Fótbolti

„Áttum mun meira skilið úr þessum leik“

Hjörvar Ólafsson skrifar
Haraldur Freyr Guðmundsson, þjálfari Keflavíkur, týndi til ýmsilegt jákvætt þrátt fyrir tapið. 
Haraldur Freyr Guðmundsson, þjálfari Keflavíkur, týndi til ýmsilegt jákvætt þrátt fyrir tapið. 

Haraldur Freyr Guðmundsson, þjálfara Keflavíkur, fannst að fótboltaguðirnir hefðu átt að verðlauna hans lið með stigi eða stigum þegar liðið tapaði fyrir Breiðabliki í Bestu-deild karla í fótbolta í kvöld. 

„Tilfinningin er slæm að tapa og við erum svekktir með það. Sérstaklega þar sem við áttum mun meira skilið úr þessum leik. Spilamennskan hefði átt að skila stigi eða stigum,“ sagði Haraldur Freyr Guðmundsson, þjálfari Keflavíkur, að leik loknum.

„Við vorum í vandræðum með pressuna okkar í fyrri hálfleik en við fórum yfir þann hluta leiksins í hálfleik. Það var allt annað að sjá okkur á þeim vettvangi í seinni hálfleik,“ sagði Haraldur Freyr þar að auki.

„Við skutum tvisvar sinnum í stöngina og sköpum fullt af færum til þess að skora fleiri mörk. Stangarskotin koma í stöðunni 1-0 og svo kemur þriðja markið þeirra bara eftir klaufagang hjá okkur undir lok leiksins,“ sagði hann.

„Fyrir utan góða spilamennsku þá er gaman að sjá unga og efnilega leikmenn hjá okkur fá sjénsinn og grípa gæsina vel. Við munum taka jákvæðu punktana með okkur í síðustu tvo leiki sumarsins og keyra á þá. Við viljum enda gott tímabil með krafti,“ sagði Haraldur.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×