Erlent

Segir í tísku að setja „alþjóðasamfélagið“ ofar eigin þjóð

Samúel Karl Ólason skrifar
Marco Rubio í Aþenu í ljósaskiptunum í dag.
Marco Rubio í Aþenu í ljósaskiptunum í dag. AP/Mark Schiefelbein

Marco Rubio kallaði í gær eftir því að ríki Evrópu litu aftur til fornra gilda heimsálfunnar. Hann sagði Evrópu þurfa að verja meiru til varnarmála og einnig þyrfti að koma böndum á fólksflutninga til heimsálfunnar. Þetta var meðal þess sem utanríkisráðherrann sagði í ræðu á hinni forfrægu Acropolishæð í Aþenu í Grikklandi og í ummælum á blaðamannafundi með George Gerapetritis, utanríkisráðherra Grikklands.

Þangað fór Rubio frá Íslandi í fyrradag til að ræða við gríska ráðamenn um samstarf Bandaríkjanna og Grikklands á ýmsum sviðum. Í dag mun hann svo fara til Portúgal.

Sjá einnig: Ru­bio hafi stað­fest varnar­skuld­bindingar gagn­vart Ís­landi

Rubio hrósaði Grikkjum fyrir að hafa aukið fjárútlát til varnarmála töluvert að undanförnu. Hann sagði Grikki ætla að taka ábyrgð á vörnum eigin heimsálfu og sagði að þeir væru á góðri leið með að verja fimm prósentum af landsframleiðslu til varnarmála, sem er krafa sem ríkisstjórn Donalds Trump hefur sett á ríki Evrópu.

Bandaríkjamenn hafa um árabil farið fram á það að ríki Evrópu taki aukna ábyrgð á eigin vörnum en ríkisstjórn Trumps hefur gengið öðrum ríkisstjórnum framar í þeim kröfum og er unnið að því víða um heimsálfuna að auka fjárútlát til varnarmála.

Sjá einnig: Herir Evrópu standa á brauð­fótum

Ráðamenn í Bandaríkjunum, og þar á meðal Rubio, hafa þó lýst yfir vonbrigðum með það að ráðamenn í Evrópu hyggist leggja sérstaka áherslu á að kaupa hergögn frá evrópskum vopnaframleiðendum.

Er það að miklu leyti til komið vegna þess að ráðamenn í Evrópu óttast margir að ekki sé lengur hægt að treysta á það að Bandaríkjamenn muni koma vinum sínum í Evrópu til aðstoðar, eins og Trump hefur ítrekað gefið til kynna.

Forsvarsmenn bandarískra hergagnafyrirtækja hafa reynt að koma til móts við ráðamenn í Evrópu. Meðal annars hafa þeir lagt til að auka framleiðslu á bandarískum hergögnum í Evrópu.

Sjá einnig: Vopnaframleiðendur reyna að koma til móts við Evrópu

Þetta hefur þó ekki dregið nægilega úr ótta Evrópumanna, þar sem margir hafa áhyggjur af því að bandarísk fyrirtæki muni alltaf setja bandarískan herafla í forgang þegar kemur að framleiðslu.

„Vestrið“ á krossgötum

Í ræðu sinni fjallaði Rubio einnig um málefni farandfólks og innflytjenda, sem hefur verið sérstakt áherslumál ríkisstjórnar Trumps bæði hvað varðar Bandaríkin sjálf og Evrópu. Bandaríkjamenn hafa ítrekað gagnrýnt ríki Evrópu fyrir að taka á móti of mörgum innflytjendum.

Rubio sagði að Grikkir ættu að vinna nánar saman að því að draga úr flæði fólks til Evrópu og tengdi hann það við rýrnun hefðbundinna gilda og hnignun grísks samfélags. Það sama ætti við Evrópu í heild og jafnvel Bandaríkin.

„Það þykir í tísku í dag að standa í þeirri trú að upplýst utanríkisstefna felist í því að setja „alþjóðasamfélagið“ ofar eigin þjóð. Og ég held að á þessu sviði höfum við líka margt að læra af mönnum Forn-Grikklands. Þeir vissu að það væri hvorki eigingjarnt né rangt að vera þjóð sinni trúr, né heldur eigingjarnt eða rangt að berjast fyrir því að verja hagsmuni hennar umfram allt annað,“ sagði Rubio í ræðunni.

Hann sagði „Vestrið“ standa á krossgötum. Næsti áratugur muni móta næstu hundrað ár af mannskynssögunni.

„Sú stefna sem við tökum mun marka það hvort Vestrið haldi stöðu sinni í fararbroddi heimsins eða sætti sig við framtíð sem einkennist af stöðnun, undirgefni og hnignun. Við munum annaðhvort velja að grípa til aðgerða núna eða glata möguleikanum á að grípa til aðgerða yfirhöfuð.“

Svipaður tónn og í febrúar

Eins og fram kemur í grein AP-fréttaveitunnar er Rubio af mörgum séður sem mildur málsvari ríkisstjórnar Trumps, miðað við aðra sem henni tilheyra. Hann er líklegur til að etja kappi við JD Vance varaforseta um tilnefningu Repúblikanaflokksins fyrir forsetakosningarnar 2028.

Vance hefur farið mjög hörðum orðum um Evrópu og þá sérstaklega vegna málefna innflytjenda og ýmissa menningarátaka.

Sjá einnig: Húðskammaði ráðamenn í Evrópu

Þetta er þó ekki í fyrsta sinn sem Rubio gagnrýnir ríki Evrópu vegna málefna innflytjenda og í tengslum við meintar takmarkanir á málfrelsi íhaldsmanna í Evrópu. Hann hélt ræðu á öryggisráðstefnu í München í febrúar, þar sem Vance hafði farið hörðum orðum um Evrópu ári áður.

Ræða Rubio var flutt í mildari tónn en einkenndist af sama innihaldinu og ræða Vance.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×