Skoðun

Grein sál­fræðings um að læra að opna sig

Dávur í Dali skrifar

Maður lærir ýmislegt í sálfræðináminu. Það er líka ýmislegt sem maður lærir fyrst þegar maður er byrjaður að vinna sem sálfræðingur.

Eitt af því er hversu fjölbreyttar ástæður fólk hefur fyrir því að leita til sálfræðings. Út frá náminu mætti auðveldlega fá þá mynd að fólk leiti fyrst og fremst til sálfræðings til að fá hjálp við þunglyndi eða kvíðaröskun, eins og félagskvíða eða fælni. Þegar maður byrjar að vinna sem sálfræðingur sér maður hins vegar fljótt að ástæðurnar eru miklu fjölbreyttari.

Ein ástæða sem ég man ekki eftir að hafa lesið mikið um í kennslubókunum, en mig langar að fjalla aðeins um hér, er þegar fólk leitar til sálfræðings vegna þess að því finnst erfitt að opna sig fyrir öðrum.

Þetta virðist sérstaklega algengt meðal karla, þótt það eigi auðvitað alls ekki eingöngu við um þá. Sumir eiga erfitt með að segja öðrum hvað þeir eru að hugsa eða hvernig þeim líður og sumir eiga jafnvel erfitt með að átta sig sjálfir á því hvað þeir eru að finna.

Það er freistandi að hugsa um þetta sem persónueinkenni, að sumir séu einfaldlega „lokaðir“. En það er líka hægt að líta á þetta sem hæfni sem þróast með æfingu. Til þess að verða betri í að taka eftir eigin tilfinningum, setja þær í orð og deila þeim með öðrum þarf maður að fá tækifæri til að gera það. Það skiptir líka máli hvernig viðbrögð maður fær þegar maður reynir.

Sumir fá ekki mikla æfingu í þessu. Ef maður hefur sjaldan talað við annað fólk um óöryggi, ótta, sorg eða það sem særir mann er ekki skrýtið að það komi ekki alveg náttúrulega þegar maður reynir að gera það. Það getur tekið tíma að finna orðin og maður getur jafnvel verið óviss um hvað maður er að finna.

Stundum sést þetta vel í sálfræðiviðtölum. Ég spyr kannski: „Hvernig hefur þér liðið undanfarið?“ Við þeirri spurningu er auðvelt að gefa svarið sem við erum vön að gefa í daglegu lífi: „Bara vel“ eða „allt í lagi.“ Fyrir þann sem hefur litla reynslu af því að tala um eigin líðan getur hins vegar orðið erfiðara þegar maður situr á móti sálfræðingi sem vill fá nánari lýsingu á því hvernig manni hefur í raun liðið.

Viðkomandi hefur kannski aldrei áður reynt að svara slíkri spurningu öðruvísi en með „bara vel“, „ekki svo vel“ eða einhverju álíka almennu svari. Það getur því verið alveg nýtt að staldra við, beina athyglinni að eigin líðan og reyna að setja hana nánar í orð.

Hjá sumum er þetta allt öðruvísi. Þeir líta á spurninguna sem tækifæri til að staldra aðeins við, hugsa um síðustu daga eða vikur og velta fyrir sér hvernig þeim hefur í raun liðið. Þeir byrja kannski að segja frá, velta hlutunum fyrir sér upphátt og átta sig jafnvel betur á eigin líðan um leið og þeir tala.

Sumir eru svo vanir þessu að þeir gætu auðveldlega varið heilu viðtalinu, jafnvel mörgum viðtölum, í að velta fyrir sér hvernig þeim hefur liðið og hvað hefur verið að gerast innra með þeim, með tiltölulega litlu inngripi frá mér ef ég leyfði samtalinu einfaldlega að þróast þannig.

Munurinn þarf ekki að vera sá að annar hópurinn hafi meira að tala um en hinn. Fólk getur einfaldlega haft mjög mismikla reynslu af því að beina athyglinni að eigin líðan, velta henni fyrir sér og setja hana í orð.

Við lærum m.a. af viðbrögðum annarra

Það skiptir líka máli hvaða reynslu maður hefur af því að opna sig. Sumir hafa fengið óþægileg eða óæskileg viðbrögð þau skipti sem þeir hafa reynt. Viðbrögðin þurfa ekki að hafa verið mjög augljós. Stundum nægir svipur, breyting á tóninum, þögn eða að því sem maður segir sé lítið sinnt til þess að maður verði varari um sig næst. Slík viðbrögð geta haft sérstaklega mikil áhrif þegar þau koma frá manneskju sem maður lítur upp til eða ber mikla virðingu fyrir, ekki síst á mótunarárunum.

Maður lærir líka af því sem maður sér hjá öðrum. Foreldrar eru mikilvægar fyrirmyndir og ef maður sér þá sjaldan tala um eigin líðan, sýna öðrum viðkvæmar hliðar á sér eða leita til annarra þegar þeim líður illa fær maður síður slíka hegðun sem fyrirmynd.

Það sama á við ef maður sér foreldri eða annað nákomið fólk reyna að opna sig en upplifir að það hafi lítið gagn af því eða fái neikvæð viðbrögð. Þannig getur maður lært, án þess að nokkur segi það beinlínis, að það sé betra að halda ákveðnum hlutum fyrir sig.

Þegar athyglin beinist að öðrum

Eitt af því sem getur haft áhrif á hversu auðvelt maður á með að átta sig á eigin líðan og tala um hana er hvert maður hefur vanist því að beina athyglinni.

Sumir læra snemma að beina athyglinni meira að líðan, skapi og þörfum annarra en að eigin líðan og þörfum. Það getur þróast út frá aðstæðum í æsku, á unglingsárum eða snemma á fullorðinsárum. Kannski var einhver nákominn alvarlega veikur og þarfnaðist mikillar umönnunar. Kannski var mikið álag á heimilinu eða skap einhvers hafði mikil áhrif á andrúmsloftið. Eða kannski fékk maður einfaldlega þau skilaboð, beint eða óbeint, að þarfir annarra ættu að ganga fyrir.

Maður getur þá orðið mjög vanur því að fylgjast með hvernig öðrum líður og hvað þeir þurfa. Þessu getur líka fylgt sterk ábyrgðartilfinning gagnvart líðan annarra eða mikil löngun til að geta gert eitthvað til að hjálpa þegar einhver nákominn á erfitt. Slík mynstur eru stundum kölluð meðvirkni, sérstaklega þegar eigin líðan og þarfir fara ítrekað að víkja fyrir líðan og þörfum annarra.

Þetta sést líka stundum þegar ég spyr fólk hvernig því hefur liðið. Viðkomandi byrjar kannski að segja mér frá því sem hefur verið að gerast hjá makanum, börnunum, foreldrunum, vini eða öðrum nákomnum. Það er eins og lýsingin á öllu því sem fólkið í kringum viðkomandi hefur verið að ganga í gegnum eigi um leið að svara spurningunni um hvernig honum sjálfum hefur liðið.

Ég veit þá ýmislegt um það sem hefur verið að gerast í lífi viðkomandi og get oft gert mér einhverja mynd af því hvaða áhrif það hefur haft. En mig langar þar oft enn að fá nánari lýsingu á því hvernig viðkomandi hefur liðið í öllu þessu.

Og stundum reynist það erfitt. Viðkomandi veit kannski að honum hefur ekki liðið vel, en á erfitt með að segja mikið meira en það.

Það er ekki endilega slæmur eiginleiki að beina athyglinni að öðrum. Að vera næmur á líðan annarra og taka tillit til fólks getur verið mikill styrkur. En ef athyglin beinist árum saman fyrst og fremst út á við getur maður óvart fengið minni æfingu í að beina henni inn á við.

Hvað finnst mér um þetta? Hvernig líður mér? Hvað þarf ég? Hvað langar mig?

Ef maður hefur sjaldan þurft eða fengið svigrúm til að velta slíkum spurningum fyrir sér er ekki skrýtið að svörin liggi ekki alltaf fyrir þegar einhver spyr.

Frá „bara vel“ og „ekki svo vel“ yfir í nákvæmari orð

Ein einfaldasta leiðin til að lýsa líðan er að segja að manni líði bara vel eða ekki svo vel, eða að eitthvað hafi verið óþægilegt.

Fyrir suma er tiltölulega auðvelt að gera þennan grófa greinarmun en mun erfiðara að fara lengra. Maður veit kannski að eitthvað var óþægilegt eða að manni leið ekki vel, en á erfitt með að segja nákvæmlega hvað maður fann.

Var ég kvíðinn, sár, vonsvikinn, reiður, skömmustulegur, einmana eða yfirbugaður? Voru kannski fleiri en ein tilfinning til staðar í einu?

„Ég veit það ekki“ getur verið alveg heiðarlegt svar. Ef maður hefur ekki mikla æfingu í að beina athyglinni að eigin líðan og setja hana í orð er ekkert skrýtið að það taki tíma að átta sig á því hvað maður er í raun að finna.

Með æfingu getur þetta orðið auðveldara. Maður getur orðið betri í að taka eftir því sem gerist innra með manni, greina á milli mismunandi tilfinninga og finna nákvæmari orð yfir þær. Það sem áður krafðist mikillar umhugsunar getur smám saman farið að gerast auðveldara og eðlilegra.

Það er eðlilegt að vera varfærinn

Ef maður hefur lært af reynslunni að það geti verið óþægilegt að opna sig er skiljanlegt að maður hugsi sig tvisvar um áður en maður gerir það aftur. Það getur verið skynsamleg aðlögun að því umhverfi sem maður hefur verið í.

Og ákveðin varfærni er góð. Við eigum ekki að segja öllum allt. Það skiptir máli að geta metið hverjum maður treystir, hvað maður vill deila og hvað maður vill halda fyrir sjálfan sig.

Vandinn getur hins vegar orðið þegar maður fer svo langt í hina áttina að maður opnar sig nánast aldrei fyrir neinum.

Það getur orðið einmanalegt að halda öllu fyrir sjálfan sig

Maður getur verið með maka, fjölskyldu og vini í kringum sig en samt upplifað ákveðna fjarlægð. Fólkið í kringum mann þekkir kannski margt um mann en veit lítið um hvað maður óttast, hvað særir mann, hvað maður glímir við eða hvað skiptir mann raunverulega máli.

Náin sambönd byggjast að einhverju leyti á því að við leyfum öðru fólki að sjá hvað er að gerast innra með okkur. Þar fylgir alltaf ákveðin áhætta. Við getum ekki stjórnað því nákvæmlega hvernig annar einstaklingur bregst við. En ef við opnum okkur aldrei fá aðrir heldur lítið tækifæri til að skilja okkur betur.

Markmiðið er því ekki einfaldlega að „opna sig meira“. Það snýst frekar um að læra hvenær maður vill opna sig, um hvað og við hvern. Að geta haldið einhverju fyrir sjálfan sig þegar maður vill það, en líka geta sagt frá því sem skiptir máli þegar maður treystir manneskjunni sem maður er að tala við.

Þegar maður verður betri í þessu getur það opnað dyr að nánari samböndum.

Sálfræðiviðtal getur verið staður til að æfa þetta

Það getur verið erfitt og óþægilegt, jafnvel þegar lífið gengur ágætlega, að byrja að æfa sig í að tala um eigin líðan. Sumir byrja ekki að æfa sig í þessu fyrr en þeir lenda í erfiðu tímabili í lífinu, þegar þeim líður illa og þörfin fyrir að geta opnað sig fyrir öðrum er orðin mikil. Þá getur verið sérstaklega erfitt að þurfa að læra eitthvað nýtt, einmitt þegar maður hefur hvað minnsta orku og mest þörf fyrir að geta nýtt sér það. Þess vegna getur verið gott að æfa sig í að opna sig áður en maður þarf sérstaklega mikið á þeirri hæfni að halda.

Sálfræðiviðtal getur verið einn staður til að æfa þetta. Sumir koma einmitt til sálfræðings vegna þess að þeim finnst erfitt að tala um sjálfa sig eða setja eigin líðan í orð. Erfiðleikarnir við að opna sig geta sjálfir verið hluti af því sem unnið er með í viðtalinu.

Það getur verið ýmislegt sem gerir fólki erfitt fyrir að opna sig. Stundum tengist það skömm, óöryggi eða ótta við hvernig aðrir muni bregðast við. Ástæðurnar eru ekki alltaf augljósar og það getur verið gagnlegt að fá aðstoð sálfræðings við að átta sig betur á þeim.

Að því sögðu er líka alveg eðlilegt að koma til sálfræðings og vera ekki tilbúinn að tala um allt. Það getur verið ýmislegt sem maður vill ekki ræða, eða er ekki tilbúinn að segja frá enn sem komið er, og það er allt í lagi. En með æfingu getur smám saman orðið auðveldara að skilja eigin líðan og setja hana í orð. Það getur hjálpað manni að takast á við erfiðar tilfinningar þegar á reynir, leita stuðnings þegar maður þarf á honum að halda og byggja upp nánari tengsl við fólkið í kringum sig.

Höfundur er sálfræðingur




Skoðun

Sjá meira


×