Skoðun

Hvað kemur ESB málinu við?

Erna Bjarnadóttir skrifar

Í grein sinni í Viðskiptablaðinu, „Eigum við núna að viðurkenna að það er stöðnun á Íslandi?“, fjallar hagfræðingurinn Egill Almar Ágústsson um hægan vöxt landsframleiðslu á mann og þörf fyrir fleiri verðmæt störf. Það er verðugt umræðuefni. Íslenskt atvinnulíf þarf hvorki undanþágu frá gagnrýni né yfirlýsingar um að hér sé allt öðrum löndum fremra.

Egill Almar tengir greininguna ítrekað við umræðuna fyrir þjóðaratkvæðagreiðsluna um aðildarviðræður við Evrópusambandið. Hann spyr hvers vegna Íslendingar hafi rætt veikleika sambandsins þegar hagvöxtur hér hafi verið hægari. Í viðbrögðum á samfélagsmiðlum er þetta síðan tekið sem staðfesting á því að höfnun viðræðna hafi verið stórkostleg mistök. Sumir telja talsmenn nei-hliðarinnar jafnvel skulda þjóðinni afsökunarbeiðni.

En hverju var niðurstaða þjóðaratkvæðagreiðslunnar staðfesting á? Kjósendur svöruðu því hvort hefja ætti aðildarviðræður að nýju. Þeir voru ekki beðnir að leggja blessun sína yfir íslenska hagstjórn eða lýsa því yfir að hér væri allt í blóma. Þeir gátu talið þörf á verulegum úrbótum og samt hafnað þeirri leið.

Hvað segja tölurnar?

Egill Almar sýnir samanburð á vexti landsframleiðslu á mann á Íslandi, í ESB, á evrusvæðinu og í Bandaríkjunum. Tökum tölurnar gildar. Þær gefa tilefni til að spyrja hvers vegna vöxturinn hafi verið hægari hér og hvað megi gera til að bæta stöðuna.

Til að svara því þarf þó að skoða meira en landsframleiðslu á mann. Egill Almar nefnir sjálfur að unnum stundum á hvern starfandi hafi fækkað meira á Íslandi en í ESB frá 2007. Hann gerir síðan lítið úr vægi þess munar án þess að sýna hversu mikið hann skýri.

Landsframleiðsla á mann og framleiðsla á unna stund mæla ólíka hluti. Færri vinnustundir geta farið saman við aukna framleiðni. Meiri frítími getur einnig verið lífskjarabót þótt hann komi ekki fram sem aukin landsframleiðsla.

Þetta þarf ekki að skýra allan muninn til að eiga erindi í greininguna. Þegar dregnar eru víðtækar ályktanir um lífskjör verður að taka slíka þætti með. Að afgreiða aðra mælikvarða sem tal í kringum stóru myndina gerir hana fremur þrengri en skýrari.

Hvar kemur ESB inn?

Egill Almar tengir umfjöllun sína ítrekað við umræðuna fyrir þjóðaratkvæðagreiðsluna. Hann spyr hvers vegna Íslendingar hafi rætt veikleika ESB þegar eigin hagkerfi hafi vaxið hægt.

Við mat á aðild skiptir hins vegar hvort tveggja máli. Vandamál hér heima gera spurningar um efnahagslega og stofnanalega þróun ESB ekkert síður viðeigandi.

Hagvaxtarsamanburðurinn sýnir þó ekki að Ísland hefði náð betri árangri innan ESB. Til þess þarf að sýna fram á hvernig aðild myndi stuðla að meiri verðmætasköpun hér en núverandi samstarf Íslands við sambandið gerir.

Efla þarf nýsköpun, fjölga störfum sem krefjast sérþekkingar og auka framleiðni, hvernig sem tengslum Íslands við ESB er háttað. Þörfin fyrir slíkar umbætur sýnir hins vegar ekki að aðild að ESB sé besta leiðin til að ná þeim fram. Þjóðaratkvæðagreiðslan snerist um hvort hefja ætti aðildarviðræður að nýju. Hún var ekki atkvæðagreiðsla um hvort íslenskt hagkerfi væri fullkomið.

Kjósendur gátu því viljað úrbætur í íslenskum efnahagsmálum og jafnframt hafnað því að hefja aðildarviðræður við ESB að nýju. Þeir sem telja hagvaxtartölurnar sýna að kjósendur hafi valið rangt þurfa að sýna fram á hvernig aðild að sambandinu hefði skilað betri árangri. Það verður ekki ráðið af tölum um hagvöxt á mann einum saman.

Höfundur er hagfræðingur með diploma í opinberri stjórnsýslu.




Skoðun

Skoðun

Barn fyrir bíl

Albína Pálsdóttir,Anna Margrét Ásbjarnardóttir,Brynhildur Bolladóttir,Geir Finnsson,Gísli Marteinn Baldursson,Halldóra Þórsdóttir,Hrafnhildur Ingibjargardóttir Hallsdóttir,Kjartan Sveinn Guðmundsson,Rán Flygenring,Sveinn Þórhallsson ,Viktor Lorange skrifar

Sjá meira


×