Sport

Ís­land missti af verð­launum með minnsta mögu­lega mun

Sindri Sverrisson skrifar
Kvennalandsliðið missti af verðlaunum með sárgrætilegum hætti á EM í Finnlandi
Kvennalandsliðið missti af verðlaunum með sárgrætilegum hætti á EM í Finnlandi FSÍ

Íslenska kvennalandsliðið í hópfimleikum missti af verðlaunasæti á EM í Finnlandi í dag með nístingssárum hætti, eða minnsta mögulega mun. Ísland varð einnig í 4. sæti í keppni blandaðra liða.

Íslenska liðið byrjaði á trampólíni og hlaut þar 17,200 stig eftir dýrkeypt fall í lokin, eftir að hafa fengið 17,850 stig í undankeppninni.

Einkunnin í gólfæfingum var einnig lægri í dag en í undankeppninni eða 17,800 og liðið endaði svo á að fá 16,850 stig á dýnu eða samtals 51,850 stig í keppninni.

Það voru því Bretar sem hrepptu bronsverðlaunin með 51,900 stig og fögnuðu skiljanlega gríðarlega þessum óvæntu verðlaunum. Svíar sýndu enn og aftur mátt sinn og megin með því að verða Evrópumeistarar, með 54,150 stig, en Danmörk fékk silfur að þessu sinni með 53,000 stig.

Í keppni blandaðra liða varð Ísland í 4. sæti með samtals 52,750 stig, fyrir ofan bæði Ítalíu og Noreg. 

Nokkuð vantaði þó upp á verðlaunasæti en Danmörk fékk brons með 55,150 stig og spennan var gríðarleg í baráttunni um gullið sem Svíar unnu með 56,750 stigum gegn 56,650 stigum Breta.

Blandaða liðið varð í 4. sæti á EM í hópfimleikum í Finnlandi.FSÍ

Fyrirliðinn Dagný Lind Hreggviðsdóttir og þjálfarinn Yrsa Ívarsdóttir fóru yfir málin eftir keppni blönduðu liðanna í viðtölum sem sjá má hér að neðan.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×