Sport

Loksins vann Allen í fram­lengingu

Henry Birgir Gunnarsson skrifar
Josh Allen léttur í leiknum í nótt.
Josh Allen léttur í leiknum í nótt. vísir/getty

Leikur tímabilsins hingað til í NFL-deildinni fór fram í nótt er LA Rams tók á móti Buffalo Bills. Leikurinn endaði í dramatískri framlengingu og Bills stóðu uppi sem sigurvegarar að lokum.

Bills tapaði boltanum í fyrstu sókn framlengingar og Rams gat því tryggt sigurinn með vallarmarki. Liðið komst í gott færi en leikmaður Bills varði sparkið til að gefa sínum mönnum annað tækifæri.

Það nýtti leikstjórnandi Bills, Josh Allen, sér vel. Kom liðinu á frábæran stað með því að hlaupa yfir Hrútana.

Svo steig sparkarinn Tyler Bass fram og kláraði leikinn fyrir Bills. Magnaður leikur og það sem er enn magnaðra er að Josh Allen var að vinna í framlengingu í fyrsta skipti. Hann hafði tapað sjö framlengdum leikjum á ferlinum. Hann var því að brjóta stóran, sálfræðimúr.

Þessi leikur og allir hinir verða gerðir upp í Lokasókninni á Sýn Sport klukkan 21.45 í kvöld.

Úrslit helgarinnar:

Cowboys-Buccaneers 16-24

Jaguars-Eagles 19-17

Packers-Bears 31-7

Titans-Texans 3-26

Dolphins-Bengals 24-31

Patriots-Raiders 45-17

Saints-Vikings 13-23

Jets-Browns 17-12

Steelers-Colts 34-22

Commanders-Giants 27-27

Chargers-Broncos 17-23

Cardinals-Lions 21-45

Seahawks-49ers 29-32

Falcons-Ravens 23-30

Rams-Bills 34-37

NFL



Fleiri fréttir

Sjá meira


×