Boðar til skyndikosninga til að lægja öldurnar í Serbíu Kjartan Kjartansson skrifar 10. september 2026 07:50 Aleksandar Vucic, forseti Serbíu, veifar þjóðfánanum á útifundi flokks hans í júní. AP/Darko Vojinovic Forseti Serbíu rauf þing í gær og boðaði til skyndikosninga 25. október. Hann kennir erlendum öflum um mótmæli ungs fólks gegn spillingu sem hafa verið tíð undanfarin tvö ár.
Ðuro Macut, forsætisráðherra, óskaði eftir því að Aleksandar Vucic, forseti og flokksbróðir hans, ryfi þing og boðaði til kosninga á mánudag. Besta leiðin til þess að draga úr spennu væri að biðja kjósendur um að segja hug sinn. Vucic varð við þeirri bón í gær. Þá viðurkenndi hann að róstursamt hefði verið í Serbíu að undanförnu en rakti stúdentamótmæla gegn spillingu að stórum hluta til „verulegs inngrips erlendra afla“, að því er segir í frétt evrópska blaðsins Politico. Mótmælaalda upphófst í Serbíu í kjölfar þess að sextán manns létust þegar steinsteypt skyggni á járnbrautarstöð hrundi í borginni Novi Sad í nóvember árið 2024. Mótmælendur hafa meðal annars krafist þess að einhver axli ábyrgð á harmleiknum. Þeir hafa ennfremur krafist í kosninga í meira en ár. Vucic forseti hefur setið ýmist sem forseti eða forsætisráðherra Serbíu í tólf ár. Seinna kjörtímabili hans sem forseta á að ljúka á næsta ári og má hann ekki bjóða sig fram aftur. Flokkur hans hefur þegar tilnefnt hann sem forsætisráðherraefni sitt fyrir kosningarnar. Leiðtogar Evrópusambandsins gagnrýndu harðlega þátttöku ýmissa háttsettra ráðamanna í Serbíu í útför Ratko Mladic, dæmds stríðsglæpamanns úr Bosníustríðinu, fyrr í vikunni. Mladic lést í fangelsi í Hollandi þar sem hann var dæmdur fyrir stríðsglæpi og glæpi gegn mannkyninu á sínum tíma. Serbía hefur stöðu umsóknarríkis hjá Evrópusambandinu en umsóknin hefur verið á ís undanfarin ár vegna áhyggna sumra aðildarríkja af stöðu réttarríkisins í landinu og andstöðu þess við að gera Rússa ábyrga fyrir innrás sinni í Úkraínu. Í kosningum sem fóru fram árið 2023 sakaði stjórnarandstaðan Vucic og stjórnarflokk hans um kosningasvik.
Serbía Mest lesið Trump segir svindlað í brasilísku kosningunum Erlent „Við eigum bara að þegja og sætta okkur við þetta“ Innlent Kosningar í Ísrael: Arabaflokkarnir gætu ráðið úrslitum Erlent Lögregla kölluð til vegna drengjanna í Goðafossi Innlent Áhrifavaldar sektaðir fyrir að auglýsa veðmál Erlent Sama jarmið í sauðfé og ferðamönnum Innlent „Jón Gnarr er ein mesta prímadonna Íslandssögunnar“ Innlent Áfall fyrir Donald Trump og Vladimír Pútín Erlent Ekki boðaður á stjórnarfundi: „Þetta hefur aldrei gerst áður í sögu Landsvirkjunar“ Innlent Segir Viðreisn í krísu og útilokar ekki að hætta stuðningi Innlent Fleiri fréttir Trump segir svindlað í brasilísku kosningunum Kosningar í Ísrael: Arabaflokkarnir gætu ráðið úrslitum Biskupar sjá eftir bænastund með Trump Fundu 31 byssu, Hitler-brjóstmynd og danskan fána Áhrifavaldar sektaðir fyrir að auglýsa veðmál Stór hluti Oxford Street orðinn göngugata Sagðir vilja fá Orbán til að stýra Sameinuðu þjóðunum Áfall fyrir Donald Trump og Vladimír Pútín Tókst ekki moða neitt úr miðjunni Fundu auðgað úran í dánarbúi Óvæntur sigur Lula en Bolsonaro vill ógilda úrslitin „Noregur sökkar“ Vučić játar ósigur Stúdentahreyfing freistar að velta þaulsetnum Vučić Leikur á hnífsegg í Brasilíu Machado snýr heim eftir nær árs útlegð Hinn grunaði með geðklofa og fluttur á geðdeild Stefna Anthropic fyrir brot á höfundarrétti Presley Loka Vesturbakkanum á kjördag Ísraela Serbar ganga til skyndikosninga Baráttan um Brasilíu Sleit sambandi við föður sinn í ljósi ásakana Nóg sé komið af Trump Musk segi ósatt um Starlink Lést við að bjarga sonum sínum undan straumnum Arnarhreiður Hitlers sviðin rúst Þúsund handteknir og táragasið hvergi sparað Yfir hundrað handteknir í mótmælunum Geta notað drónana til fulls á ný Hafi fengið bréf um ásakanirnar en deildu því ekki með fleirum Sjá meira