Formúla 1

Sögu­legur ráspóll heims­meistarans

Aron Guðmundsson skrifar
Lando Norris setti hraðasta tímann í dag og náði sögulegum ráspól. Þeim fyrsta á þessari braut í Formúlu 1
Lando Norris setti hraðasta tímann í dag og náði sögulegum ráspól. Þeim fyrsta á þessari braut í Formúlu 1 Vísir/Getty

Ríkjandi Formúlu 1 heimsmeistarinn Lando Norris, ökuþór McLaren mun ræsa fremstur í kappakstri mótaraðarinnar í Madríd á morgun, þeim fyrsta á þessari braut.

Norris setti hraðasta tímann í tímatökum í dag og skákaði þar með forystusauð stigakeppni ökuþóra, Kimi Antonelli hjá Mercedes.

Max Verstappen hjá Red Bull Racing ræsir í þriðja sæti og á eftir honum í fjórða og fimmta sæti eru Ferrari ökuþórarnir Lewis Hamilton og Charles Leclerc. 

George Russell, liðsfélagi Antonelli hjá Mercedes, þurfti að að sætta sig við sjötta sætið. 

Von er á afar skemmtilegri keppni á morgun á hinni mjög svo erfiðu kappakstursbraut í Madríd. 

Kappaksturinn hefst klukkan eitt og verður sýndur í beinni útsendingu á Sýn Sport Viaplay.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×