Mikilvæg niðurstaða fyrir launafólk Finnbjörn A. Hermannsson skrifar 13. október 2026 12:46 Niðurstaða viðræðna um forsendur kjarasamninganna er mikið fagnaðarefni. Samningarnir halda og jafnframt hefur náðst fram mikilvæg niðurstaða í málum sem geta skilað launafólki verulegum lífskjarabótum á næstu árum. Við eigum að leyfa okkur að fagna þeim árangri. Verðlagsforsenda kjarasamninganna brast og sú reynsla verður ekki hunsuð. Launafólk tók á sig ábyrgð við gerð samninganna og sú leið getur aðeins gengið til lengri tíma ef ríki, sveitarfélög og atvinnulíf axla einnig sinn hluta. Það er lærdómur sem verður að hafa með sér inn í næstu samningsgerð. En hitt skiptir ekki síður máli: þegar á reyndi tókst að setjast niður og vinna málið til lykta. Mikilvægar umbætur Í yfirlýsingu ríkisstjórnarinnar frá 8. október vegna kjarasamninga á almennum vinnumarkaði er að finna fyrirheit um aðgerðir í ýmsum mikilvægum umbótamálum sem verkalýðshreyfingin hefur lengi barist fyrir. Þar má nefna aukin framlög til almenna íbúðakerfisins, verðtryggingu barnabóta, lögfestingu févítis, leigubremsu, áframhaldandi vinnu við stofnun örorkubótasjóðs og keðjuábyrgð í stórframkvæmdum. Sum þessara mála fela í sér stór skref. Ef þau verða framkvæmd af þeim krafti sem fyrirheitin gefa tilefni til geta þau haft áhrif á lífskjör fólks langt út fyrir gildistíma þeirra kjarasamninga sem nú eru til umræðu. Hið sama á við um sameiginlega yfirlýsingu Alþýðusambandsins, Samtaka atvinnulífsins, ríkisins og Sambands íslenskra sveitarfélaga. Þar er að finna skuldbindingar sem eiga að stuðla að lægri verðbólgu og vöxtum og skipta verulegu máli fyrir framhaldið. Traust verður ekki byggt á yfirlýsingum einum saman. Það byggist á því að staðið sé við það sem sagt er. Niðurstaðan er til marks um hverju ná má fram þegar gengið er til viðræðna með það að markmiði að finna lausnir. Ríkisstjórnin á hrós skilið fyrir ábyrga og vandaða framgöngu í þessum viðræðum og fyrir að hafa verið reiðubúin að taka á málum sem verkalýðshreyfingin hefur lagt mikla áherslu á. Enginn er stærri en félagið Árangurinn er hins vegar ekki verk eins manns eða fárra einstaklinga. Það á almennt við um verkalýðsbaráttu. Enginn forystumaður í verkalýðshreyfingunni er stærri en félagið eða sambandið sem hann fer fyrir. Varanlegur árangur byggist á samstöðu innan hreyfingarinnar. Þess vegna er hæpið að meta árangur verkalýðshreyfingarinnar fyrst og fremst út frá framgöngu eða sýnileika einstaklinga. Rétti mælikvarðinn er hvaða raunverulegu breytingar tekst að knýja fram í kjörum, réttindum og lífsskilyrðum fólks. Bætt húsnæðisöryggi er árangur. Betri afkoma barnafjölskyldna er árangur. Sterkari réttindi launafólks eru árangur. Aðgerðir sem skapa forsendur fyrir minni verðbólgu og lægri vöxtum eru árangur. Þar liggur hinn raunverulegi mælikvarði á hvernig til hefur tekist. Þessi niðurstaða er afrakstur víðtæks samráðs innan verkalýðshreyfingarinnar. Formenn og forystufólk aðildarfélaganna hafa lagt sitt af mörkum og starfsfólk Alþýðusambandsins hefur lagt gríðarlega vinnu í greiningar, undirbúning, útfærslur og viðræður. Fyrir þá fagmennsku og seiglu vil ég færa þeim sérstakar þakkir. Við eigum að gleðjast yfir sigrunum og segja frá þeim. Ekki til að hefja einstaklinga á stall heldur vegna þess að árangur skiptir máli. Hann sýnir félagsmönnum hvað sameiginlegt afl þeirra getur áorkað og minnir okkur á hvers vegna sterk verkalýðshreyfing skiptir máli. Traust byggir á efndum Nú þarf að tryggja að gefin fyrirheit verði að veruleika. Takist það getur niðurstaðan orðið mikilvægari en það eitt að tryggja framhald núverandi kjarasamninga. Hún getur orðið grunnur að endurnýjuðu trausti og sýnt að þrátt fyrir harðan ágreining geta verkalýðshreyfingin, atvinnurekendur og stjórnvöld náð saman um aðgerðir sem bæta lífskjör og styrkja efnahagslegan stöðugleika. Orðum verða að fylgja efndir. Höfundur er forseti Alþýðusambands Íslands (ASÍ). Viltu birta grein á Vísi? Kynntu þér reglur ritstjórnar um skoðanagreinar. Senda grein ASÍ Kjaramál Finnbjörn A. Hermannsson Mest lesið Kynami. Þegar vanlíðan barns er gefið rangt nafn Júlíus Valsson Skoðun 60 milljarðarnir sem enginn talar um Kári Sigurðsson Skoðun Til foreldra trans barna og ungmenna María Gunnarsdóttir Skoðun Valkvætt samhengi Ásdísar svo hún geti teiknað upp réttu fyrirsögnina Eydís Inga Valsdóttir Skoðun Allir vinna – fjárfestum í því sem við eigum Birna Ósk Einarsdóttir Skoðun Þrjú höfuð eru betri en eitt Sæþór Randalsson Skoðun Laxeldi á Seyðisfirði Kristján Ingimarsson Skoðun Hvað fær Ísland fyrir fiskeldi? Kristinn H. Gunnarsson Skoðun Skólamál verða ekki byggð á hentistefnu Valdimar Víðisson Skoðun Mikilvæg niðurstaða fyrir launafólk Finnbjörn A. Hermannsson Skoðun Skoðun Skoðun Lyf eru fjárfesting í fólki og framtíðinni Erla Sigríður Skarphéðinsdóttir skrifar Skoðun Mikilvæg niðurstaða fyrir launafólk Finnbjörn A. Hermannsson skrifar Skoðun Valkvætt samhengi Ásdísar svo hún geti teiknað upp réttu fyrirsögnina Eydís Inga Valsdóttir skrifar Skoðun Laxeldi á Seyðisfirði Kristján Ingimarsson skrifar Skoðun Til foreldra trans barna og ungmenna María Gunnarsdóttir skrifar Skoðun Vextir og vöxtur nýsköpunar Kjartan Björgvinsson skrifar Skoðun Allir vinna – fjárfestum í því sem við eigum Birna Ósk Einarsdóttir skrifar Skoðun Þrjú höfuð eru betri en eitt Sæþór Randalsson skrifar Skoðun Náttúruverndargjald: Rétt hugmynd, of þröng útfærsla Guðmundur Björnsson skrifar Skoðun 60 milljarðarnir sem enginn talar um Kári Sigurðsson skrifar Skoðun Skólamál verða ekki byggð á hentistefnu Valdimar Víðisson skrifar Skoðun Rétt mönnun í hjúkrun er fjárfesting í öryggi og gæðum Helga Rósa Másdóttir skrifar Skoðun Sá sem vinnur gervigreindarstríðið vinnur heiminn. En hver ræður þá heiminum? Sigvaldi Einarsson skrifar Skoðun Bær í vexti - nýtt aðalskipulag Hafnarfjarðar Stefán Már Gunnlaugsson skrifar Skoðun Áhrifavaldar já, Gestgjafinn nei Sigríður Dagný Sigurbjörnsdóttir skrifar Skoðun Forvarnir gerast ekki af sjálfu sér Arna Hrönn Aradóttir,Sigríður Arndís Jóhannsdóttir skrifar Skoðun Hvað kostar venjulegt líf? Þórarinn Ingi Pétursson skrifar Skoðun Persónulegt níð skilar engum árangri Halldóra Sigr. Sveinsdóttir skrifar Skoðun Hvað fáum við fyrir reikninginn? Stefán Vagn Stefánsson skrifar Skoðun Samstaða um Suðurnesin sem drifkraft vaxtar Berglind Kristinsdóttir,Pálmi Freyr Randversson,Guðjón Skúlason skrifar Skoðun Hvað fær Ísland fyrir fiskeldi? Kristinn H. Gunnarsson skrifar Skoðun Byggingalóðir – tækifæri fyrir ungt fólk í húsnæðisleit eða hilluskraut fjármagnseigenda? Jón Pálsson skrifar Skoðun Treysta Alþingismenn ekki Alþingi? Eggert Guðmundsson skrifar Skoðun Ertu að segja sögu? Helga Edwardsdóttir,Hanna Birna Valdimarsdóttir,Sigríður Elín Ásgeirsdóttir,Steinunn Júlía Rögnvaldsdóttir Robinson skrifar Skoðun Þegar vinstrið slær á framtakið Ragnar Sigurðsson skrifar Skoðun Kynami. Þegar vanlíðan barns er gefið rangt nafn Júlíus Valsson skrifar Skoðun Sérhagsmunir í nafni almennings Arnar Sigurðsson skrifar Skoðun Leigubremsan leysir ekki húsnæðisvandann ein og sér Jóhann Ingi Óskarsson skrifar Skoðun Listamannalaun: Eru tækifærin raunverulega opin öllum? Valerio Gargiulo skrifar Skoðun KFUM og KFUK – rannsókn eða krísustjórnun? Theódór S. Halldórsson skrifar Sjá meira
Valkvætt samhengi Ásdísar svo hún geti teiknað upp réttu fyrirsögnina Eydís Inga Valsdóttir Skoðun
Skoðun Valkvætt samhengi Ásdísar svo hún geti teiknað upp réttu fyrirsögnina Eydís Inga Valsdóttir skrifar
Skoðun Sá sem vinnur gervigreindarstríðið vinnur heiminn. En hver ræður þá heiminum? Sigvaldi Einarsson skrifar
Skoðun Forvarnir gerast ekki af sjálfu sér Arna Hrönn Aradóttir,Sigríður Arndís Jóhannsdóttir skrifar
Skoðun Samstaða um Suðurnesin sem drifkraft vaxtar Berglind Kristinsdóttir,Pálmi Freyr Randversson,Guðjón Skúlason skrifar
Skoðun Byggingalóðir – tækifæri fyrir ungt fólk í húsnæðisleit eða hilluskraut fjármagnseigenda? Jón Pálsson skrifar
Skoðun Ertu að segja sögu? Helga Edwardsdóttir,Hanna Birna Valdimarsdóttir,Sigríður Elín Ásgeirsdóttir,Steinunn Júlía Rögnvaldsdóttir Robinson skrifar
Valkvætt samhengi Ásdísar svo hún geti teiknað upp réttu fyrirsögnina Eydís Inga Valsdóttir Skoðun