Innlent

Bein út­sending: Fyrsta skóflu­stunga að Stóra-Hrauni

Lovísa Arnardóttir skrifar
Tölvuteiknuð loftmynd af hvernig fangelsissvæðið á Stóra-Hrauni gæti litið út þegar það verður tilbúið árið 2028.
Tölvuteiknuð loftmynd af hvernig fangelsissvæðið á Stóra-Hrauni gæti litið út þegar það verður tilbúið árið 2028. Framkvæmdasýslan ríkiseignir

Þorbjörg Sigríður Gunnlaugsdóttir dómsmálaráðherra tekur klukkan 14 í dag fyrstu skóflustunguna að öryggisfangelsinu við Stóra-Hraun. Berghildur Erla Bernharðsdóttir fréttamaður verður viðstödd athöfnina og Vísir í beinni útsendingu. Hægt verður að fylgjast með í spilaranum að neðan.

Auk Þorbjargar verða viðstödd skóflustunguna Bragi Bjarnason, bæjarstjóri Árborgar og Ragna Bjarnadóttir, fangelsismálastjóri.

embed

Útboð á jarðvinnuframkvæmdum við fangelsisuppbygginguna fór fram í sumar. Verkið felur meðal annars í sér aðstöðusköpun, uppsetningu vinnubúða, vegagerð, lagningu veitna og rafstrengja, afvötnun svæðis, jarðvinnu fyrir mannvirki fyrsta áfanga, fyllingar, jarðvegsskipti og uppsetningu ytri netgirðingar.

Nýtt öryggisfangelsi á að leysa af núverandi fangelsi að Litla-Hrauni sem til samanburðar er átta deildir og hýsir 83 karlfanga. Öryggisfangelsið verður byggt í tveimur áföngum; fyrst verður lögð áhersla á almenn fangarými sem rúma 56 fanga, skólabyggingu, eina vinnustofu, vöruhús, hliðbyggingu, sem og gesta-/starfsmannabílastæði.

Í seinni áfanga verður byggð öryggisdeild sem rúmar 16 fanga, fyrirmyndardeild sem rúmar 56 fanga, önnur vinnustofa, starfsmannahús og sér starfsmannabílastæði.

Í fréttum í nóvember árið 2024 var greint frá því að kostnaður við byggingu nýs fangelsis í landi Stóra-Hrauns væri áætlaður um 18 milljarðar króna.


Tengdar fréttir

Erfiðara að sporna við innstreymi fíkniefna á Litla-Hrauni

Rúmlega nífalt fleiri tilfelli komu upp um fíkniefnanotkun fanga á Litla-Hrauni en á Hólmsheiði á fimm ára tímabili. Erfiðara sé að sporna við innstreymi fíkniefna á Litla Hrauni samkvæmt svari dómsmálaráðherra.

Tíu fangar verði þegar fluttir úr landi

Brottvísunarferli tíu fanga, sem afplánað hafa minnst þriðjung refsingar sinnar, hefst um leið og ný lög dómsmálaráðherra um brottvísanir fanga taka gildi. Mohamad Kourani er ekki einn þeirra en unnt verður að hefja brottvísunarferli hans eftir um þrjá mánuði.

„Stóra-Hraun mun rísa“

Vinna stendur enn yfir við undirbúning vegna fyrirhugaðrar uppbyggingar nýs fangelsis að Stóra-Hrauni og er útboð vegna jarðvegsvinnu væntanlegt. Þetta segir dómsmálaráðherra sem segir afstöðu sína algjörlega óbreytta hvað varðar uppbyggingu fangelsisins. Hins vegar taki verkefni af þessum toga töluverðan tíma og hún hafi staldrað við þann mikla kostnað sem fyrri ríkisstjórn hafi gert ráð fyrir að færi í verkefnið og því hafi hún viljað láta skoða hvernig mætti ná kostnaði niður.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×