Ölvunarakstur ungmenna nálgast sögulegt hámark Sunna Sæmundsdóttir skrifar 18. september 2026 14:00 Um fimmtungur ungmenna á aldrinum 18 - 24 ára viðurkennir að hafa ekið eftir að hafa drukkið fleiri en einn áfengan drykk. VÍSIR/GETTY Sífellt fleiri ungmenni viðurkenna ölvunarakstur í viðhorfskönnun Samgöngustofu og hlutfall þeirra sem segjast hafa ekið eftir að hafa fengið sér fleiri en einn drykk nálgast sögulegt hámark. Sérfræðingur segir þróunina áhyggjuefni og telur þörf á átaki.
Samgöngustofa gerir árlega viðhorfskönnun meðal ökumanna þar sem fólk er annars vegar spurt hvort það hafi ekið eftir að minnsta kosti einn drykk og hins vegar fleiri drykki. Dökk mynd teiknast upp þegar horft er til ungmenna á aldrinum átján til tuttugu og fjögurra ára. Í fyrra játaði nær þriðjungur þeirra, eða tuttugu og níu prósent, að hafa ekið eftir að minnsta kosti einn drykk og fimmtungur, eða tuttugu og eitt prósent, sagðist hafa ekið eftir fleiri drykki. Hlutfallið í báðum flokkum hefur farið hækkandi á allra síðustu árum. Hafa ekið eftir a.m.k. einn drykk Hafa ekið eftir meira en einn drykk Gunnar Geir Gunnarsson, deildarstjóri öryggis- og fræðsludeildar Samgöngustofu, segir þróunina áhyggjuefni. „Við höfum tekið eftir því að ölvunarakstur og bara áfengisdrykkja ungs fólks hafi verið á undanhaldi sem betur fer. En eftir faraldurinn hefur þetta tekið kipp upp á við og við stefnum í eitthvað sögulegt hámark, sérstaklega þegar við skoðum þá sem aka eftir að hafa fengið sér meira en einn drykk,“ segir Gunnar. „Hjá sumum er einn drykkur einhver þröskuldur, sem er samt sem áður ólöglegt, en þeim sem aka eftir meira en einn, sem geta verið tveir og geta verið tuttugu drykkir, fer fjölgandi og við höfum sjaldan séð jafn háa tölu nú.“ Gunnar Geir Gunnarsson, deildarstjóri öryggis- og fræðsludeildar Samgöngustofu.Vísir/Einar Hlutfall þeirra sem viðurkenna að hafa ekið eftir fleiri en einn drykk fór hæst upp í tuttugu og þrjú prósent árið 2012 og er því nánast á pari í síðustu könnun. Gunnar telur ástæðu til þess að bregðast við. „Það styttist í næsta átak hvað þetta varðar sýnist mér,“ segir hann. „Við erum alltaf að bregðast við öllu sem við sjáum bæði í slysatölum og þessum könnunum. Farsíminn er búinn að vera svolítið áberandi undanfarið, einnig beltanoktun og hraðaksturinn er það allra síðasta sem við höfum þurft að taka á og erum að vinna í. En ætli þetta sé ekki bara næst í röðinni,“ segir Gunnar. Í næstu viku stendur Samgöngustofa fyrir umferðarþinginu Ungt fólk og umferðin þar sem farið verður yfir þessa tölfræði og önnur mál sem tengjast ungmennum og umferðaröryggi.
Umferðaröryggi Umferð Áfengi Mest lesið Tók reiðiskast í beinni og snerist gegn bandamönnum sínum Erlent Draumur Demókrata að rætast Erlent Sýknaður vegna manndráps á Skjólbraut Innlent Dragi uppsagnirnar til baka Innlent Trump hafi nú engu að tapa Erlent Sögulegir sigrar í Bandaríkjunum Erlent Sigraði þrátt fyrir peningaflóð og svik á lokametrunum Erlent Þreytast ekki á að tuða yfir veginum Innlent Feðgin felldu tár yfir reynslu af meintum eltihrelli Innlent Hækka framfærsluskilyrði innflytjenda verulega Innlent Fleiri fréttir Lögreglumenn fari huldu höfði af ótta við ofbeldi Forvitinn minnihluti styggir bæjarstjórn: „Sláandi tölfræði“ Sýknaður vegna manndráps á Skjólbraut Miðflokkurinn bætir við sig fylgi Skoða fæðingarorlofsmálin Dragi uppsagnirnar til baka Þreytast ekki á að tuða yfir veginum Þrír handteknir fyrir rán Telur uppsagnir geta leitt til kostnaðar seinna meir Hækka framfærsluskilyrði innflytjenda verulega Nemandi nýtti sér öryggisbrest og reyndi að breyta einkunum annarra Feðgin felldu tár yfir reynslu af meintum eltihrelli „Rangfærslur og jafnvel hreinar lygar“ Lögregla telur sig komna með „þokkalega skýra mynd“ Barði barn en málið fyrndist Bárust skrýtin skilaboð þegar sambandinu lauk „Fræða en ekki hræða“ „Það er öllum ljóst að hann hefur frekar verið þeirra megin“ Fullyrða að Daði Már hafi logið að þinginu „Hvernig getur svona klikkuð manneskja ekki ákveðið að gera neitt meira?“ Kosningar í Bandaríkjunum og utanríkisráðherra ræðir Rússa Skipaður formaður 6. áfanga rammaáætlunar Reikna með þrettán milljarða afgangi á næsta ári Fluttur með björgunarskipi þegar þyrlan gat ekki lent vegna þoku Kynntu fjárhagsáætlun borgarinnar Kolbeinsey lifir enn þrátt fyrir spádóma um annað Játaði að hafa makað saur á hurðarhúna Kynntu verkefnið Verum viðbúin „Ekki bíða eftir fyrsta snjónum“ Rússar hnýta í Þorgerði Katrínu vegna ummæla um skrif Heimis Más Sjá meira