Fær endurgreitt vegna uppbyggingar eftir stórbrunann í Miðhrauni Kjartan Kjartansson skrifar 16. október 2026 14:02 Atvinnuhúsnæðið að Miðhrauni 4 fuðraði upp í miklum eldsvoða í apríl árið 2018. Enn er deilt um ábyrgð og kostnað við endurbygginguna. Vísir/Vilhelm Húsfélag atvinnuhúsnæðis í Miðhrauni sem brann árið 2018 þarf að greiða minnihlutaeiganda hússins hátt í fimmtíu milljónir króna sem tryggingafélag hans ofgreiddi vegna endurbyggingar þess. Hundruð milljóna króna skaðabótamál á hendur einu stærsta fasteignafélagi landsins bíður enn úrlausnar dómstóla.
Hæstiréttur dæmdi húsfélag Miðhrauns 4 til þess að greiða félaginu FF 11 ehf., sem á tæpan fjórðungshlut í húsnæðinu, 23,5 milljónir króna í vikunni. Með dráttarvöxtum nemur upphæðin um 48,5 milljónum króna. Málið tengdist ágreiningi FF 11 og Heima atvinnuhúsnæðis ehf., sem á stærstan hluta hússins, um hvernig skyldi skipta kostnaði við endurbyggingu þess eftir stórbrunann í apríl árið 2018 og ráðstöfun á vátryggingabótum frá tryggingafélagi FF 11. Heimar töldu að skipta ætti kostnaðinum eftir hlutfalli eignarhluta þeirra af samanlögðu brunabótamati beggja. FF 11 taldi aftur á móti að miða ætti við hlutfallstölur í eignaskiptasamningi þeirra. Hæstiréttur taldi að miða ætti við eignaskiptasamninginn og dæmdi húsfélagið til þess að greiða FF 11 mismun á því sem tryggingafélagið ofgreiddi til endurbyggingarinnar. Hluti kröfunnar taldist fyrndur. FF 11 krafðist þess að fá endurgreiddar á annað hundrað milljóna króna. Hallgrímur Tómas Ragnarsson, eigandi FF 11, segir Vísi að Heimar hafi ekki gætt að tryggingum á sínum eignarhluta og hafi því reynt að seilast í brunatrygginga félagsins hans. Þegar kom að endurbyggingunni eftir brunann hafi Heimar krafist þess að FF 11 greiddi fjörutíu prósent af kostnaðinum þar sem félagið ætti fjörutíu prósent af tryggingum á húsinu. Hann hefði fallist á að láta félagið greiða með fyrirvara til þess að framkvæmdir gætu komist af stað. Boðuðu ekki til húsfunda en ákváðu framkvæmdir Heimar voru einnig dæmdir til þess að greiða FF 11 tæpar fjórar milljónir króna auk dráttarvaxta vegna framkvæmda við endurbygginguna sem síðarnefnda félagið lagði út fyrir. Kröfu Heima á móti um að FF 11 yrði gert að greiða hlut í framkvæmdum sem fyrrnefnda félagið réðst í var hins vegar vísað frá. Hæstiréttur vísaði til þess að FF 11 hefði ekki verið látið vita af framkvæmdunum og Heimar, sem fóru með formennsku í húsfélaginu, hefðu ekki haldið húsfund frá 2018 til 2023. Þá hefðu reikningar fyrir framkvæmdunum ekki verið skýrir um hvort þeir tengdust sameign húsnæðisins eða séreign Heima. Hæstiréttur vísaði einnig frá kröfu FF 11 á hendur Heima um rúmar 20 milljónir króna vegna endurbyggingar á þriðju hæð hússins. Hallgrímur segir að þar sé deilt um hvort að hæðin sé hluti af sameign hússins. Hann segir að Heimum verði stefnt aftur vegna þess anga málsins. Telja Heima bótaskylda vegna slakra brunavarna Enn er óleyst skaðabótamál sem FF 11 höfðaði á hendur Heimum vegna brunans fyrir fimm árum. Í því máli krefst FF 11 þess að skaðabótaskylda Heima verði viðurkennd vegna breytinga sem félagið gerði á nýtingu húsnæðisins án þess að uppfæra brunavarnir þess. Myndver fyrir þættina um Latabæ var til húsa í Miðhrauni 4 en Heimar leigðu húsnæðið síðar undir lager útivistarfataframleiðandans Icewear og geymslurými á vegum Geymsla. Eldurinn kviknaði í hlutanum þar sem Icewear var til húsa. Hallgrímur segir að FF 11 sækist eftir hálfum milljarði króna í bætur frá Heimum í því máli. Fjöldi fólks tapaði eignum sínum í brunanum. Hæstiréttur sýknaði Geymslur af skaðabótakröfu leigjenda vegna tjónsins árið 2021.
Hafnarfjörður Dómsmál Heimar fasteignafélag Stórbruni í Miðhrauni Tryggingar Mest lesið Ekkert fannst í búi Omnom Viðskipti innlent Fær endurgreitt vegna uppbyggingar eftir stórbrunann í Miðhrauni Viðskipti innlent Sýndu fljúgandi Roadster Viðskipti erlent „Ég ætla að reyna að kaupa eins mikið og ég get“ Viðskipti innlent Vélmenni útbúa nú matarbakka og ferja í flugvélarnar Viðskipti innlent Lokanir, lægðir og samviskubit Atvinnulíf Svona verða reglur um styrki til rafbílakaupa Viðskipti innlent Rafnar fylgir Herði og segir upp Viðskipti innlent Er bíllinn klár fyrir veturinn? Kíktu á vetrartékklista Bílanausts Lífið samstarf Trébútur fannst í Bónus hnetublöndu Viðskipti innlent Fleiri fréttir Fljúga daglega til Boston Ekkert fannst í búi Omnom Fær endurgreitt vegna uppbyggingar eftir stórbrunann í Miðhrauni Trébútur fannst í Bónus hnetublöndu „Ég ætla að reyna að kaupa eins mikið og ég get“ Bein útsending: Mótvindur – fundur um ferðaþjónustu í Suðurkjördæmi Svona verða reglur um styrki til rafbílakaupa Rafnar fylgir Herði og segir upp Finnska hugbúnaðarfyrirtækið Finago kaupir Reglu Vélmenni útbúa nú matarbakka og ferja í flugvélarnar „Ef einhver mistök hafa átt sér stað þá gerum við allt til þess að leiðrétta það“ Malasar í samstarf við GreenFish Verðbólgan verði þrálát út árið Fimmtán milljónir til fjölmiðla á landsbyggðinni Taka umdeilda samninga til skoðunar TGI Fridays lokað og hann innsiglaður Nú hægt að sækja um að ráðstafa séreignarsparnaði á húsnæðislán Nældu í lykilfólk hjá Nóa Siríus og Bauhaus Vilja stórhækka vernd íbúðasölufjár í bönkum Sigríður Hrefna hættir hjá Nóa Siríus Loðnumælingar töluvert undir væntingum Vilja setja 25 ára þak á verðtryggð lán frá áramótum Eigendur Kaffi Laugalækjar færa út kvíarnar Ragnar Jónasson til liðs við Logos Hlaðvarparar segja fjölmiðlanefnd stunda glassúrgerð Íslandsbanki varar við svikasímtölum Öll tilboð yfir kostnaðaráætlun Húsleit hjá Ölgerðinni Ráðinn framkvæmdastjóri rekstrar hjá Keahótelum Hafi ekki sérhagsmuni að leiðarljósi um skráningarskyldu fjölmiðla Sjá meira