Neytendur

Bensín­lítrinn kosti 452 krónur fyrir eyðslu­minni bíla

Bjarki Sigurðsson skrifar
Ökumenn sparneytnari bíla greiða himinhátt verð fyrir eldsneytislítrann miðað við útreikninga Visku.
Ökumenn sparneytnari bíla greiða himinhátt verð fyrir eldsneytislítrann miðað við útreikninga Visku. Vísir/Vilhelm

Ökumenn eyðsluminni bíla greiða um 452 krónur fyrir bensínlítrann og 486 krónur fyrir dísillítrann á næsta ári að teknu tilliti til kílómetragjalds miðað við útreikninga stéttarfélagsins Visku. Félagið krefst þess að hækkun krónutölugjalda og kílómetragjalds verði takmörkuð við tvö og hálft prósent. 

Í fjárlagafrumvarpi ríkisstjórnar Kristrúnar Frostadóttur fyrir 2027 er gert ráð fyrir að kílómetragjald verði hækkað um 15,9 prósent. Í dag greiða ökumenn flestra ökutækja 6,95 krónur fyrir hvern ekinn kílómetra og verður gjaldið því um 8,1 krónur eftir áramót. Ökumenn ökutækja þyngri en 3.500 kíló greiða svo enn hærra gjald sem fer stigmagnandi eftir hækkandi þyngd. 

Þegar kílómetragjaldið var innleitt um síðustu áramót lækkaði verð neytenda á dælu umtalsvert. Til að mynda kostaði lítrinn af bensíni 308,5 krónur á dælu hjá Orkunni 31. desember 2025 og 1. janúar 2026 kostaði lítrinn 212 krónur. Neytendum birtist þannig lækkun á dælu um 96,5 krónur. Hins vegar hóf ríkið þá að rukka gjald fyrir hvern ekinn kílómetra í staðinn og eldsneytið því ekki endilega mikið ódýrara. 

Sparneytnari bílar greiða meira

Stéttarfélagið Viska bar kílómetragjaldskerfið saman við eldra kerfi eldsneytisskatta og umreiknaði það í jafngildi skatts á hvern lítra eldsneytis. Því sparneytnari sem bíllinn er, því hærri upphæð greiðir ökumaður fyrir hvern tank. 

Reiknað var með að flestir bílar eyði á bilinu fjórum til tólf lítrum á hundraðið. Þeir bílar sem eyða tólf lítrum, það er að segja eyðslumeiri bílar, greiða á næsta ári, þegar kílómetragjald hefur verið hækkað, 317 krónur fyrir bensínlítrann og 352 krónur fyrir dísillítrann. Einnig var tekið tillit til gengisþróunar og núverandi heimsmarkaðsverðs.

Dýrasti lítri Evrópu

Eyðsluminni bílar greiða þó umtalsvert meira fyrir lítrann, 452 krónur fyrir bensínlítrann og 486 krónur fyrir dísillítrann. Bensínlítrinn er aðeins dýrari í Hong Kong þar sem neytendur borga 511 krónur. Norðmenn greiða 378 krónur, Danir 357 krónur og í Finnlandi kostar lítrinn 309 krónur. 

„Þyngsti skatturinn á heimilin um þessar mundir er verðbólgan og í því ljósi telur Viska það hagstjórnarlegan afleik að verðtryggja krónutölugjöld og hækka kílómetragjaldið um 15,9%. Áhrifin felast ekki aðeins í beinu framlagi þessara hækkana til verðbólgu heldur setja hækkanirnar fordæmi fyrir atvinnulífið og næra verðbólguvæntingar. Ríkið getur ekki ætlast til verðstöðugleika af atvinnulífinu á sama tíma og það verðtryggir eigin gjaldskrár,“ segir í greiningu Visku. 

Leggja til mótvægisaðgerðir

Stéttarfélagið krefst þess að hækkun krónutölugjalda og kílómetragjalds verði takmörkuð við 2,5 prósenta verðbólgumarkmið Seðlabankans. 

„Ríkisstjórnin getur fjármagnað tekjutapið að hluta með eftirfarandi fimm aðgerðum sem hvorki fela í sér aukinn halla né koma niður á grunnþjónustu. Þannig má halda fast í markmiðið um hallalaus fjárlög án þess að ríkið sjálft ýti undir verðbólgu eða auki enn frekar álögur á vinnandi fólk,“ segir í greiningunni. 

Þá eru lagðar fram fimm mótvægisaðgerðir sem skoða má á myndinni hér fyrir neðan. 






Fleiri fréttir

Sjá meira


×