Fótbolti

Sjáðu ís­lensku eld­flaugina frá DJ Sigga

Sindri Sverrisson skrifar
Sigurður Bjartur Hallsson fagnar með sínum hætti en hann hefur nú skorað í tveimur leikjum í röð.
Sigurður Bjartur Hallsson fagnar með sínum hætti en hann hefur nú skorað í tveimur leikjum í röð. @admeridasad

Sigurður Bjartur Hallsson er farinn að gera það sama fyrir Mérida á Spáni og fyrir FH í Bestu deildinni áður en hann hélt út í atvinnumennsku. Hann skoraði glæsimark um helgina.

Sigurður Bjartur fór til Mérida í byrjun þessa árs eftir að hafa skorað 16 mörk í fyrra í Bestu deildinni.

Hann virðist vera að finna fjölina sína og hefur nú skorað í tveimur leikjum í röð í spænsku C-deildinni. Í bæði skiptin hefur Sigurður komið inná sem varamaður og í bæði skiptin hefur Mérida endað á að fagna sigri, fyrst 2-0 gegn Cacereno og svo 2-1 á útivelli gegn Pontevedra um helgina.

Í seinni leiknum skoraði Sigurður með sannkölluðum þrumufleyg eða „hægrifótar eldflaug frá Íslandi“ eins og það er orðað á samfélagsmiðlum Mérida. Markið má sjá hér að neðan.

Sigurður Bjartur, eða „DJ Siggi“, fagnaði svo markinu eins og plötusnúður léttur í bragði.

Mérida hafði tapað fjórum leikjum í röð og reyndar fengið rautt spjald í þremur þeirra en eftir tvo sigra í röð er liðið núna með níu stig í 12. sæti af 20 liðum.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×