Handbolti

Guð­jón Valur hafði betur gegn Arnóri

Aron Guðmundsson skrifar
Guðjón Valur Sigurðsson, þjálfari Gummerbach
Guðjón Valur Sigurðsson, þjálfari Gummerbach Getty/Ronny Hartmann

Lærisveinar Guðjóns Vals Sigurðssonar í liði Gummersbach höfðu betur gegn liði Bergischer sem Arnór Þór Gunnarsson þjálfar þegar liðin mættust í þýsku úrvalsdeildinni í handbolta í dag. Lokatölur 38-38 sigur Gummersbach. 

Jafnræði var með liðunum fyrstu mínútur leiksins en svo tók lið Gummersbach öll völd á vellinum og leiddi með sjö mörkum í hálfleik 21-14. 

Forystunni hélt liðið út leikinn en svo fór að Gummersbach fór með átta marka sigur af hólmi 38-30.

Garðar Ingi Sindrason, sem gekk í raðir Gummersbach frá FH nýverið, skoraði fyrsta mark sitt í þýsku úrvalsdeildinni í dag. Elliði Snær Vignisson skoraði einnig eitt mark í liði Gummersbach og þá var Teitur Örn Einarsson með tvö mörk. 

Með sigrinum færist Gummersbach upp í sjöunda sæti þýsku úrvalsdeildarinnar. Þar er liðið með sjö stig eftir fyrstu sex leiki sína. 




Fleiri fréttir

Sjá meira


×