Gummi Ben fór á kostum: „Hvað varst þú að gera?!“ Sindri Sverrisson skrifar 11. september 2026 11:01 Gummi Ben átti vart orð yfir ömurlegri sendingu Tomás Chorý. Samsett/Sýn Sport Á rétt rúmum fimm mínútum fór Gummi Ben frá því að vera í himnasælu yfir í að húðskamma 31 árs gamlan Tékka, í Meistaradeildarmessunni á Sýn Sport í gærkvöld.
Gummi var upp á sitt allra besta þegar hann fylgdist, ásamt þeim Alberti Brynjari Ingasyni og Kjartani Henry Finnbogasyni, með dramatískri atburðarás í lok leikja gærkvöldsins. Óhætt er að mæla með myndbandinu hér að neðan. Klippa: Spá Gumma Ben fór í vaskinn Gummi hafði tippað á heimasigur Slavia Prag gegn Lens, í upphafi þáttar, en þeir Albert og Kjartan tippuðu báðir á jafntefli. Gummi var svo líka með það á bingóspjaldinu sínu að Sabah myndi skora gegn Manchester United á Old Trafford. Um tíma virtist allt vera að ganga upp í lífi Gumma, eftir að Danijel Sturm skoraði fyrir Slavia Prag-menn sem voru manni færri gegn Lens. „Ég elska þennan mann!“ kallaði Gummi en var ekki eins sáttur þegar skipt var yfir á Old Trafford þar sem Orphé Mbina átti skalla í slána á marki United. „Hvað er að honum?“ spurði Gummi vonsvikinn og hann varð svo enn leiðari þegar Tomás Chorý, leikmaður Slavia Prag, gaf frá sér boltann svo að Lens skoraði sigurmark gegn Slavia Prag, örfáum mínútum eftir að Slavia hafði verið yfir. „Hvað varst þú að gera?!“ kallaði Gummi á Chorý á meðan að Albert Brynjar fagnaði ákaft, bara til að angra mág sinn. Meistaradeildarmessan er á Sýn Sport öll kvöld þegar leikið er í Meistaradeild Evrópu.
Meistaradeild Evrópu í fótbolta karla Fótbolti Mest lesið Fremsta afreksfólk Íslands fær 600 þúsund í verktakalaun Sport Ítalinn ungi hágrét eftir sögulegan heimsmeistaratitil Formúla 1 Eiður fær enn hlýjar þakkir á Anfield Enski boltinn Sjáðu mark Havertz og „augljósa vítið“ sem ekki var dæmt Enski boltinn Halldór tekinn til starfa með nýja teyminu Íslenski boltinn Eiður fann til með Liverpool Enski boltinn Ísland náði fram hefndum og fagnaði titlinum Sport Tómas riðaði eftir höfuðhögg og endaði á sjúkrahúsi Fótbolti Tryggvi hafði betur gegn Rubio Körfubolti „Viss um að við gerðum alla ákaflega stolta“ Enski boltinn Fleiri fréttir Tíunda markið í húsi hjá Sveindísi Jane í lokaleiknum Eiður fær enn hlýjar þakkir á Anfield Markvörður ársins náði að stöðva Orra Tómas riðaði eftir höfuðhögg og endaði á sjúkrahúsi Halldór tekinn til starfa með nýja teyminu Sjáðu mark Havertz og „augljósa vítið“ sem ekki var dæmt „Viss um að við gerðum alla ákaflega stolta“ Góðar fréttir fyrir landsliðið og Mikael Egill á uppleið Meistararnir á toppnum eftir langþráðan sigur á Anfield Júlíus með ný skilaboð til landsliðsþjálfarans Real heldur sig nálægt Barcelona Eiður fann til með Liverpool Hansen með freistandi tilboð frá Akureyri Eiður með gæsahúð á Anfield Ída Marín og Guðrún skoruðu í stórsigri Marc McAusland tekur við Njarðvík Ekki unnið á Anfield í 14 ár Pálmi Rafn tekur hanskana af hillunni og semur við Njarðvík Hildur skoraði í sigri Fabregas hafði betur gegn Þóri Í hvínandi gír í Noregi Emelía tryggði Köge sigur Segir félagið í skítnum Piers Morgan baunar á Carragher Klefinn þagnaði: „Eiginlega bara mjög óþægilegt“ Sjáðu mörkin og rauðu spjöldin: Skoraði sitjandi og neyðarlegt sjálfsmark Tvær tvennur þegar Börsungar tættu gestina í sig Bilun hjá Suzuki skipti sköpum Moreira stal senunni í slagnum um Mílanó og hélt Alberti á toppnum Sú belgíska lék ljótan leik en Víðir valdi Putellas og Rodri Sjá meira