Erlent

Stýrði leyni­þjónustu en nú sakaður um njósnir

Samúel Karl Ólason skrifar
August Hanning er áttræður. Hann er sakaður um að hafa njósnað fyrir tvö erlend ríki en ekki er ljóst hvaða ríki um er að ræða.
August Hanning er áttræður. Hann er sakaður um að hafa njósnað fyrir tvö erlend ríki en ekki er ljóst hvaða ríki um er að ræða. AP/Michael Kappeler, DPA

Fyrrverandi yfirmaður þýsku leyniþjónustunnar BND var handtekinn í morgun en hann er grunaður um njósnir og landráð. August Hanning er sakaður um að hafa verið í samskiptum við leyniþjónustur að minnsta kosti tveggja annarra ríkja og deila með þeim leynilegum upplýsingum í gegnum öryggisráðgjafafyrirtæki sitt.

Hanning stýrði BND, sem er sú leyniþjónusta Þýskalands sem starfar á erlendri grundu, frá 1998 til 2005. Eftir það varð hann ráðherra en undanfarin ár hefur hann stýrt öryggisráðgjafafyrirtæki en auk hans var fyrrverandi starfsmannastjóri hans hjá BND einnig handtekinn.

Sá heitir Manfred D og er sakaður um að hafa deilt um tvö þúsund leynilegum skjölum með Hanning í skiptum fyrir peninga yfir rúmlega tólf ára tímabil, samkvæmt frétt Politico. Hann var áfram starfsmannastjóri BND þar til í mars á þessu ári.

Þessar leynilegu upplýsingar er Hanning sakaður um að hafa notað í greiningu fyrir erlenda leyniþjónustu. Ekki er þó vitað með vissu að greiningin hafi ratað á leiðarenda. Þá er hann sagður hafa átt í nánum samskiptum við starfsmann leyniþjónustu annars ríkis og deilt með honum leynilegum upplýsingum í gegnum árin.

Í yfirlýsingu frá saksóknurum segir að Hanning sé grunaður um njósnir, landráð, söfnunun ríkisleyndarmála og tilraun til landráðs. Manfred D er sakaður um aðstoð við landráð og njósnir.

Fundu skjöl við rannsókn vegna barnaráns

Mál Hanning tengist frægu þýsku sakamáli þar sem þekkt athafnakona sem heitir Christina Block, sem er þekktust fyrir að erfa steikhúsakeðjuna Block House, rændi tveimur yngstu börnum sínum af föður þeirra árið 2023. Þá áttu þau í deilum um forræði yfir börnunum.

Rúmu ári áður en börnunum var rænt munu menn á vegum hennar hafa reynt að ræna börnunum en án árangurs. Rannsakendur komust á snoðir um að Hanning hefði mögulega tengst þeirri mannránstilraun.

Yfirvöld eru sögð hafa komist á snoðir um meintar njósnir hans þegar gerð var húsleit hjá honum í fyrra en þá fundust leynileg skjöl í gagnageymslu á heimili hans. Nýjustu skjölin munu hafa verið frá júní 2022.

Njósnaði ekki fyrir Rússa

Ekki hefur verið gefið upp um hvaða ríki er að ræða en samkvæmt frétt DW hafa þýskir fjölmiðlar eftir heimildarmönnum sínum þar í landi að Rússland sé ekki annað ríkjanna.

BND á sér langa sögu sambærilegra hneykslismála en í gegnum árin hafa margir starfsmenn leyniþjónustunnar verið sakaðir um njósnir. Ástandið hefur á köflum verið svo slæmt að forsvarsmenn annarra leyniþjónusta hafa veigrað sér við því að deila upplýsingum með Þjóðverjum.

Árið 2023 var háttsettur starfsmaður BND ákærður fyrir að deila leynilegum upplýsingum um stríðið í Úkraínu með rússneskum útsendurum. Á sjöunda áratug síðustu aldar kom í ljós að yfirmaður sérstakrar gagnnjósnadeildar gegn Sovétríkjunum stundaði njósnir fyrir rússnesku leyniþjónustuna KGB.

Martin Jäger, núverandi yfirmaður BND, varaði á dögunum þýska þingmenn við því að ríkið stæði frammi fyrir töluverðri ógn frá Rússlandi í formi fjölþáttaógna og er unnið að nýju frumvarpi um auknar valdheimildir leyniþjónustunnar. Mál Hanning þykir því koma upp á sérstaklega viðkvæmum tíma fyrir stofnunina.

Jäger lýsti því yfir í dag að þetta tiltekna mál tengdist á engan hátt áherslum hans varðandi framtíð BND og ætti ekki að hafa áhrif á þær.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×