Fótbolti

„Stolt af því hvernig ég stóð mig í dag“

Smári Jökull Jónsson skrifar
Ída Marín Hermannsdóttir skoraði sitt fyrsta landsliðsmark og lagði upp mark í fyrri hálfleiknum.
Ída Marín Hermannsdóttir skoraði sitt fyrsta landsliðsmark og lagði upp mark í fyrri hálfleiknum. vísir/Anton

Ída Marín Hermannsdóttir kom inn í byrjunarlið Íslands gegn Króatíu í dag og setti heldur betur mark sitt á leikinn. Hún skoraði auk þess að leggja upp og var ánægð með sína frammistöðu í leikslok.

„Ég er stolt af hvernig ég stóð mig í dag. Við kláruðum leikinn eiginlega í fyrri hálfleik og ég reyndi mitt besta og ég er mjög ánægð með mína frammistöðu,“ sagði Ída Marín að leik loknum en markið í dag var hennar fyrsta fyrir landsliðið.

Eftir 4-0 sigur í fyrri leiknum ytra voru kannski einhverjir sem höfðu áhyggjur af því að lið Íslands myndi mæta værukært til leiks. Svo var aldeilis ekki.

„Það er bara að gíra sig upp af því við erum að fara að spila fyrir hönd Íslands á Laugardalsvelli og allir leikir skipta máli. Líka til að fá að spila saman fyrir næstu leiki og fá smá takt. Allir leikir eru mikilvægir.“

Líkt og fyrir fjórum árum verður Portúgal síðasta hindrun Íslands á leið sinni á fyrsta heimsmeistaramótið frá upphafi. Þá hafði Portúgal betur en Ída Marín segir þó ekkert tal um hefnd innan leikmannahóps Íslands.

„Ég hérna hef allavega ekki heyrt það og ég held við séum ekkert að spá í því. Það er bara að klára það og reyna okkar besta,“ segir Ída og bætir við að þangað mæti liðið með fullt sjálfstrauts.

„Það eru allar með sjálfstraust, hér gegn Króatíu og líka í sínum félagsliðum. Ég held að allar muni verða upp á sitt besta þegar við mætum Portúgal.“


Tengdar fréttir

Ís­land - Króatía 5-0 | Ís­lensk ein­stefna á Laugar­dals­velli

Ísland er komið áfram í úrslitaeinvígi um sæti á HM í Brasilíu á næsta ári eftir samanlagðan 9-0 sigur í einvígi gegn Króatíu. Ísland vann 5-0 sigur á Laugardalsvelli í kvöld og mætir að öllum líkindum Portúgal í úrslitum þar sem sæti á HM verður undir.

Aftur ráðast HM-örlög Íslands gegn Portúgölum

Portúgal var ekki frekar en Ísland í neinum vandræðum með að komast áfram í lokaumferð umspilsins um sæti á HM kvenna í fótbolta í Brasilíu. Liðin mætast í tveggja leikja einvígi og þar eiga Íslendingar svo sannarlega harma að hefna.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×