Paramount og Warner Bros. heyra brátt sögunni til Samúel Karl Ólason skrifar 2. október 2026 16:27 Warner Bros og Paramount hafa verið mjög fyrirferðarmikil í kvikmynda- og sjónvarpsgeiranum um árabil. EPA David Ellison, forstjóri Paramount Skydance segir að þegar kaupin á Warner Bros. Discovery ganga í gegn, muni fyrirtækið fá nafnið Skydance. Þannig munu vörumerkin Paramount og Warner heyra sögunni til, eftir að hafa verið áhrifamikil vörumerki í Hollywood í marga áratugi.
Þetta kemur fram í færslu Ellison á samfélagsmiðlum, þar sem hann segir frá breytingunni sem hann ætlar að gera og birtir myndband þar sem búið er að taka saman senur úr mörgum af helstu kvikmyndum fyrirtækjanna sem eru að sameinast og sjónvarpsefni þeirra. Færslan hefst á orðunum: „Það sem einu sinni var tindurinn er nú eingöngu upphafið.“ Í færslunni segir Ellison, sem er sonur auðjöfursins Larry Ellison, að með því að breyta nafninu sé ekki verið að endurskrifa söguna, það sé verið að betrumbæta fyrirtækin og bæta rekstur kvikmynda- og tökuvera þeirra. David Ellison og eiginkona hans við Hvíta húsið á dögunum.AP/Carolyn Kaster „Við völdum þetta nafn af nokkum mikilvægum ástæðum,“ segir Ellison. Hann segir að markmiðið hafi fyrst og fremst verið að varðveita hvað gerði þessi kvikmyndafyrirtæki svo táknræn. Haldið yrði í gildi fyrirtækjanna og reynt að tryggja að annað muni ekki skyggja á hitt þegar þau verða komin undir sama hatt. „Við höfum stór markmið fyrir Skydance og ætlum að sækja þau af ástríðu, hugmyndaauðgi og vilja til að taka skynsamlega áhættu.“ Þá segir Ellison að i senn verði bæði fyrirtækin heiðruð og að þau muni fá áfram tækifæri til að vaxa. „Við gætum ekki verið spenntari fyrir því sem við munum skapa saman.“ What once was the peak, is now just the beginning.Paramount and Warner Bros. shaped over a century of culture. By combining them, we aren't rewriting history — we're equipping these iconic studios with a more powerful engine. Together, we are Skydance: a creative-first home for… pic.twitter.com/uInLRY3IrE— David Ellison (@ellisonskydance) October 2, 2026 Verður risi á markaðnum Yfirtaka Paramount á Warner hefur staðið yfir um nokkuð skeið og hafa Ellison og félagar þurft að komast gegnum ýmsa tálma á þessu ferli. Stjórn Warner vildi upprunalega frekar selja fyrirtækið til Netfliix og þá hafa dómstólar einnig staðið í vegi samrunans. Kaup Paramount Skydance á Warner Bros Discovery hljóða upp á hundrað og ellefu milljarða dala eða um fjórtán billjónir íslenskra króna. Með yfirtöku á Warner Bros verður Paramount eitt stærsta aflið í Hollywood og bætir fréttastöðinni CNN, sjónvarpsstöðvunum HBO, TBS, TNT, TCM, auk kvikmyndaveranna DC Studios og New Line Cinema við núverandi eignasafn sitt. Þar á meðal eru Paramount Pictures, CBS, Showtime og Nickelodeon. Sjá einnig: Lofar að koma böndum á CNN Í síðustu viku var svo gert samkomulag í dómsáli á annars tug ríkissakóknara í Bandaríkjunum vegna samrunans. Þá samþykkti Ellison að fjárfesta ríflega í innlendri framleiðslu á næstu fimm árum og að fjármagan þjálfunarnámskeið innan kvikmynda- og sjónvarpsgeirans.
Hollywood Bíó og sjónvarp Streymisveitur Bandaríkin Tengdar fréttir Dómari ýtir á pásu í yfirtökuferlinu Samruni Paramount-Skydance og Warner Bros Discovery hefur verið settur á bið í tvær vikur samkvæmt úrskurði alríkisdómara í Bandaríkjunum. Ástæðan er málsókn tólf ríkissaksóknara sem vilja koma í veg fyrir hann. 21. júlí 2026 15:35 Samruni Paramount og Warner Bros samþykktur Kaup Paramount á Warner Bros hafa verið samþykkt af dómsmálaráðuneyti Bandaríkjanna en salan hefur verið umdeild, meðal annars vegna tengsla forstjóra Paramount og Donalds Trump forseta. Þrátt fyrir samþykkið eru kaupin ekki frágengin og enn er mögulegt að ríki höfði mál til að stöðva söluna. 13. júní 2026 08:55 Mótmæla samruna Paramount og Warner Bros Emma Thompson, Pedro Pascal, Jane Fonda og Joaquin Phoenix eru meðal þúsund starfsmanna innan Hollywood sem undirritað hafa opið bréf til að mótmæla samruna Paramount og Warner Bros. Discovery. 13. apríl 2026 22:25 Paramount sigrar Netflix í baráttunni um Warner Bros. Forsvarsmenn Netflix hafa ákveðið að segja þetta gott og ætla ekki að bæta tilboð félagsins í hluta Warner Bros. Discovery, eftir að stjórn WBD tilkynnti í kvöld að nýtt kauptilboð frá Paramount Skydance væri betra en tilboð Netflix sem stjórnin hafði áður samþykkt. 27. febrúar 2026 00:06 Mest lesið Enn eitt gjaldþrot Helga: Ekkert í boði í Veislunni Viðskipti innlent Fréttamaður missti af strætónum til baka Neytendur Kaupir Malbiksstöðina á fimm milljarða Viðskipti innlent Þegar svona sprengja springur vill allur vinnustaðurinn „fá allt á hreint“ Atvinnulíf Borga hálfan milljarð í viðbót fyrir indverskt félag Viðskipti innlent 181 starfsmanni sagt upp í sex hópuppsögnum Viðskipti innlent „Hlutir sem við vorum ekki sammála um“ Viðskipti innlent Gapti þegar hún sá heimilisbókhaldið hjá Röggu nagla Neytendur Tuttugu sagt upp í fiskvinnslu í Reykjanesbæ Viðskipti innlent Klíníkin sótti 300 milljónir króna Viðskipti innlent Fleiri fréttir Paramount og Warner Bros. heyra brátt sögunni til G7 setja hundrað milljón tunnur á markaðinn Olíuflæðið nálgast fyrra horf en verð lækkar ekki OpenAI hættir við að gefa út nýtt „svikult“ líkan Japanskir stýrivextir ekki eins háir í þrjátíu ár Hækkuðu stýrivexti í Bandaríkjunum í fyrsta skipti í þrjú ár Olíubirgðir að klárast og krísa líkleg Ákall gervigreindarrisa: Eina sem gervigreindin þurfi sé „sterkur og snjall forseti“ Novo hættir að vera Nordisk Opinbera sinn fyrsta langloku-iPhone og boða verðhækkanir Útlit fyrir lökustu vínframleiðslu í tæp sjötíu ár Greiða 4,3 milljarða vegna sölu persónuupplýsinga ChatGPT virkar á ný Flytja gull frá Bandaríkjunum og Kanada af öryggisástæðum Setja gjald á hraðtískuvörur Apple fær nýjan forstjóra Vilja skapa hvata til að beina sparnaði Evrópubúa í fjárfestingar Sjá meira
Dómari ýtir á pásu í yfirtökuferlinu Samruni Paramount-Skydance og Warner Bros Discovery hefur verið settur á bið í tvær vikur samkvæmt úrskurði alríkisdómara í Bandaríkjunum. Ástæðan er málsókn tólf ríkissaksóknara sem vilja koma í veg fyrir hann. 21. júlí 2026 15:35
Samruni Paramount og Warner Bros samþykktur Kaup Paramount á Warner Bros hafa verið samþykkt af dómsmálaráðuneyti Bandaríkjanna en salan hefur verið umdeild, meðal annars vegna tengsla forstjóra Paramount og Donalds Trump forseta. Þrátt fyrir samþykkið eru kaupin ekki frágengin og enn er mögulegt að ríki höfði mál til að stöðva söluna. 13. júní 2026 08:55
Mótmæla samruna Paramount og Warner Bros Emma Thompson, Pedro Pascal, Jane Fonda og Joaquin Phoenix eru meðal þúsund starfsmanna innan Hollywood sem undirritað hafa opið bréf til að mótmæla samruna Paramount og Warner Bros. Discovery. 13. apríl 2026 22:25
Paramount sigrar Netflix í baráttunni um Warner Bros. Forsvarsmenn Netflix hafa ákveðið að segja þetta gott og ætla ekki að bæta tilboð félagsins í hluta Warner Bros. Discovery, eftir að stjórn WBD tilkynnti í kvöld að nýtt kauptilboð frá Paramount Skydance væri betra en tilboð Netflix sem stjórnin hafði áður samþykkt. 27. febrúar 2026 00:06