltrúa hafa bein rekstrarframlög Reykjavíkurborgar til garðsins á síðustu tíu árum numið rúmum 3,6 milljörðum króna á núvirði. Á sama tíma má lesa í uppgjörum að rekstur hafi farið 24 milljónum króna fram úr fjárheimildum og tekjur hafi verið 22 milljónum undir áætlun. Þar kemur jafnframt fram að stór og vinsæl leiktæki hafi bilað í byrjun sumars og haft áhrif á bæði kostnað og aðsókn. Þetta er gömul saga og ný. Viðhaldsþörfin er mikil, fjárfestinga er þörf og ástandið hefur áhrif á árangur.
Á tímum þegar ferðaþjónusta leikur lykilhlutverk í efnahag borgarinnar voru erlendir ferðamenn aðeins ríflega 2% gesta garðsins árið 2024. Við hljótum að geta búið svo um hnútana að það sé spennandi fyrir ferðamenn að njóta sömu upplifunar og heimamenn elska.
Í kynningu stjórnenda garðsins fyrir menningar- og íþróttaráði í apríl 2025 var ástandinu lýst þannig að húsnæði væri orðið lélegt, endurnýja þyrfti tæki og leiksvæði og skortur væri á aðstöðu fyrir gesti, dýr og starfsfólk. Ekkert af þessu kemur gesti á óvart. Meðal annars er kallað eftir nýju húsnæði fyrir dýr, endurnýjun leiktækja, viðgerðum á girðingum, stígum og hellulögnum, betri salernisaðstöðu og yfirbyggðum svæðum fyrir gesti.
Þrátt fyrir þessa miklu viðhaldsþörf fær garðurinn um 200 þúsund gesti árlega. Pælum í því hvernig aðsóknin gæti orðið ef þetta væri allt tipp topp.
Mér sýnist borgarstjórnin vera farin að efast um að núverandi rekstrarform sé það besta sem völ er á. En þá þarf líka að spyrja hvort við séum sammála um hvaða árangri við viljum ná. Á lokaglæru kynningar stjórnenda garðsins er einmitt spurt: „Hvert ber að stefna til lengri tíma?“ Það er ágætis spurning sem þarf að svara áður en við ákveðum hvernig best sé að reka garðinn.
Gerum betur
Garðurinn getur orðið meira en bara staður þar sem gestir koma, borga sig inn og fara heim. Hann getur orðið upplifun sem hægt er að þróa og bæta ár frá ári. Fjölskyldu- og húsdýragarðurinn hefur frábæra sögu, er á frábærum stað og hefur alla burði til að verða enn mikilvægari hluti af afþreyingar- og fræðsluframboði borgarinnar.
Ég trúi ekki öðru en að með auknum slagkrafti frumkvöðla og fólks sem er vant upplifunarrekstri megi auka kraft garðsins verulega.
Tækifærin eru ekki sérstaklega flókin. Hugsum okkur að þarna væri áhugaverður veitingastaður eða kaffihús sem væri opið út að Laugardalnum og þjónaði líka fólki sem væri ekki að heimsækja garðinn. Að nýir rekstraraðilar sæju tækifæri í að byggja upp afþreyingu, skipuleggja viðburði, þróa árstíðabundna dagskrá og skapa ástæður fyrir fjölskyldur til að koma oftar. Það eru líka tækifæri í verðlagningu. Víða í afþreyingarrekstri er unnið með sveigjanlega verðlagningu eftir eftirspurn. Þar gætu verið ókannaðar lendur, um leið og tryggt væri að fjölskyldur hefðu áfram gott aðgengi að garðinum.
Fyrirtæki gætu líka tekið þátt í uppbyggingu afmarkaðra svæða, til dæmis með því að fjármagna leiksvæði eða fræðsluaðstöðu, líkt og gert hefur verið víða á Norðurlöndum.
Á tímum þegar ferðaþjónusta leikur lykilhlutverk í efnahag borgarinnar voru erlendir ferðamenn aðeins ríflega 2% gesta garðsins árið 2024. Við hljótum að geta búið svo um hnútana að það sé spennandi fyrir ferðamenn að njóta sömu upplifunar og heimamenn elska. Alveg eins og við segjum túristanum að kíkja í sund eins og heimamaður ætti að vera hægt að sannfæra hann um að kíkja í garðinn sem heimamenn sækja líka. Það er að minnsta kosti tilefni til að kanna hvort þarna leynist vannýtt tækifæri.
Til þess þarf að hugsa um reksturinn sem heild. Ekki bara hvernig við látum núverandi fjárheimildir duga heldur hvernig við getum skapað meiri verðmæti fyrir gesti og samfélagið.
Þurfum að vita hvað við viljum
Borgin þarf að ákveða hvaða þjónustu hún vill tryggja, hvaða gæðakröfur hún gerir og hvaða árangri hún vill ná. Síðan má skoða hverjir eru best til þess fallnir að skila honum.
Kannski er skynsamlegast að bjóða út tiltekna rekstrarþætti. Kannski er heppilegt að fela sjálfstæðum aðila reksturinn í heild með skýrum þjónustusamningi. Eða kannski er vænlegast að byggja upp samstarf borgarinnar, fyrirtækja og annarra aðila um einstök verkefni.
Fyrirtæki gætu líka tekið þátt í uppbyggingu afmarkaðra svæða, til dæmis með því að fjármagna leiksvæði eða fræðsluaðstöðu, líkt og gert hefur verið víða á Norðurlöndum.
Ég myndi vilja sjá skýr markmið um viðhald og endurnýjun tækja, dýravelferð, gestaupplifun, aðsókn, tekjuöflun og aðgengi. Hver sem sér um reksturinn þarf að vera ábyrgur fyrir árangri og hafa bæði svigrúm og hvata til að ná honum.
Meira en að halda honum gangandi
Markmiðið hlýtur að minnsta kosti að vera að Fjölskyldu- og húsdýragarðurinn verði frábær staður fyrir börn og fjölskyldur, með góðri aðstöðu fyrir dýrin, öflugri fræðslu, áhugaverðri afþreyingu og sjálfbærum rekstri sem hefur fjárhagslegt svigrúm til að þróast.
Það væri skemmtilegt að sjá garðinn verða stað sem fólk heimsækir aftur og aftur vegna þess að þar er alltaf eitthvað nýtt og spennandi að upplifa. Stað sem laðar að sér gesti vegna þess sem hann hefur upp á að bjóða en ekki bara af gömlum vana.
Það vantar umhverfi þar sem fólk hefur bæði frelsi og hvata til að byggja garðinn upp. Fjölskyldu- og húsdýragarðurinn þarf ekki að drabbast niður. Við eigum ekki að sætta okkur við að halda honum gangandi. Við eigum að búa svo um hnútana að hann verði sífellt betri og við öll stolt af honum.
Höfundur er meðeigandi hjá Deloitte.