Óþolandi leyndarhyggja ríki um niðurstöður PISA-prófa Jakob Bjarnar skrifar 14. október 2026 14:47 Jón Pétur Zimsen segir óþolandi með öllu að hinar mikilvægu upplýsingar séu óaðgengilegar. Það sé pólitísk ákvörðun. Nýta eigi þessar upplýsingar í þágu barna en ekki til að vernda kerfið og veika hlekki innan þess. vísir/anton brink Jón Pétur Zimsen, þingmaður Sjálfstæðisflokksins, gagnrýndi harðlega þá ákvörðun ríkisstjórnarinnar að loka af niðurstöður úr PISA-prófi; hann sagði þetta ómetanlegar upplýsingar og um væri að ræða pólitíska ákvörðun.
Jón Pétur var einn þeirra sem sté í pontu þingsins undir dagskrárliðnum „Störf þingsins“ og sagði að strax árið 2009 hefði Menntamálastofnun áttað sig á því að nýta mætti niðurstöður PISA aukalega, þá vegna sérstöðu landsins. Á Íslandi taka allir nemar PISA-próf „Hér taka nefnilega allir nemendur prófið en víðast annars staðar í heiminum er um úrtak að ræða. Þá eru skólar dregnir út og 42 nemendur taka prófið í þessum skólum en á Íslandi taka allir prófið.“ Jón Pétur vitnaði til OECD sem segir um þessa sérstöðu Íslands að þar sem PISA-prófið nái til allra nemenda megi fylgjast með PISA-niðurstöðum einstakra skóla yfir tíma. „Íslenskir skólar gátu því nýtt sér niðurstöðurnar til að bæta námsárangur nemenda árin 2012 og 2015 þegar niðurstöðurnar voru aðgengilegar en síðan þá hefur ríkið skellt í lás og liggur á rándýrum upplýsingum sem gætu nýst skólunum til að styðja betur við nemendur.“ Mikilvægar upplýsingar óaðgengilegar Önnur ríki á borð við Lettland og fleiri nýta þessar upplýsingar, að sögn Jóns Péturs, Lettar segja að hver þátttökuskóli geti fengið upplýsingar um eigin árangur í samanburði við aðra skóla og teljist það gríðarlega mikilvægar upplýsingar. Á Íslandi taka allir nemar PISA-próf meðan erlendis tíðkist að einungis úrtak taki prófið. vísir/anton brink Öðruvísi háttaði hins vegar á Íslandi og það gagnrýndi Jón Pétur harðlega: „Það að birta ekki þessar upplýsingar er pólitísk ákvörðun — pólitísk — og kippir ábyrgðarkeðju kerfisins úr sambandi. Leyndarhyggja á kostnað árangurs barna. Þetta er óásættanlegt. Að nýta ekki einstaka stöðu Íslands þar sem allir nemendur taka prófið er vanræksla.“ Að sögn Jóns Péturs eru góðar upplýsingar um námsárangur af skornum skammti og það að fela þessar upplýsingar fyrir skólunum sé óþolandi. Upplýsingar sem þessar beri að nýta í þágu barna en ekki vernda kerfið og veika hlekki innan þess.
Alþingi PISA-könnun Grunnskólar Skóla- og menntamál Mest lesið Óveður gengur yfir landið Innlent Ekki lengur hægt að treysta island.is í blindni Innlent Ráðist inn í skóla og veist að nemendum eða starfsfólki Innlent Undirbúa Litla spítalann við Háaleitisbraut Innlent Setja á ráðningarbann og lækka greiðslur til bæjarfulltrúa Innlent Deilur við Höllu eigi sér langa sögu Innlent Fjöldi hafi sagt upp og fleiri íhugi stöðu sína Innlent Bein útsending: Stormur við setningu ASÍ-þings Innlent Fylgstu með lægðinni í beinni Veður Viðvaranir á viðvaranir ofan Veður Fleiri fréttir Með gaddakúlu og sprautunálakylfu „Það væri mjög miður“ Litli spítalinn án samnings og ráðherra sér ekkert svigrúm Kallar 25 ára þak á verðtryggð lán sýndarmennsku Ráðist inn í skóla og veist að nemendum eða starfsfólki Óþolandi leyndarhyggja ríki um niðurstöður PISA-prófa Vill skýr viðbrögð við trassaskap í losunarmálum í lög Vilja hækka akstursgjald eldra fólks um allt að 163 prósent Aðeins talið sannað að Andri hafi beitt leigjandann ofbeldi Ekki lengur hægt að treysta island.is í blindni „Það andar ekki köldu á milli mín og neinna annarra“ Hreyfingin stærri en einstakar persónur Aftakaveður gengur yfir landið og búist við vegalokunum vegna ófærðar Setja á ráðningarbann og lækka greiðslur til bæjarfulltrúa Deilur við Höllu eigi sér langa sögu Inga vill áfram banna atvinnumannahnefaleika Vatnið finni sér leið í gegnum sprungur Bein útsending: Stormur við setningu ASÍ-þings „Útlit fyrir að þetta sé allt að ganga eftir“ Undirbúa Litla spítalann við Háaleitisbraut Tilkynnt um líkamsárás í miðbænum Óveður gengur yfir landið Kröfur sem einstaklingum er ómögulegt að uppfylla Vikan lengdist og auglýsingahlé urðu tíðari Heppin móðir á Suðurlandi vann 42 milljónir Hvetur verkalýðshreyfinguna til samstöðu Skuldar ekkert Fór úr bílnum og hljóp undan lögreglu Enn versnar spáin með nýjum viðvörunum Bandero leitar skjóls í Reykjavík Sjá meira