Körfubolti

Kristinn út­skýrir allar reglubreytingar vetrarins

Henry Birgir Gunnarsson skrifar
Kristinn Óskarsson er að hefja sitt fertugasta tímabil í dómgæslunni.
Kristinn Óskarsson er að hefja sitt fertugasta tímabil í dómgæslunni.

Nýtt tímabil hefst í Bónus-deild karla í kvöld og nýju tímabili fylgja breyttar áherslur og reglugerðarbreytingar.

Körfuboltakvöld fékk stórdómarann Kristin Óskarsson í sett til þess að útskýra helstu breytingar vetrarins.

„Núna er megináherslan í reglugerðarbreytingunum að minnka ítrekunaráhrifin. Það er ekki verið að breyta því mikið hvernig leikurinn er dæmdur en við erum að skilgreina betur hvað telst minniháttar taktískt brot sem þú þarft ekki að hafa áhyggjur að verði notað gegn þér síðar í leiknum og hvað sé alvarlegra inngrip sem krefst meiri refsingar,“ segir Kristinn.

Klippa: Kristinn útskýrir nýju reglurnar

Alþjóða körfuknattleikssambandið, FIBA, gaf út nýjar leikreglur sem tóku gildi nú í haust.

Ein af þessum breytingum er að óíþróttamannsleg villa heitir ekki lengur því nafni heldur hefur henni verið skipt upp í annars vegar „Disruptive foul“ og „Flagrant foul.“

Disruptive foul á við um brot sem eru harkalegri en venjuleg villa en þó er það frekar villa sem framkvæmdar eru af leikmönnum til að stoppa leikinn utan anda körfuboltans án þess þó að vera harkalegt. Ef villan er hins vegar talin harkaleg þá ætti að dæma Flagrant foul - nema auðvitað ef brotið verðskuldar brottrekstrarvillu.

Nýju villurnar hafa fengið íslensku nöfnin flæðisvilla og háskavilla.

Innslagið í heild sinni má sjá hér að ofan.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×