Sport

Dag­skráin í dag: Stór­lið í Doc Zone og æsileg bar­átta Þórs og KA

Sindri Sverrisson skrifar
Virgil van Dijk og félagar eiga snúið verkefni fyrir höndum í dag.
Virgil van Dijk og félagar eiga snúið verkefni fyrir höndum í dag. Getty/Alex Pantling

Það eru stórlið á ferðinni í ensku úrvalsdeildinni í fótbolta í dag, KR og Keflavík mætast í hádeginu þar sem KR-ingar gætu tryggt sér 2. sæti Bestu deildar karla og Akureyrarliðin tvö, KA og Þór, halda áfram baráttunni fyrir lífi sínu í deildinni. Þetta og fleira til á sportrásum Sýnar í dag.

Enski boltinn verður áberandi á sportrásum Sýnar í dag þar sem Everton og Chelsea mætast klukkan 11:30 og í kjölfarið tekur Hjörvar Hafliðason við ásamt félögum sínum í Doc Zone. Þeir munu fylgjast með öllu sem gerist í fótboltanum, hér heima og erlendis, og þá eflaust sérstaklega leikjum Brentford við Liverpool og Manchester City við Ipswich sem sýndir eru á hliðarrásum.

Valur og KA mætast klukkan 13 á Sýn Sport Ísland og klukkutíma síðar hefst leikur Þórs og Stjörnunnar á Sýn Sport Ísland 3 en aðeins tvö stig skilja að KA og Þór í baráttunni um að forðast fall úr Bestu deild karla, fyrir næstsíðustu umferðina. Þórsarar gætu því mögulega fallið ef úrslitin verða þeim ekki hliðholl.

Síðdegisleikurinn í enska boltanum er áhugaverður slagur Newcastle og Aston Villa klukkan 16:30 á Sýn Sport og eftir hann eru Laugardagsmörkin á dagskrá klukkan 18:35. Einnig má sjá leik Bayern og Leipzig á Sýn Sport Viaplay klukkan 16:30.

Upplýsingar um allar beinar útsendingar Sýnar má finna með því að smella hér.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×