Tuttugu ár í þjónustu samfélagsins Árni Hrannar Haraldsson skrifar 21. október 2026 06:33 Þegar við skrúfum frá heita vatninu eða kveikjum ljósin leiðum við sjaldnast hugann að því hvaðan orkan kemur. Við erum vön því að geta reitt okkur á trausta orkuinnviði í okkar daglega lífi. Í dag, 21. október, eru tuttugu ár liðin frá því að Hellisheiðarvirkjun var formlega gangsett en einmitt þaðan kemur mikið af þessari orku sem við notum daglega. Þessi tímamót eru tilefni til að velta því fyrir okkur hvað þessi stærsta jarðvarmavirkjun í Evrópu hefur gert mögulegt fyrir íslenskt samfélag og hvaða ábyrgð fylgir því að tryggja orkuna til framtíðar. Saga Hellisheiðarvirkjunar hófst löngu áður en fyrstu vélarnar voru ræstar haustið 2006. Að baki lágu rannsóknir á Hengilssvæðinu, undirbúningur og framkvæmdir þar sem jarðvísindafólk, verkfræðingar, iðnaðarfólk og fjöldi annarra lögðu saman krafta sína. Orkuveitan, móðurfélag Orku náttúrunnar, byggði starfsemi virkjunarinnar upp í áföngum. Fyrst hófst rafmagnsframleiðsla og árið 2010 var varmastöðin gangsett sem framleiddi heitt vatn fyrir stóran hluta íbúa höfuðborgarsvæðisins. Þegar ON tók til starfa árið 2014 varð rekstur virkjunarinnar hluti af starfsemi fyrirtækisins. Þessi uppbygging hefur haft víðtæk áhrif. Í dag er uppsett afl Hellisheiðarvirkjunar 303 megavött og rafmagnið nýtist heimilum og atvinnulífi um allt land. Virkjunin getur framleitt 950 l/sek af heitu vatni og eftir áramót verður framleiðslugetan komin í 1500 l/sek. Heita vatnið fer inn á hitaveitukerfi Veitna og hitar heimili, skóla og vinnustaði á höfuðborgarsvæðinu. Það heldur líka sundlaugunum okkar heitum. Þannig tengist saga virkjunarinnar sögu samfélags sem hefur vaxið og breyst á þessum tuttugu árum. Ný heimili hafa risið, atvinnustarfsemi þróast og rafbílar bæst við á götunum. Að baki þeirri þróun þarf að vera orka og geta til að afhenda hana þegar á þarf að halda. Enn meiri verðmæti úr auðlindinni Einn helsti styrkur Hellisheiðarvirkjunar felst í því að þar er bæði framleidd raforka og heitt vatn. Með því nýtum við varma jarðar betur og sköpum meiri verðmæti úr auðlindinni. Sú hugsun hefur síðan fengið víðara samhengi með uppbyggingu Jarðhitagarðs ON við virkjunina. Þar hefur orðið til samfélag fyrirtækja sem nýta raforku, varma, vatn og nálægðina við virkjunina til fjölbreyttrar starfsemi. Meðal annars eru þar ræktaðir smáþörungar og unnið að föngun koldíoxíðs úr andrúmslofti. Virkjunin hefur þannig orðið undirstaða nýsköpunar sem fáir hefðu líklega séð fyrir þegar fyrstu vélarnar voru ræstar. Áframhaldandi þróun í Jarðhitagarði felst meðal annars í því að finna fleiri leiðir til að nýta það sem þegar er til staðar. Á þessum tuttugu árum höfum við líka lært mikið um áhrif starfseminnar á umhverfi og leiðir til að draga úr þeim. Nýting jarðhita og náttúruleg losun sem fylgir vinnslu hans krefst þess að við fylgjumst stöðugt með auðlindinni og umhverfinu og bregðumst við þegar þörf er á. Þróun Carbfix-tækninnar og opnun lofthreinsistöðvarinnar Steingerðar árið 2025 eru mikilvægir áfangar á þeirri vegferð. Með föngun og bindingu koldíoxíðs og brennisteinsvetnis hefur tekist að draga verulega úr losun frá virkjuninni og með tilkomu Steingerðar urðu þau tímamót að Hellisheiðarvirkjun varð ein af fyrstu jarðvarmavirkjunum heims til að verða nær kolefnishlutlaus. Orkan í fólkinu Þegar horft er yfir tuttugu ára sögu Hellisheiðarvirkjunar stendur framlag fólksins upp úr. Þeirra sem rannsökuðu svæðið og hönnuðu og byggðu virkjunina og þeirra sem sinna henni í dag. Starfsfólk ON, verktakar og samstarfsaðilar leggja á hverjum degi fram þekkingu sína og krafta til að halda framleiðslunni gangandi, viðhalda búnaði og þróa nýjar lausnir. Mörg þessara starfa fara fram utan sjónmáls almennings en skipta sköpum fyrir það að við getum reitt okkur á rafmagnið og heita vatnið. Þessu góða fólki, sem hefur lagt sitt af mörkum í gegnum tíðina og sinnir verkefnunum í dag, ber að þakka sérstaklega á þessum tímamótum. Næstu tuttugu ár munu kalla á áframhaldandi uppbyggingu. Samfélagið vex og þörfin fyrir heitt vatn og rafmagn eykst. Við þurfum að viðhalda því sem fyrir er, rannsaka auðlindina og undirbúa næstu skref með góðum fyrirvara. Orkuinnviðir taka mörg ár í undirbúningi og uppbyggingu. Ákvarðanir dagsins í dag ráða því hvaða möguleika samfélagið hefur á morgun. Eitt af því sem gæti mótað þessa framtíð er nýting ofurheits jarðhita. Með djúpborunarverkefninu IDDP-3 á Nesjavöllum sem Orkuveitan leiðir, er unnið að því að þróa nýjar aðferðir til að nýta jarðhita við mun hærra hitastig og þrýsting en í hefðbundnum vinnsluholum. Takist það gæti sú þekking og tækni einnig opnað nýja möguleika við Hellisheiðarvirkjun og aðrar virkjanir og gert okkur kleift að vinna meiri orku úr auðlindinni. Þannig gæti næsti kafli í sögu Hellisheiðarvirkjunar meðal annars byggst á því að sækja orkuna dýpra og nýta hana enn betur. Hellisheiðarvirkjun sýnir hversu miklu framsýni, þekking og samvinna geta skilað. Í tuttugu ár hefur hún stutt við lífsgæði og verðmætasköpun á Íslandi. Okkar verkefni er að halda þeirri vinnu áfram af ábyrgð og metnaði, svo komandi kynslóðir geti notið sömu lífsgæða og reitt sig á orkuna með sama hætti og við gerum í dag. Í tilefni tímamótanna verður opið hús í Hellisheiðarvirkjun laugardaginn 24. október kl. 13-15 og eru öll velkomin að koma, fræðast um starfsemina og þiggja kaffi og köku. Höfundur er framkvæmdastjóri Orku náttúrunnar. Viltu birta grein á Vísi? Kynntu þér reglur ritstjórnar um skoðanagreinar. Senda grein Tímamót Orkumál Mest lesið Tjáningarfrelsið við Bústaðaveg Þorvaldur Víðisson Skoðun Það hefðu allir gott af því að greiða sín eigin laun Geir Kristinsson Skoðun Hagræðing Hildar á sannleikanum Kári Sigurðsson,Sonja Ýr Þorbergsdóttir Skoðun Við skorum á ríkisstjórnina að standa við fyrirheitin og tryggja framtíð Skipholts 37 Hópur listafólks Skoðun Til kall Drífa Snædal Skoðun Loftbrú og Ölfusárbrú eru mikilvægari en börn Grímur Atlason Skoðun Að taka á móti myrkrinu Þuríður Santos Stefánsdóttir Skoðun Hvernig tala ég við barnið mitt um netið? Skúli Bragi Geirdal Skoðun Reykjavíkurborg pissar í skóinn sinn – og kallar það hagræðingu Sigurður Sigurðsson Skoðun Keðjusagarstjórnmál Atli Bollason Skoðun Skoðun Skoðun Ólafur, gæsin og gulleggin Kjartan Björgvinsson skrifar Skoðun Eftirlit, útvistun og ábyrgð í velferðarþjónustu Þórhallur Guðmundsson skrifar Skoðun Það hefðu allir gott af því að greiða sín eigin laun Geir Kristinsson skrifar Skoðun Tjáningarfrelsið við Bústaðaveg Þorvaldur Víðisson skrifar Skoðun Nokkur orð um röflritun Kristján Logason skrifar Skoðun Alnetið er dautt! Lengi tóri lýðræðið! Geir Sigurður Jónsson skrifar Skoðun Til hvers ætlum við að virkja? Andrés Kristjánsson skrifar Skoðun Ríkið ákveður – sveitarfélögin borga – skólarnir framkvæma Sævar Helgason skrifar Skoðun Hagræðing Hildar á sannleikanum Kári Sigurðsson,Sonja Ýr Þorbergsdóttir skrifar Skoðun Að taka á móti myrkrinu Þuríður Santos Stefánsdóttir skrifar Skoðun Ábyrg sýn í málefnum útlendinga Eiríkur Björn Björgvinsson skrifar Skoðun Við skorum á ríkisstjórnina að standa við fyrirheitin og tryggja framtíð Skipholts 37 Hópur listafólks skrifar Skoðun Þjóðarátak í uppbyggingu hjúkrunarheimila Jónína Björk Óskarsdóttir skrifar Skoðun Krabbameinsmeðferð lokið en hvað svo? Óttinn við að endurgreinast Þorri Snæbjörnsson skrifar Skoðun Keðjusagarstjórnmál Atli Bollason skrifar Skoðun Hvað verður um vinnuna eftir uppsagnir? Ragnhildur Bjarkadóttir skrifar Skoðun Til kall Drífa Snædal skrifar Skoðun Skóli án aðgreiningar má missa sín Kristín Kolbrún Waage Kolbeinsdóttir skrifar Skoðun Reykjavíkurborg pissar í skóinn sinn – og kallar það hagræðingu Sigurður Sigurðsson skrifar Skoðun Atlaga að fátækt Kolbrún Áslaugar Baldursdóttir skrifar Skoðun Starfsfólk Reykjavíkurborgar er ekki tilraunaverkefni Brynhildur Heiðar- og Ómarsdóttir,Þorkell Heiðarsson skrifar Skoðun Loftbrú og Ölfusárbrú eru mikilvægari en börn Grímur Atlason skrifar Skoðun Hvernig tala ég við barnið mitt um netið? Skúli Bragi Geirdal skrifar Skoðun Ríkið þrengir að frelsi og samkeppni á fjölmiðlamarkaði Gísli Stefánsson skrifar Skoðun Árangursrík stjórnsýsla – Heilsa eldri borgara – nýtum það sem virkar Þorvaldur Ingi Jónsson skrifar Skoðun Öll börn eru hluti af liðinu Thelma Dögg Grétarsdóttir skrifar Skoðun Heljarhestar um veturnætur Ása Hlín Benediktsdóttir skrifar Skoðun Grafið undan faglegu starfi – Skipulagsbreytingar á starfi félagsmiðstöðva frá sjónarhorni starfsmanns Ari Orrason skrifar Skoðun Telur Samfylkingin að Mette Frederiksen sé rasisti? Elliði Vignisson skrifar Skoðun Við eigum matreiðslumenn í fremstu röð Þórir Erlingsson skrifar Sjá meira
Við skorum á ríkisstjórnina að standa við fyrirheitin og tryggja framtíð Skipholts 37 Hópur listafólks Skoðun
Skoðun Við skorum á ríkisstjórnina að standa við fyrirheitin og tryggja framtíð Skipholts 37 Hópur listafólks skrifar
Skoðun Krabbameinsmeðferð lokið en hvað svo? Óttinn við að endurgreinast Þorri Snæbjörnsson skrifar
Skoðun Reykjavíkurborg pissar í skóinn sinn – og kallar það hagræðingu Sigurður Sigurðsson skrifar
Skoðun Starfsfólk Reykjavíkurborgar er ekki tilraunaverkefni Brynhildur Heiðar- og Ómarsdóttir,Þorkell Heiðarsson skrifar
Skoðun Árangursrík stjórnsýsla – Heilsa eldri borgara – nýtum það sem virkar Þorvaldur Ingi Jónsson skrifar
Skoðun Grafið undan faglegu starfi – Skipulagsbreytingar á starfi félagsmiðstöðva frá sjónarhorni starfsmanns Ari Orrason skrifar
Við skorum á ríkisstjórnina að standa við fyrirheitin og tryggja framtíð Skipholts 37 Hópur listafólks Skoðun