Skoðun

Nikótín­púðar og raf­rettur – endur­bætt lög­gjöf í þágu barna og ung­menna

María Heimisdóttir skrifar

Nikótínvörur eru ört vaxandi ógn við heilsu okkar, ekki síst heilsu ungs fólks. Þótt dregið hafi mjög úr sígarettureykingum þá hefur notkun annarra nikótínvara, svo sem rafretta og nikótínpúða, aukist verulega, ekki síst meðal ungmenna. Markaðssetning þessara vara getur auðveldlega skapað þá ranghugmynd að þær séu nánast skaðlausar. Því fer fjarri og ætti það að vera augljóst ef litið er til innihaldsefnanna. Tökum nikótínpúða sem dæmi. Þessir púðar eru gerðir úr trefjum sem geta ert viðkvæma slímhúð munnsins, valdið blöðrum og þykknun á slímhúð. Úr púðunum losna svo ýmis efni til viðbótar við nikótín. Þar má nefna formaldehíð og króm. Nikótín hefur almennt skaðleg áhrif á munn- og tannheilsu óháð því hvernig það berst í líkamann. Nikótín dregur úr blóðflæði og framleiðslu munnvatns en hvoru tveggja getur aukið hættu á tannskemmdum. Meira um áhrif nikótíns hér á eftir. Vísbendingar eru um að notkun púðanna geti aukið hættu á krabbameini í munnholi en frekari rannsókna er þörf til að hægt sé að fullyrða slíkt.

Hið sama á við um rafrettur, þó svo gufa af þeim sé almennt talin innihalda færri eiturefni en venjulegur sígarettureykur. Auk nikótínsins andar notandinn að sér ýmsum skaðlegum efnum á borð við formaldehíð, ásamt þungmálmum, svo sem nikkel, blý og króm. Því til viðbótar berast örfínar agnir djúpt ofan í lungun og geta þar valdið ertingu og öðrum skaða. Loks eru það bragðefnin, en rannsóknir hafa sýnt möguleg tengsl sumra þeirra við alvarlega lungnasjúkdóma.

Af öllum þessum sökum eru nikótínpúðar, rafrettur og skyldar vörur skaðlegar heilsu okkar. Þessi skaðlegu áhrif eiga sérstaklega við um börn, ungmenni og á meðgöngu.

Áhrif nikótíns á börn og ungmenni

Í nýlegri skýrslu Vidensråd for Forebyggelse, Nikotinbrug blandt børn og unge: Konsekvenser og forebyggelse kemur fram að ungmenni eru sérstaklega viðkvæm fyrir áhrifum nikótíns þar sem heilinn er jú ekki fullþroskaður fyrr en um 25 ára aldur eða jafnvel síðar. Nikótín getur truflað þroska heilans hvað varðar t.d. einbeitingu, námsgetu, minni, hvatastjórnun og ákvarðanatöku. Þessar truflanir, t.d. á þroska hvatastjórnunar og umbunarkerfis heilans, geta leitt til þess að ungir einstaklingar ánetjast nikótíni auðveldar en fullorðnir og eiga oft erfiðara með að hætta notkun. Jafnframt benda rannsóknir til tengsla milli nikótínnotkunar og lakari geðheilsu, meðal annars aukinna einkenna kvíða og þunglyndis.

Vaxandi notkun nikótínpúða og rafretta er veruleg lýðheilsuáskorun. Samkvæmt skýrslu frá norrænu velferðarmiðstöðinni (Nordic Welfare Centre) frá árinu 2025 hefur notkun nikótínpúða aukist verulega á norðurlöndum. Gögnin sýna að um það bil þriðjungur íslenskra ungmenna á aldrinum 18-24 ára notar nikótínpúða. Notkunin virðist heldur minni í Noregi (30%) og í Svíþjóð (27%). Dönsk ungmenni nota púðana mun síður (16%) og í Finnlandi er notkunin um 9%. Mikilvægt er þó að hafa í huga að þessar tölur byggja á mismunandi könnunum og gefa því ekki nákvæman samanburð milli landa, heldur sýna að nikótínpúðanotkun er orðin algeng meðal ungs fólks í mörgum Norðurlandanna og virðist sérstaklega útbreidd á Íslandi, í Noregi og í Svíþjóð.

Evrópskar skólakannanir benda jafnframt til þess að rafrettunotkun sé orðin jafnalgeng eða algengari en sígarettureykingar meðal unglinga í mörgum löndum. Þessar niðurstöður benda til þess að þótt hefðbundnar reykingar fari minnkandi sé nikótínnotkun meðal ungs fólks enn verulegt lýðheilsuviðfangsefni. Þess vegna er lögð æ meiri áhersla á að koma í veg fyrir alla nikótínnotkun meðal ungs fólks, ekki aðeins sígarettureykingar. Þetta er gert meðal annars með því að setja aldurstakmörk fyrir kaup á þessum vörum, takmarka markaðssetningu og notkun bragðefna, hækka verð á nikótínvörum, tryggja nikótínlaust skólaumhverfi og veita markvissa fræðslu um skaðsemi nikótíns og hættuna á fíkn.

Mikilvægi betri löggjafar í þágu barna og ungmenna

Það er því sérstakt fagnaðarefni að nú er stefnt að nýrri löggjöf sem styður sérstaklega við þessi atriði. Það er jákvætt að ráðherra heilbrigðismála geti með reglugerð takmarkað notkun bragðefna sem höfða til barna og ungmenna, hindrað að umbúðir höfði sérstaklega til barna og ungmenna og geti einnig takmarkað hámarksmagn nikótíns í þessum vörum. Í Danmörku er hámarksmagn nikótíns í nikótínpúðum 9mg/g en hérlendis er ríflega tvöfalt hærra hámarksmagn nú leyfilegt eða 20 mg/g. Þetta er mikilvægt ekki síst í ljósi þess að litríkar umbúðir með ávaxta- og sælgætislykt með háum nikótínstyrk geta og hafa valdið eitrunarhættu fyrir ung börn.

Eins og hér er rakið eru tóbaks- og nikótínvörur sérstök ógn við heilsu barna og ungmenna. Það frumvarp sem nú liggur fyrir Alþingi felur í sér fjölmörg atriði sem vinna gegn þessari áhættu. Um er að ræða veigamikið lýðheilsumál þar sem stuðlað er að betri heilsu fyrir börnin okkar allra.

Höfundur er landlæknir.




Skoðun

Sjá meira


×