Skoðun

Lengi býr að fyrstu gerð

Sigurður Páll Jónsson skrifar

Upphaf AA samtakana átti sér stað í Bandaríkjunum árið 1935 og er upphafsmönnum Dr.Bob og Bill W oftast minnst í því sambandi. Þeir áttu við drykkjuvanda að stríða og Bill sem var hlutabréfa miðlari oft lagður inn á sjúkrahús til afvötnunar og þurfti að binda hann niður í rúmið oft á tíðum til að komast í gegnum verstu fráhvörfin. Hann fór í ótal bindindi en byrjaði alltaf að drekka aftur gegn eiginn vilja. Konan hans hélt tryggð við hann og tengdafaðir hans sem var sjúkrahús læknir taldi að honum væri ekki við bjargandi.

Dr.Bob var skurðlæknir sem glimdi við alvarlega áfengissýki og var sjálfur búinn að segja að hann gæti aldrei hætt að drekka. Til að gera langa sögu stutta þá lágu leiðir þeirra saman eftir að Bill hafði samband við Bob og þeir mæltu sér mót heima hjá honum. Þeir sátu langt frammá nótt og ræddu sín á milli þá erfiðleika sem gímdu við að geta ekki hætt að drekka. Þegar birti að degi og þeir höfðu rætt eigin áfengisvandamál alla nóttina og voru sammála um að fylgdi vellíðan, ákváðu þeir að hittast aftur. Þetta er upphaf AA samtakana.AA samtökin voru formlega stofnuð á Íslandi 1954 og hafa vaxið mikið síðan.

Af hverju er ég að rifja þetta upp? Jú það hefur varla farið framhjá neinum að fréttir af starfsmannahaldi og rekstri SÁÁ hafa verið í fréttum undan farnar vikur, og ekki sér til lands enn. Eftir stofnun SÁÁ árið 1977 varð gíðarleg breiting og miklar framfarir í árangri hjá sjúklingum sem leituðu sér hjálpar og fóru í meðferð hjá samtökunum. Sá árangur og þekking sem af þessu varð er ómetanlegur. Aðferð meðferðarinnar og fyrirmynd var af stórum hluta sótt til Bandaríkjana þar sem meðferðir höfðu sýnt góðan árangur. Hluti af þeirri aðferð er sótt til AA samtakana. Vöxtur og virðing SÁÁ samtakana var hraður og 1983 var sjúkrahúsið Vogur tekið til starfa. Þar fer fram afeitrun, greining og fráhvarfsmeðferð undir eftirliti heilbrigðisstarfsfólks. SÁÁ rekur einnig eftirmeðferðastöð á Vík á Kjalarnesi, einnig göngudeildirnar Von í Reykjavík og Hofsbót á Akueyri.

Sjálfur fór ég í gegnum meðferð hjá SÁÁ fyrir rúmum 30 árum og varð strax og er enn heillaður af þessu ,,móteli”. Ég steig inná alþingi fyrst árið 2013 og ræddi áfengis og fíknimál á þeim vettfangi meira og minna næstu átta árin. Á þeim árum fann ég fyrir óþreyju og óánægju yfir ýmsu í sambandi við aðferðir meðferða. Það vantar meiri fagmennsku og sjúkdóms hugtakið var dregið í efa og að áhersla á áföll ættu að vera í fyrirrúmi. Gott og vel, í dag er fagmennskan orðin ríkandi og fjármálin betri, en þá hrinur spilaborgin og tógið sem kom gömlu góðu aðferðafræði meðferðarinnar áfram er allt í ,,SKRÚFUNNI” í dag.

Ég bið þá sem standa í þessari orrahríð að nota þá aðferð sem mér var kennt í meðferð á sínum tíma: þegar eitthvað bjátar á, líttu þá í spegil og vittu hvort hluti af vandamálinu og einnig hluti af lausninni birtist ekki í speglinum!

Höfundur er fyrrverandi alþingismaður og núverandi óvirkur alki.




Skoðun

Skoðun

SÁÁ

Ingibergur Þorkelsson skrifar

Sjá meira


×