Lífið

Ice Spice og Millie skelltu sér í pottinn

Áróra L Davíðsdóttir skrifar
Stelpunar nutu sín í pottinum í Hvammsvík.
Stelpunar nutu sín í pottinum í Hvammsvík. Instagram

Tónlistarkonan Ice Spice og leikkonan Millie Bobby Brown nutu sín á Íslandi ef marka má Instagram-færslur stjarnanna. Saman slökuðu þær á í sjóböðunum í Hvammsvík. 

Brown var á ferð um landið með eiginmanni sínum Jake Bon Jovi, en hann er sonur tónlistarmannsins Bon Jovi. Þau heimsóttu meðal annars Skógarfoss á ferð sinni um landið og fóru í hvalaskoðun. 

Parið trúlofaði sig árið 2023 og gengu þau í hjónaband ári seinna. Saman eiga þau tvö börn.Instagram

Báðar gera þær ferðinni skil á Instagram-reikningum sínum.

Millie Bobby Brown er hvað þekktust fyrir leik sinn í Netflix-þáttunum Stranger Things sem nutu mikilla vinsælda. Hún var aðeins tólf ára gömul þegar hún skaust upp á stjörnuhimininn í hlutverki Eleven í þáttunum.

„Finndu fólkið þitt og haltu því nærri þér!,“ skrifar Brown með Instagram-færslunni.Instagram

Þetta er ekki í fyrsta sinn sem Stranger Things-stjarnan heimsækir Ísland en árið 2025 var hún stödd hérlendis við tökur á lokaþætti þáttanna geysivinsælu. 

Saman hafa þær Ice Spice og Brown stungið sér til sunds í sjóböðunum í Hvammsvík í góðra vinkvenna hópi. 

Ice Spice lengst til vinstri og Brown lengst til hægri. Instagram

Greint var frá því á sunnudaginn að IceSpice, sem réttu nafni heitir Isis Naija Gaston, hefði snætt á veitingastaðnum OTO á Hverfisgötu í Reykjavík.

Rapparinn kíkti við á N1.Instagram

Ice Spice er einn þekktasti rapparinn í Bandaríkjunum um þessar mundir en hún er með tæpa tólf milljónir mánaðarlega hlustendur á streymisveitunni Spotify.

Einhver hefur gleymt að segja Ice Spice að það sé stranglega bannað að taka myndir í búningsklefum.Instagram

Smellir hennar á borð við Boys a liar Pt. 2 með tónlistarkonunni PinkPantheress og Princess Diana með rapparanum Nicki Minaj hafa notið mikilla vinsælda. 






Fleiri fréttir

Sjá meira


×


Tarot dagsins

Dragðu spil og sjáðu hvaða spádóm það geymir.