Sport

„Erum að slípa saman liðið“

Andri Már Eggertsson skrifar
Einar Árni Jóhannsson fer yfir málin með sínu liði
Einar Árni Jóhannsson fer yfir málin með sínu liði Anton Brink/Vísir

Njarðvík vann átján stiga sigur gegn KR 97-115. Einar Árni Jóhannsson, þjálfari Njarðvíkur, var afar ánægður eftir leik og tók undir að þetta hafi verið besti leikur liðsins á tímabilinu.

„Við höfum ekki verið að spila okkar besta bolta en við erum í október og erum að slípa saman liðið. Ég er meðvitaður um að við áttum tvo lélega leiki í þessu húsi í fyrra. Það var gaman að koma hingað og sjá kraftinn í liðinu,“ sagði Einar Árni og hélt áfram.

„Það hefði verið hægt að koma með litla orku inn í seinni hálfleik miðað við hvernig fyrri hálfleikur endaði. Stelpurnar voru grjótharðar og ég var mjög ánægður með liðsheildina.“

Sóknarleikur Njarðvíkur var til fyrirmyndar með Brittany Dinkins fremsta í flokki. Íslandsmeistararnir gerðu 115 stig sem Einar Árni sætti sig vel við.

„Við vissum að þær myndu leggja mikla áherslu á Brittany Dinkins sem skilaði ellefu stoðsendingum. Stelpurnar voru hugrakkar og létu vaða þegar þær fengu tækifæri til. Okkur leið vel í fyrri hálfleik og héldum áfram í seinni hálfleik.“

Njarðvík gerði síðustu níu stigin í þriðja leikhluta og Einar tók undir að það hafi gert útslagið í kvöld.

„Við vorum að tala um það hvort við ættum að taka leikhlé þarna rétt á undan en svo kom gott áhlaup sem gekk frá þessu og við spiluðum skynsamlega í fjórða leikhluta,“ sagði Einar að lokum.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×