Fótbolti

HM-draumurinn úti hjá Betu og Belgum eftir vító

Sindri Sverrisson skrifar
Elísabet Gunnarsdóttir tók við Belgíu snemma árs 2025.
Elísabet Gunnarsdóttir tók við Belgíu snemma árs 2025. Getty/Mateusz Slodkowski

Lærimeyjar Elísabetar Gunnarsdóttur í belgíska fótboltalandsliðinu féllu út með sárgrætilegum hætti í kvöld gegn Póllandi í umspilinu um sæti á HM 2027 í Brasilíu.

Það verður því Pólland sem mætir Írlandi í tveggja leikja úrslitaeinvígi um mánaðamótin nóvember-desember, þegar ætla má að Ísland og Portúgal mætist í sams konar einvígi.

Belgar voru 1-0 yfir eftir sigur í heimaleiknum gegn Póllandi en töpuðu á endanum í vítaspyrnukeppni í Gdansk í kvöld.

Barcelona-stjarnan Ewa Pajor skoraði tvö marka Pólverja og kom þeim yfir rétt fyrir hálfleik. Elísabet skipti Amy Littel inná í upphafi seinni hálfleiks og hún skoraði eftir aðeins fimm mínútur í sínum fyrsta A-landsleik og jafnaði metin.

Paulina Tomasiak kom hins vegar Póllandi yfir á nýjan leik og var staðan 2-1 þegar venjulegum leiktíma lauk, eða samtals 2-2 í einvíginu, og því þurfti að framlengja.

Í framlengingunni skoraði annar varamaður Elísabetar, Jarne Teulings, með skalla á 105. mínútu og virtist vera að koma Belgum áfram í seinni umferðina en Pajor sá til þess að úrslitin réðust í vítaspyrnukeppni, með marki á 116. mínútu.

Í vítaspyrnukeppninni fóru tvær spyrnur Belgíu forgörðum og vann Pólland vítakeppnina 4-3.

Öruggt hjá Noregi og Finnlandi

Fyrr í dag komst Noregur af miklu öryggi áfram í seinni umferðina með því að slá út Rúmeníu samtals 8-0 eftir 6-0 heimasigur í kvöld. Finnland komst einnig áfram með 3-1 útisigri gegn Serbíu en Finnar unnu einvígið samtals 6-2.

Úkraína komst áfram með því að vinna Slóvakíu 1-0 í dag og samtals 4-1. Slóvenía sló út Tyrkland, samtals 5-3 eftir 2-0 sigur í dag, og Austurríki átti ekki í vandræðum með Kósovó og vann 4-0 í dag og samtals 6-1. Þá gerðu Ítalía og Hvíta-Rússland 1-1 jafntefli og það dugði Ítölum til að vinna einvígið 3-1.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×