Lét ákærða vita af andlátinu: „Hann var í miklu uppnámi“ Silja Rún Sigurbjörnsdóttir skrifar 1. október 2026 11:33 Georgios Ntentes sagði sína sögu fyrir dómara á þriðjudag. Hann hefur ekki verið viðstaddur aðalmeðferðina síðan. Vísir/Anton Brink Georgios Ntentes, sem er ákærður fyrir morðið á Edilsson Martin Zingara á Kársnesi í nóvember 2025, var sagður hafa verið í uppnámi þegar vitni við aðalmeðferð málsins sagði honum frá andlátinu. Hinn látni hafði neytt kókaíns áður en hann lést.
Aðalmeðferð í málinu hófst á þriðjudag og hélt vitnaleiðsla áfram í dag. Ntentes hefur þegar gefið skýrslu fyrir dómi auk þess sem hann hefur sætt gæsluvarðahaldi frá því í desember 2025. Sjá nánar: Manndráp á Skjólbraut í Kópavogi Vinkona Ntentes og Zingara gaf vitni fyrir dómi þar sem fyrrverandi kærasti hennar var vinur þeirra beggja. Kærastinn og Zingara hafi verið æskuvinir en síðan flosnað upp úr vinskapnum. „Ég veit ekki hvort það hafi eitthvað komið upp á en þetta var ástæðan fyrir því að það flosnaði upp úr vinskapnum, það var ekki að ganga þetta viðskiptasamband,“ sagði hún. Hún bætti því við að fyrrverandi kærastinn hefði skuldað Zingara sjálfum milljónir króna og öðrum „hættulegri mönnum“. Zingara hafði haft samband við hana og greint frá skuldinni ásamt fíkniefnaneyslu þáverandi kærasta hennar og varð það til þess að sambandinu lauk. Fyrrverandi kærastinn hafi síðan látið vitnið vita af andláti Zingara og dögum síðar, þann 2. desember, hafi hún fundið sig kvadda til þess að láta Ntentes vita af andlátinu þar sem Zingara og Ntentes hefðu verið góðir vinir. Hún hringdi í Ntentes sem hafi við upphaf símtalsins verið „mjög venjulegur“. „Svo segi ég honum að Eddie hafi dáið og hann var í miklu uppnámi,“ sagði vitnið. Lögreglumaðurinn sem sótti Ntentes á heimili hans gaf einnig skýrslu en þá var hann grunaður um fíkniefnamisferli en ekki manndráp. Ntentes hafi verið mjög rólegur og komið með þeim upp á lögreglustöð. Lögreglan keypti nýja skó Skór Ntentes hafa verið töluvert til umræðu við aðalmeðferðina. Tvenns konar skóför fundust á vettvangi með blóði á og sást Ntentes klæðast tveimur mismunandi skópörum á eftirlitsmyndavélum umrætt kvöld, þann 28. nóvember 2025. Annað skóparið, svartir Adidas-skór, var handlagt á heimili hans og taldi rannsóknarlögreglumaðurinn mynstur skófars skóparsins vera með mjög svipuðum hætti og skófarið sem fannst á vettvangi. Hins vegar fannst aldrei hitt skóparið, hvítir Nike-skór. Við skýrslutöku í gær sagði einn lögreglumannanna að Ntentes hefði verið misvísandi um hvað varð um skóna. Vegna þessa festi lögreglan kaup á skópari sem hún taldi vera sömu skór og ákærði klæddist. „Það eru veruleg líkindi með stærð og mynstri,“ sagði lögreglumaðurinn en játaði því að skóstærðin væri ef til vill ekki nákvæmlega rétt. Leiða má til lykta að svo mikil áhersla sé lögð á skópörin svo hægt sé að ráða úr hvort að Ntentes hafi í raun verið viðstaddur umrætt kvöld. Blóð fannst á sólum skónna. Ntentes sjálfur sagði að hann hefði farið einungis einu sinni á heimili Zingara þetta kvöld. Saman hafi þeir neytt kókaíns. Lyfjafræðingur staðfesti við dóm skýrslu sína sem leiddi í ljós að Zingara hafi neytt kókaíns fyrir andlát sitt.
Manndráp á Skjólbraut í Kópavogi Dómsmál Kópavogur Mest lesið Söknuðu nærgætni og umhyggju eftir háska á Ibiza Innlent „Vitum ekki hundrað prósent hvað er í þessu“ Innlent „Ég er bara ótrúlega leiður yfir þessu“ Innlent Gerðu stutt hlé á sprengingunum en séu enn á áætlun og verði búin í lok október Innlent Á spítala eftir misheppnaða aftöku Erlent Valgerður réttir fram sáttahönd Innlent Tilkynnt um ölvaðan flugmann Innlent Flutningabíll valt á Þverárfjallsvegi sem er lokaður Innlent Nú er hægt að taka Strætó alla leið að flugstöðinni Innlent Eldgos áfram líklegasta sviðsmyndin en óljóst hvenær það yrði Innlent Fleiri fréttir Fjórir í gæsluvarðhald eftir hraðsendingu frá Þýskalandi Ekkert svigrúm í tengslum við kjarasamninga og tvísýnt með framhaldið Lét ákærða vita af andlátinu: „Hann var í miklu uppnámi“ „Vitum ekki hundrað prósent hvað er í þessu“ Flutningabíll valt á Þverárfjallsvegi sem er lokaður Lægðin grynnist í dag en von á annarri Bíl ekið á ljósastaur Söknuðu nærgætni og umhyggju eftir háska á Ibiza „Ég er bara ótrúlega leiður yfir þessu“ Gerðu stutt hlé á sprengingunum en séu enn á áætlun og verði búin í lok október Eldgos áfram líklegasta sviðsmyndin en óljóst hvenær það yrði ESA geti ekki beðið endalaust Valgerður réttir fram sáttahönd Vill að Daði vísi til þess sem hún á að hafa sagt Tilkynnt um ölvaðan flugmann Brunavörnum hafi verið verulega áfátt Konan sem lögreglan lýsti eftir er fundin Nú er hægt að taka Strætó alla leið að flugstöðinni Öllum heilbrigðisfulltrúum landsins sagt upp Gera alvarlegar athugasemdir við málflutning Daða Skoðar uppfærslu í 36 sæta rafflugvél Neysla geðrofs-, tauga- og ofnæmislyfja stóraukist Dæmdur fyrir manndráp af gáleysi við Vík Innan við helmingur karla vill refsingar fyrir vændiskaup Árásin rannsökuð sem tilraun til manndráps Bein útsending: Hvernig birtast menntarannsóknir í opinberri umræðu? „Einn aðili sem hefur til þessa skilað auðu“ Telur ESA falla frá málsókn ef Alþingi samþykkir frumvarpið Starfsmaður Landsnets fluttur erlendis á sjúkrahús Tvöfalda makrílráðgjöf Sjá meira