Jafnlaunavottunin afnumin en starfsfólkinu fækkar ekki Birgir Olgeirsson skrifar 16. október 2026 15:29 Diljá Mist Einarsdóttir gagnrýnir að starfsfólki Jafnréttisstofu hafi ekki fækkað eftir afnám jafnlaunavottunar. Í svari Þorbjargar Sigríðar Gunnlaugsdóttur dómsmálaráðherra kemur fram að verkefni vottunaraðila færist að hluta til stofnunarinnar. Vísir Diljá Mist Einarsdóttir, þingmaður Sjálfstæðisflokksins, gagnrýnir að starfsfólki Jafnréttisstofu hafi ekki fækkað eftir afnám jafnlaunavottunar. Hún segir Viðreisn hafa talað hátt um hagræðingu hjá ríkinu en látið tækifæri til hennar fram hjá sér fara. „
Viðreisn hefur haft hátt um að hagræða hjá ríkinu en svo gefst dauðafæri og þá er ekkert gert,“ segir Diljá við fréttastofu. Hún vísar þar til skriflegs svars Þorbjargar Sigríðar Gunnlaugsdóttur dómsmálaráðherra við fyrirspurn hennar um áhrif breytinganna á verkefni og starfsmannafjölda Jafnréttisstofu. Svarið var lagt fram á Alþingi í gær og þar kemur fram að starfsmannafjöldinn hafi haldist óbreyttur frá gildistöku breytinganna 1. september. Diljá Mist Einarsdóttir segir Viðreisn hafa látið dauðafæri til hagræðingar fram hjá sér fara og spyr til hvers sé verið að einfalda regluverkið ef ríkisbáknið standi óhaggað.Vísir/Vilhelm „Færri fyrirtæki þurfa nú að skila gögnum, skilin eru sjaldnar og ferlið á að vera sjálfvirkara. Samt fækkar ekki um eitt stöðugildi,“ segir Diljá. Hún segist fagna afnámi jafnlaunavottunarinnar en telur að breytingunni hefði átt að fylgja hagræðing hjá stofnuninni. „Ég hef lengi barist gegn þessari íþyngjandi skyldu og fagna afnáminu. En til hvers er verið að einfalda regluverkið ef ríkisbáknið stendur óhaggað?“ Hluti vinnunnar færist til Jafnréttisstofu Í svari ráðherra er óbreyttur starfsmannafjöldi settur í samhengi við breytt verkefni stofnunarinnar. Vinna sem áður var unnin hjá vottunaraðilum færist að einhverju leyti til Jafnréttisstofu í gegnum nýtt rafrænt þjónustu- og gagnakerfi sem stofnunin hefur alfarið umsjón með. Þar segir að áhersla sé lögð á að gera móttöku og yfirferð gagna eins rafræna og sjálfvirka og kostur sé. Þannig eigi að tryggja skilvirkt verklag og halda kostnaði í lágmarki. Jafnréttisstofa annast áfram eftirlit með gagnaskilum, ráðgjöf, leiðbeiningar og fræðslu. Áður annaðist hún einnig jafnlaunastaðfestingu fyrir minni fyrirtæki á almennum markaði með 25 til 49 starfsmenn, sem gátu valið þá leið í stað jafnlaunavottunar. Í svarinu er vísað til starfsmannafjölda en stöðugildi ekki tilgreind. Segir nýja kerfið jafnvel flóknara Diljá og Þorbjörg ræddu jafnframt framkvæmd nýja kerfisins í fyrirspurnartíma á Alþingi í gær. Þar sagðist Diljá hafa fengið kvartanir um að einföldunin hefði ekki skilað sér til fyrirtækja og stofnana. „Við þingmenn höfum fengið þó nokkrar ábendingar, bæði frá atvinnulífinu og frá hinu opinbera, um að nýja kerfið sem var lögfest sé jafnvel flóknara en gamla jafnlaunavottunarkerfið, bæði tímafrekara og líka hvað varðar umsýslu,“ sagði hún. Þorbjörg Sigríður Gunnlaugsdóttir dómsmálaráðherra segir nýja jafnlaunakerfið einfaldara og ódýrara. Færri aðilar þurfi að skila gögnum og skilin séu sjaldnar.Ívar Diljá sagði vandkvæðin meðal annars snúast um að atvinnurekendur þyrftu að laga sig að einsleitara ríkiskerfi. Samkvæmt ábendingunum nýttist fyrri vinna ekki og fyrirtæki og stofnanir stæðu frammi fyrir umtalsverðum kostnaði við að endurmeta störf á mjög skömmum tíma. Hún rifjaði upp að Sjálfstæðisflokkurinn hefði stutt afnám jafnlaunavottunar en viljað ganga lengra og gera skýrslugjöfina valkvæða. Sú breytingartillaga hefði verið felld. Diljá spurði hvort sjónarmið eftirlitsaðila hefðu ráðið för við hönnun kerfisins til að einfalda þeim yfirferðina. Hún kallaði fyrirkomulagið tilraunastarfsemi og spurði hvort ráðherra ætlaði að hlusta á umkvartanirnar og bregðast við. Ráðherra hafnar gagnrýninni Þorbjörg sagði ríkisstjórnina hafa hlustað á gagnrýni á gamla kerfið og brugðist við með einfaldara og ódýrara fyrirkomulagi. Hún benti á að stærðarmörkin hefðu verið hækkuð úr 25 starfsmönnum í 50 og skilaskyldum aðilum hefði samkvæmt því fækkað úr um 1.300 í um 660. Gögnunum þyrfti að skila á þriggja ára fresti. Ráðherra hafnaði því að fyrri vinna við flokkun starfa nýttist ekki. Fyrirtækin þyrftu að skila gögnum í nýtt rafrænt kerfi en ferlið yrði sjálfvirkt eftir að þau hefðu farið í gegnum það í fyrsta sinn. „Við erum að leitast við að ná fram tveimur jafn mikilvægum markmiðum; einfaldara kerfi og ódýrara kerfi fyrir atvinnulífið,“ sagði Þorbjörg og áréttaði að hún myndi ekki hvika frá markmiðinu um að verja launajafnrétti. Í síðara svari sínu sagði ráðherra kerfið vera „kostnaðarlaust í framkvæmd fyrir atvinnulífið“. Hún hafnaði því að um nýja kvöð væri að ræða þegar verið væri að einfalda fyrirkomulagið. „Það er ekki ný kvöð þegar við mætum gagnrýni, þegar við leggjum við hlustir, þegar við einföldum kerfið, en við ætlum ekki að bakka með það markmið að halda í aðgerðir til að tryggja launajafnrétti kynjanna. Svo einfalt er það.“
Jafnréttismál Ríkisstjórn Kristrúnar Frostadóttur Vinnumarkaður Alþingi Mest lesið Faðir tveggja nemenda í skólanum sá sem skaut árásarmanninn Erlent Íhuga að krefja Ölgerðina skýringa Innlent Dæmi um að búnar séu til „gervikennitölur“ fyrir börn Innlent „Fylgjumst grannt með framvindu mála“ Innlent Gæti komið til lokana með stuttum fyrirvara Veður Varaði við nýju Rússlandi Pútíns Erlent „Fyrir neðan siðgæðiskröfur sem maður gerir til alþingismanna“ Innlent Þakplötur að losna af íþróttahúsi í Grundarfirði Innlent Bakar til góðs næsta sólarhringinn Innlent Alvarlega slösuð eftir skotárás í íþróttahúsi Erlent Fleiri fréttir Kannast ekki við lýsingar Jóns Íhuga að krefja Ölgerðina skýringa Bakar til góðs næsta sólarhringinn Þakplötur að losna af íþróttahúsi í Grundarfirði Skoða viðbrögð við rannsókn á Ölgerðinni Minna á útgáfu nafnskírteina vegna rannsóknar lögreglu Eldur í lyftara í álverinu í Straumvík Tveir reyndu að flýja lögreglu á fótum eftir eftirför „Fylgjumst grannt með framvindu mála“ Dæmi um að búnar séu til „gervikennitölur“ fyrir börn Handtekinn fyrir að ausa fúkyrðum yfir hóp fólks Aðgengið gott en gefur ekki upp synjanirnar „Eigum ekki að bíða eftir alvarlegu atviki“ Jafnlaunavottunin afnumin en starfsfólkinu fækkar ekki Halla kjörin fyrsti varaforseti ASÍ Varar við að biðraðir í Keflavík geti fækkað flugleiðum Ekki ástæða til að rýma bankann Allt virðist mega ef BDSM-orðið er notað „Ég ætla ekki að fara í nein orðaskipti við Jón“ Sjö ára dómur Nýr forseti ASÍ, umdeildur sýknudómur og snjöll markaðsbrella Sakar ráðherra um fordóma og „hvíta forréttindablindu“ Ljósleiðaraslit á stofnstreng Mílu milli Akraness og Lambhaga „Fyrir neðan siðgæðiskröfur sem maður gerir til alþingismanna“ Allt að 40 offituaðgerðir hjá Klíníkinni fyrir áramót Georg Páll er næsti forseti ASÍ Hvetur Veðurstofuna til að brjóta odd af oflæti sínu Gróft kynlíf en ekki nauðgun samkvæmt klofnum Landsrétti Ungbörn áfram bólusett gegn RS-veiru Sögulegur dómur fyrir námsmenn í Hæstarétti Sjá meira