Innlent

Ekki fleiri til­kynnt kyn­ferðis­brot í fimm ár

Silja Rún Sigurbjörnsdóttir skrifar
Brotum gegn börnum hefur fjölgað töluvert.
Brotum gegn börnum hefur fjölgað töluvert. Vísir/Vilhelm

Tæplega 350 kynferðisbrot voru tilkynnt til lögreglu á fyrstu sex mánuðum ársins. Þau hafa ekki verið fleiri á fyrri árshelmingi frá árinu 2021. 

Tilkynnt brot voru 346 talsins og er það að meðaltali tvær tilkynningar á dag eða 58 tilkynningar á mánuði. Það eru um níu tilkynningar á hverja tíu þúsund íbúa sem er svipað og árið 2022. Þetta kemur fram í nýbirtri tölfræði frá lögreglunni.

Tæplega helmingur brotaþola voru börn í öllum kynferðisbrotunum en einungis tíu prósent grunaðra voru undir átján ára. Konur voru 85 prósent brotaþola en þegar einungis er litið til nauðgana voru konur 93 prósent brotaþola. 

„Hlutföllin snúast við þegar kemur að kyni grunaðra, þar voru 92% karlkyns,“ segir í tilkynningunni.

Töluvert fleiri brot gegn börnum

Tilkynnt var um 103 nauðganir til lögreglu, þar af 81 sem átti sér stað á tímabilinu. Fjöldinn er nánast óbreyttur frá árinu 2025 en fjórtán prósentum fleiri en að meðaltali á sama tíma síðustu þrjú ár þar á undan.

„Lögreglan skráir bæði hvenær kynferðisbrotið átti sér stað og hvenær það var tilkynnt til lögreglu, þar sem í hluta mála líður langur tími á milli,“ segir í tilkynningunni.

Þá fjölgaði tilkynningum um kynferðislega áreitni og stafræn kynferðisbrot um sextíu prósent milli ára og hafa tilkynningarnar ekki verið fleiri á fyrri árshelmingi. Alls var tilkynnt um 72 kynferðisbrot gegn börnum sem er sextán prósenta fjölgun milli ára.

„Í ljósi fjölgunar stafrænna kynferðisbrota og hás hlutfalls barna meðal brotaþola munu ríkislögreglustjóri og lögregluembættin í samstarfi við fjölda stofnana og samtaka standa fyrir vitundarvakningu um stafrænt ofbeldi meðal barna og ungmenna í október.“

Tilkynningum um vændi fjölgaði einnig töluvert, úr 21 tilkynningu í 33 sem gerir 57 prósenta fjölgun. Brotin voru að meðaltali fjórtán árin 2023 - 2025.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×