„Ég ætla að reyna að kaupa eins mikið og ég get“ Bjarki Sigurðsson skrifar 15. október 2026 16:48 Anton Einar Mikaelsson var fyrsti karlmaðurinn til að versla í Skims á Íslandi. Vísir/Einar Það var margt um manninn í Kringlunni í hádeginu í dag þegar tímabundin verslun Skims var opnuð. Tugir biðu í röð fyrir utan áður en dyrnar voru opnaðar og bættist í eftir því sem leið á. Viðmælendur fréttastofu voru mjög spenntir fyrir komu merkisins til landsins. Fyrsti karlmaðurinn til að versla var líklegast sá allra spenntasti.
Á örfáum árum hefur Skims orðið eitt vinsælasta merkið í undir-, aðhalds- og lífsstílsfatabransanum, ekki síst vegna frægðar stofnanda merkisins, Kim Kardashian. Kim stofnaði Skims árið 2019 og seldi fyrirtækið upphaflega eingöngu aðhaldsfatnað. Kim Kardashian er andlit Skims. Vísir/Einar Hraður vöxtur en einnig gagnrýni Á síðustu árum hefur fyrirtækið vaxið gífurlega og er það metið á rúmlega sex hundruð milljarða króna. Kardashian hefur leitt flestallar markaðsherferðir fyrirtækisins og selur það nú einnig nærföt, náttföt, kjóla og fleira. Þrátt fyrir vinsældirnar hefur fyrirtækið reglulega verið gagnrýnt, meðal annars fyrir að gefa í skyn að konur þurfi aðhaldsfatnað til að líta vel út. Þá þykja vörur fyrirtækisins ansi dýrar. Tók sinn tíma Eigendur Mathilda standa að opnun tímabundnu verslunarinnar í Kringlunni. Hún var opnuð klukkan tólf í dag þar sem verslun Húrra Reykjavík var áður. „Við erum búin að vera að hugsa um þetta í smá tíma. Við höfum lengi haft áhuga á Skims og nú er þetta að verða að veruleika. Þetta tók smá tíma en tókst á endanum,“ sagði Aldís Thea Hákonardóttir, markaðsstjóri Fata og skóa, í samtali við fréttastofu nokkrum mínútum áður en verslunin var opnuð. Aldís Thea Hákonardóttir er konan sem kom Skims til landsins.Vísir/Einar Hún segist eiga von á því að lagerinn seljist upp á næstu dögum en á von á fleiri sendingum að utan. „Ég er mikill aðdáandi Skims. Það er ótrúlega gaman að sjá alla hérna fyrir utan,“ segir Aldís. Mætti tveimur tímum fyrir opnun Fremst í röðinni var Máney Líf Hákonardóttir Bridde. Hún var mætt tveimur tímum fyrir opnun. „Ég hef aldrei verslað við Skims áður. Ég er að spá í að kaupa náttföt og stuttermaboli. Þetta er mjög góð verslun og þægilegt efni,“ sagði Máney við fréttamann aðspurð hvers vegna hún væri til í að bíða í tvo tíma eftir opnuninni. Röðin hafði lengst þegar fréttastofa fór af svæðinu um korteri eftir opnun.Vísir/Einar Dýrt en þess virði Fyrsti viðskiptavinurinn var ekki til í viðtal en viðskiptavinur númer tvö var það. Það var hún Ronja. „Ég elska Skims. Mér finnst geggjað að þetta sé komið til Íslands, mér finnst það æði. Ég keypti mér náttföt og bol,“ sagði Ronja. En er þetta dýrt? „Já, en þess virði,“ sagði Ronja um leið og hún lagði símann upp að greiðsluposanum. Sumir voru fljótir að finna sér það þá langaði í á meðan aðrir eyddu tíma í að skoða. Vísir/Einar Sýndi fréttamanni brækurnar Í fyrsta hollinu sem hleypt var inn í búðina voru eingöngu stelpur. Nokkru síðar mætti fyrsti karlmaðurinn. Fréttamaður gerði ráð fyrir því að hann væri að versla fyrir kærustu sína en svo var ekki, enda selur Skims líka karlmannsföt. „Ég er að kaupa fyrir sjálfan mig. Ég elska Skims. Ég er í Skims-nærbuxum. Þetta eru þægileg föt, þægilegasta dót sem ég hef verið í,“ sagði Anton Einar Mikaelsson og sýndi fréttamanni að hann væri vissulega í nærbuxum frá Skims. Anton Einar Mikaelsson var fyrsti karlmaðurinn til að versla í Skims á Íslandi.Vísir/Einar Anton kvaðst elska föt og gaf í skyn að hann hefði þróað með sér ákveðna kaupfíkn. „Ég ætla að kaupa mér nærbuxur, buxur, peysu, kannski náttbuxur. Ég ætla að reyna að kaupa mér eins mikið og ég get. Ég þekki nokkra stráka sem eiga Skims og segja að þetta séu þægilegustu nærbuxur sem þeir eiga,“ segir Anton. Þetta er ekki bara fyrir gellur? „Alls ekki. Hvað meiniði? Strákar, það er 2026 sko,“
Verslun Kringlan Reykjavík Bandaríkin Mest lesið „Ég ætla að reyna að kaupa eins mikið og ég get“ Viðskipti innlent Vélmenni útbúa nú matarbakka og ferja í flugvélarnar Viðskipti innlent Rafnar fylgir Herði og segir upp Viðskipti innlent Svona verða reglur um styrki til rafbílakaupa Viðskipti innlent Úrelt viðhorf: Hraðari breytingar á viðhorfi starfsfólks en stjórnun Atvinnulíf Verja súkkulaðimyndirnar á Swiss Miss Neytendur „Ef einhver mistök hafa átt sér stað þá gerum við allt til þess að leiðrétta það“ Viðskipti innlent Þungur róður hjá fyrirtækjum en undirstöðurnar sterkar Framúrskarandi fyrirtæki Ný bók varpar ljósi á réttindabrot og skaðlega vinnustaðamenningu Samstarf Finnska hugbúnaðarfyrirtækið Finago kaupir Reglu Viðskipti innlent Fleiri fréttir „Ég ætla að reyna að kaupa eins mikið og ég get“ Bein útsending: Mótvindur – fundur um ferðaþjónustu í Suðurkjördæmi Svona verða reglur um styrki til rafbílakaupa Rafnar fylgir Herði og segir upp Finnska hugbúnaðarfyrirtækið Finago kaupir Reglu Vélmenni útbúa nú matarbakka og ferja í flugvélarnar „Ef einhver mistök hafa átt sér stað þá gerum við allt til þess að leiðrétta það“ Malasar í samstarf við GreenFish Verðbólgan verði þrálát út árið Fimmtán milljónir til fjölmiðla á landsbyggðinni Taka umdeilda samninga til skoðunar TGI Fridays lokað og hann innsiglaður Nú hægt að sækja um að ráðstafa séreignarsparnaði á húsnæðislán Nældu í lykilfólk hjá Nóa Siríus og Bauhaus Vilja stórhækka vernd íbúðasölufjár í bönkum Sigríður Hrefna hættir hjá Nóa Siríus Loðnumælingar töluvert undir væntingum Vilja setja 25 ára þak á verðtryggð lán frá áramótum Eigendur Kaffi Laugalækjar færa út kvíarnar Ragnar Jónasson til liðs við Logos Hlaðvarparar segja fjölmiðlanefnd stunda glassúrgerð Íslandsbanki varar við svikasímtölum Öll tilboð yfir kostnaðaráætlun Húsleit hjá Ölgerðinni Ráðinn framkvæmdastjóri rekstrar hjá Keahótelum Hafi ekki sérhagsmuni að leiðarljósi um skráningarskyldu fjölmiðla Skims opnar í Kringlunni Aukin skattheimta og aukin samkeppni í boði ríkisins Nýir veitingastaðir opnaðir á Hilton Reykjavík og Hótel Reykjavík Öskju Uggandi yfir afstöðu VR Sjá meira
„Ef einhver mistök hafa átt sér stað þá gerum við allt til þess að leiðrétta það“ Viðskipti innlent
„Ef einhver mistök hafa átt sér stað þá gerum við allt til þess að leiðrétta það“ Viðskipti innlent