Handbolti

Baldur Fritz marka­hæstur í sigri Kristianstad

Aron Guðmundsson skrifar
Baldur Fritz sækir í átt að marki í leik með Kristianstad.
Baldur Fritz sækir í átt að marki í leik með Kristianstad. Mynd: Kristianstad

Baldur Fritz Bjarnason var markahæstur í liði Kristianstad sem vann fimm marka sigur, 33-28, á Önnereds HK í sænsku úrvalsdeildinni í handbolta í dag.

Baldur skoraði sex marka Kristianstad og gaf eina stoðsendingu í nokkuð jöfnum leik þar sem að sænsku meistararnir voru þó ávallt einu skrefi á undan. 

Einar Bragi Aðalsteinsson, sem skoraði sex mörk í fyrstu umferð deildarinnar, var með tvö mörk og tvær stoðsendingar í dag og Andri Erlingsson skoraði tvö mörk og gaf eina stoðsendingu. 

Íslendingarnir drjúgir í meistaraliðinu sem er með fullt hús stiga eftir fyrstu tvær umferðir deildarinnar.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×