Meðaltalið borgar ekki húsaleiguna Finnbjörn A. Hermannsson skrifar 15. september 2026 10:31 Laun hafa hækkað og meðaltölin líta ágætlega út. Það er freistandi að líta á aukinn kaupmátt sem sönnun þess að kjarabæturnar hafi skilað sér jafnt til allra. Það hafa þær ekki gert. Meðaltalið segir lítið um hverjir hafa raunverulega notið kjarabótanna og hverjir hafa setið eftir. Bak við meðaltölin og reiknikúnstirnar er fólk. Það vinnur fullan vinnudag en býr við þröngan fjárhag og lítið svigrúm þegar verðlag og húsnæðiskostnaður hækka. Þar er láglaunafólk, einstæðir foreldrar, innflytjendur og leigjendur sem verja stærstum hluta ráðstöfunartekna sinna í húsnæði og aðrar nauðsynjar. Þess vegna er ekki nóg að segja að kaupmáttur Íslendinga hafi aukist. Það verður að spyrja hverjir hafi raunverulega notið þeirrar aukningar og hvað sé eftir af henni þegar húsaleigan, maturinn og aðrir reikningar hafa verið greiddir. Kannanir sýna að tæpur þriðjungur félagsfólks ASÍ og BSRB nær ekki endum saman. Innflytjendur og einstæðir foreldrar standa sérstaklega illa. Þeir sem standa verst eru jafnframt oftar á leigumarkaði og húsnæði, matur og samgöngur vega þyngra í útgjöldum þeirra. Hverjir fengu kjarabæturnar? Kjarasamningarnir frá 2024 voru gerðir með skýru markmiði. Launafólk á almennum vinnumarkaði gekk til hóflegra langtímasamninga til þess að leggja sitt af mörkum til að ná niður verðbólgu og vöxtum. Við tókum þá ákvörðun af ábyrgð og lögðum áherslu á að lægri laun fengju hlutfallslega meiri hækkun. Síðan hafa laun hins vegar þróast með mjög ólíkum hætti. Á meðan stórir hópar launafólks hafa í meginatriðum búið við samningsbundnar hækkanir hefur orðið launaskrið annars staðar á vinnumarkaðnum. Fólk með sterka einstaklingsbundna samningsstöðu hefur getað sótt meiri hækkanir og ýmsar stéttir hafa fengið sérstakar kjarabætur. Þannig hafa læknar fengið verulegar breytingar á sínum kjörum og kennarar sömuleiðis. Ég hef ekkert við það að athuga. Þvert á móti. Launafólk á að sækja fram þegar færi gefst. En þetta verður að hafa í huga þegar meðaltöl um launaþróun og kaupmátt eru lögð á borðið. Hækkun á launum læknis hækkar meðaltalið. Hún hækkar ekki laun verkamannsins. Launaskrið hjá sérfræðingi á einkamarkaði birtist í meðaltalinu en skilar sér ekki sjálfkrafa til fólksins sem er á taxta. En kaupmáttur ræðst ekki af launaþróuninni einni. Verðlag og framfærslukostnaður skipta ekki síður máli. Verðbólgan mælist nú 5,6%. kjarasamningarnir voru gerðir með það að markmiði að skapa skilyrði fyrir hjöðnun verðbólgu og lækkun vaxta. Bresti verðlagsforsendan og náist ekki samkomulag um viðbrögð opnast heimild til að segja samningunum upp. Og hún brast. Ábyrgðin á stöðugleikanum verður ekki lögð aftur og aftur á sama fólkið. Launafólk á almennum vinnumarkaði stóð við sinn hluta samkomulagsins. Verði verðbólgan áfram þrálát verður ekki hægt að bregðast við með því einu að biðja þetta sama fólk um meiri þolinmæði. Það hefur þegar lagt sitt af mörkum. Leigjandinn fær tvöfalt verðbólguhögg Á leigumarkaði blasir þessi staða enn skýrar við. Leigjendur kannast almennt ekki við þann kaupmáttarauka sem meðaltölin sýna. Húsaleigan tekur stóran hluta ráðstöfunartekna margra leigjenda og skilur því lítið eftir til annarra nauðsynja. Þar bætist verðtrygging leigusamninga ofan á. Verðbólgan hækkar fyrst mat, þjónustu, rafmagn og aðrar nauðsynjar. Síðan getur hún, í krafti vísitölutengingarinnar, hækkað húsaleiguna líka. Þannig fær leigjandinn verðbólguna fyrst í matarkörfuna og síðan aftur inn um útidyrnar í formi hærri leigu. Þarna er augljóst misvægi. Verðtryggð húsaleiga getur hækkað sjálfkrafa með verðbólgunni á meðan launin fylgja þeim hækkunum ekki með sama hætti. Þannig hverfur stór hluti kjarabótarinnar í hærri húsaleigu í stað þess að bæta lífskjörin. Þetta bitnar sérstaklega á láglaunafólki, einstæðum foreldrum, ungu fólki og innflytjendum. Gögn HMS sýna til dæmis að aðfluttir leigjendur á höfuðborgarsvæðinu greiða að jafnaði 5% hærri heildarleigu en innfæddir þegar leigt er af einstaklingum, þótt íbúðir þeirra séu um 9% minni. Húsnæðiskerfið hefur brugðist Húsnæðiskerfið hefur brugðist þessu fólki. Kerfi sem tryggði verkafólki og tekjulágum heimilum húsnæði var lagt niður og í auknum mæli treyst á markaðinn til að leysa húsnæðisþörf almennings. Það var pólitísk ákvörðun. Niðurstaðan liggur fyrir: of fáar íbúðir á viðráðanlegu verði og allt of margir fastir á dýrum leigumarkaði. Almenna íbúðakerfið hefur sannað gildi sitt en er einfaldlega of lítið. Það þarf að auka stofnframlög, tryggja lóðir og byggja meira af óhagnaðardrifnu húsnæði. Í siðuðu samfélagi getur húsnæðisöryggi aldrei verið forréttindi. Erfið sjálfsánægja Við höfum vissulega náð góðum árangri og margir Íslendingar búa við góð lífskjör. En það breytir engu um að of stór hópur fólks á erfitt með að ná endum saman. Þess vegna á ég erfitt með þá sjálfsánægju sem stundum einkennir umræðuna um lífskjör á Íslandi. Verkalýðshreyfingin hlýtur að horfa til þeirra sem minnst svigrúm hafa þegar harðnar á dalnum. Það fólk þarf ekki fyrirlestur um meðaltal kaupmáttar. Það þarf að geta lifað af laununum sínum. Það er mælikvarðinn sem skiptir máli. Meðaltalið borgar ekki húsaleiguna. Höfundur er forseti Alþýðusambands Íslands (ASÍ). Viltu birta grein á Vísi? Kynntu þér reglur ritstjórnar um skoðanagreinar. Senda grein Finnbjörn A. Hermannsson Mest lesið Til hamingju, Runólfur! Ragnar Freyr Ingvarsson Skoðun Hægrisveiflan hættulega Samúel Guðmundsson Skoðun Burt með bölvað ofstækið Hjörtur Magni Jóhannsson Skoðun Tjáningarfrelsið við Bústaðaveg Þorvaldur Víðisson Skoðun Hagræðing Hildar á sannleikanum Kári Sigurðsson,Sonja Ýr Þorbergsdóttir Skoðun Á ykkar vakt! Hjálmtýr Heiðdal Skoðun Við skorum á ríkisstjórnina að standa við fyrirheitin og tryggja framtíð Skipholts 37 Hópur listafólks Skoðun Um fóbíu og hatur á Íslam Sverrir Agnarsson Skoðun Skógrækt er þjóðaröryggismál Auður Elva Kjartansdóttir Skoðun Heilsugæslan miðaldra Hildur Svavarsdóttir Skoðun Skoðun Skoðun Tilkoma gervigreindar – kötturinn í Undralandi? Ólafur Aron Sveinsson skrifar Skoðun Veistu hvaða netvíti á að varast? Vilhjálmur Alvar Þórarinsson skrifar Skoðun Borgarnesréttlætið – saga úr umferðinni Guðmundur H Guðjónsson skrifar Skoðun Viðskiptaráð og Láki jarðálfur Andri Snær Magnason skrifar Skoðun Fertugt félag sem ætlar ekki að setjast í helgan stein Guðrún Barbara Tryggvadóttir skrifar Skoðun Ráðherra innviða tók af skarið: Reglugerð um vanhæfismörk við stjórn ökutækis loks gefin út Vilhjálmur Hjálmarsson skrifar Skoðun Um fóbíu og hatur á Íslam Sverrir Agnarsson skrifar Skoðun Gerast enn kraftaverk á Íslandi? Valerio Gargiulo skrifar Skoðun Viðey – perla í dvala Gunnar Salvarsson skrifar Skoðun Er öryggi barna sökkvandi skip? Alfa Jóhannsdóttir skrifar Skoðun Brjóstaskimun enn mikilvæg? Anna Kristín Höskuldsdóttir,Helga Tryggvadóttir,Inga Reynisdóttir,Ólöf Kristjana Bjarnadóttir,Þórður Tryggvason skrifar Skoðun Það sem allir vilja hafa – en enginn vill sjá S. Hjörtur Guðjónsson skrifar Skoðun Burt með bölvað ofstækið Hjörtur Magni Jóhannsson skrifar Skoðun Tíu ár af skattfrjálsri ráðstöfun Daði Már Kristófersson skrifar Skoðun Farsælt ferðalag fólks og villts fisks Ingvi Örn Þorsteinsson skrifar Skoðun Til hamingju, Runólfur! Ragnar Freyr Ingvarsson skrifar Skoðun Heilsugæslan miðaldra Hildur Svavarsdóttir skrifar Skoðun Afföll í laxeldi Kristján Ingimarsson skrifar Skoðun Peptíð og íþróttir Birgir Sverrisson skrifar Skoðun Stórsókn eða stór orð? Álfhildur Leifsdóttir,Hólmfríður Jennýjar Árnadóttir skrifar Skoðun Skógrækt er þjóðaröryggismál Auður Elva Kjartansdóttir skrifar Skoðun Hægrisveiflan hættulega Samúel Guðmundsson skrifar Skoðun Á ykkar vakt! Hjálmtýr Heiðdal skrifar Skoðun Tímamót fyrir notendur – samningur SÍ og SÁÁ Kristín I. Pálsdóttir skrifar Skoðun Ólafur, gæsin og gulleggin Kjartan Björgvinsson skrifar Skoðun Eftirlit, útvistun og ábyrgð í velferðarþjónustu Þórhallur Guðmundsson skrifar Skoðun Það hefðu allir gott af því að greiða sín eigin laun Geir Kristinsson skrifar Skoðun Tjáningarfrelsið við Bústaðaveg Þorvaldur Víðisson skrifar Skoðun Nokkur orð um röflritun Kristján Logason skrifar Skoðun Alnetið er dautt! Lengi tóri lýðræðið! Geir Sigurður Jónsson skrifar Sjá meira
Við skorum á ríkisstjórnina að standa við fyrirheitin og tryggja framtíð Skipholts 37 Hópur listafólks Skoðun
Skoðun Ráðherra innviða tók af skarið: Reglugerð um vanhæfismörk við stjórn ökutækis loks gefin út Vilhjálmur Hjálmarsson skrifar
Skoðun Brjóstaskimun enn mikilvæg? Anna Kristín Höskuldsdóttir,Helga Tryggvadóttir,Inga Reynisdóttir,Ólöf Kristjana Bjarnadóttir,Þórður Tryggvason skrifar
Við skorum á ríkisstjórnina að standa við fyrirheitin og tryggja framtíð Skipholts 37 Hópur listafólks Skoðun