Fótbolti

Ólafur hafði betur í Íslendingaslag

Aron Guðmundsson skrifar
Ólafur fagnar hér í leik með Álasundi
Ólafur fagnar hér í leik með Álasundi Mynd: Álasund á Facebook

Álasund hafði betur gegn Kristiansund í mikilvægum Íslendingaslag í norsku úrvalsdeildinni í fótbolta í dag. Lokatölur urðu 4-1, Álasundi í vil.

Íslendinga var að finna í byrjunarliðum beggja liða. Júlíus Mar Júlíusson stóð í hjarta varnarinnar hjá Kristiansund og hjá Álasundi var Ólaf Guðmundsson að finna í vörninni.

Kristiansund komst yfir í leiknum með marki á 27. mínútu frá David Tufekcic en skömmu seinna jafnaði Álasund metin. 

Þrjú mörk til viðbótar í seinni hálfleik gulltryggði síðan 4-1 endurkomusigur Álasunds. 

Sigurinn mikilvægur í meira lagi því með honum færist Álasund fjær fallsvæði norsku úrvalsdeildarinnar og er nú í 13. sæti í þessari sextán liða deild með 24 stig. 

Staða Kristiansund er hins vegar slæm. Liðið er í fallsæti með nítján stig og fimm stigum frá öruggu sæti. þegar að 23 umferðir hafa verið leiknar. 




Fleiri fréttir

Sjá meira


×