Skoðun

Góð lífs­kjör og öflugt at­vinnu­líf í Fjarðabyggð

Haraldur Líndal Haraldsson skrifar

Ég flutti austur og sé ekki eftir því. Atvinnuöryggi, húsnæði á viðráðanlegu verði og góð þjónusta skipta miklu þegar fólk velur sér stað til að búa á. Að mínu mati eru þetta meðal helstu kosta Fjarðabyggðar.

Ný greining Konráðs S. Guðjónssonar hjá Kontext, sem unnin var fyrir Samband sveitarfélaga á Austurlandi, sýnir sterka stöðu landshlutans hvað varðar atvinnu og húsnæðisverð.

Atvinnuástandið hefur lengi verið gott á Austurlandi. Atvinnuleysi er umtalsvert minna en á landinu öllu. Það hefur verið 2,4% á árinu, samanborið við 4,5% á landsvísu, samkvæmt mælingum Vinnumálastofnunar. Launagreiðslur á íbúa voru jafnframt 8% hærri en að meðaltali á landinu.

Atvinnulífið í Fjarðabyggð er fjölbreytt. Sjávarútvegur, fiskeldi, álframleiðsla og iðnaður vega þar þungt. Hér eru einnig störf í þjónustu, ferðaþjónustu og hjá hinu opinbera. Þessi fjölbreytni skapar tækifæri fyrir fólk með ólíka menntun, reynslu og áhugasvið.

Húsnæðiskostnaður skiptir ekki síður máli. Fasteignaverð á Austurlandi hefur hækkað á síðustu árum en er enn töluvert undir landsmeðaltali. Samkvæmt greiningunni er fermetraverðið 64–73% af landsmeðaltali, eftir tegund húsnæðis. Það getur gert ungu fólki og fjölskyldum auðveldara að eignast húsnæði og koma sér fyrir. Hærri tekjur og lægra íbúðarverð geta því skilað sér í meiri kaupmætti og betri lífskjörum.

Þjónusta við fjölskyldur er annar mikilvægur þáttur. Börn í Fjarðabyggð fá leikskólapláss frá 12 mánaða aldri og engir biðlistar eru eftir plássi. Innan byggðakjarnanna er yfirleitt stutt í skóla, leikskóla, íþróttir og daglega þjónustu. Það getur þýtt minni tíma í skutl og meiri tíma með fjölskyldunni og til frístunda.

Náttúran er aldrei langt undan. Fjöllin, firðirnir og gönguleiðirnar eru hluti af daglegu umhverfi okkar. Hvert byggðarlag hefur sín sérkenni og sína sögu en saman mynda þau öflugt samfélag með fjölbreyttu íþrótta-, menningar- og félagsstarfi.

Framlag Austurlands til þjóðarbúsins er mikið. Vöruútflutningur frá Austurlandi nam um 224 milljörðum króna árið 2025, eða um 20 milljónum króna á mann. Það er tæplega ellefufalt meira en að meðaltali í öðrum landshlutum. Hlutur Austurlands í vöruútflutningi var 25% árið 2025 og hefur verið svipaður síðustu ár, þótt þar búi aðeins um 3% þjóðarinnar.

Tölurnar segja þó ekki alla söguna. Greiningin sýnir sterka stöðu Austurlands hvað varðar atvinnu og húsnæðisverð. Í Fjarðabyggð bætast við góð þjónusta við fjölskyldur og nálægð við náttúruna. Það eru raunverulegir kostir fyrir þá sem vilja búa, starfa og byggja upp framtíð sína í Fjarðabyggð.

Ég flutti austur og sé ekki eftir því. Það hefur margborgað sig.

Höfundur er upplýsingafulltrúi Fjarðabyggðar.




Skoðun

Skoðun

SÁÁ

Ingibergur Þorkelsson skrifar

Sjá meira


×