Farage kemur frönskum skoðanabróður í klandur Kjartan Kjartansson skrifar 9. september 2026 11:34 Jordan Bardella (t.v.) og Nigel Farage (t.h.) með uppblásið samkomulag þeirra um svokallað bátafólk sem reynir að komast yfir Ermarsund til Bretlands frá Frakklandi. Vísir/EPA Hart er nú sótt að Jordan Bardella, forseta Þjóðfylkingarinnar í Frakklandi, vegna samkomulags sem hann gerði við Nigel Farage, leiðtoga Umbótaflokksins í Bretlandi nýlega. Samkomulagið er sagt ganga í berhögg við stefnu Þjóðfylkingarinnar.
Farage og Bardella héltu á risavöxnu plaggi með undirskrift byggja á landsþingi Umbótaflokksins í Birmingham í síðustu viku. Samkomulag þeirra gerir ráð fyrir að Frakkland taki alla jafna aftur við förufólki sem reynir að komast þaðan til Bretlands yfir Ermarsund. Stjórnmálamenn af öllu pólitíska litrófinu frá fjarvinstri til fjarhægri hafa gagnrýnt Bardella fyrir gjörninginn. Hann ætlaði að gera Frakka að einhvers konar „undirverktaka“ í innflytjendaeftirliti Breta. Marine Le Pen, leiðtogi Þjóðfylkingarinnar og forsetaframbjóðandi hennar, hefur ekki tjáð sig um útspilið ennþá. Hún hefur til þessa ekki tekið það í mál að taka aftur við útlendingum sem reyna að komast til Bretlands á litlum bátum frá Frakklandi. Viðbót í ensku útgáfunni Líkur hafa verið leiddar að því að Umbótaflokkur Farage hafi á einhvern hátt gabbað Bardella og að frönsk þýðing samkomulagsins hafi verið efnislega ólík ensku útgáfunni. Því hafnar Umbótaflokkurinn. Talsmaður flokksins segir að bæði Bardella og teymi hans hafi staðfest samkomulagið. Breska blaðið The Guardian segir að í samkomulaginu hafi staðið að ef Bardella og Farage yrðu forsætisráðherrar í heimalöndum sínum myndu Bretar stöðva báta með förufólki sem sigla frá Frakklandi og Frakkar taka við því og senda til upprunaríkja þess. Enska útgáfan var þó með viðbót um að Frakklandi „tæki alla jafna við“ fólkinu sem ekki var að finna í frönsku útgáfunni. Forsetakosningar verða haldnar í Frakklandi á næsta ári og verður Bardella forsætisráðherraefni Le Pen. Þingkosningar eru hins vegar ekki á dagskrá í Bretlandi fyrr en árið 2029.
Frakkland Bretland Innflytjendamál Mest lesið Ekki boðaður á stjórnarfundi: „Þetta hefur aldrei gerst áður í sögu Landsvirkjunar“ Innlent „Jón Gnarr er ein mesta prímadonna Íslandssögunnar“ Innlent Nóg sé komið af Trump Erlent Lægðin fyrr á ferðinni Veður Fluttur á bráðamóttöku eftir líkamsárás í Skeifunni Innlent Musk segi ósatt um Starlink Erlent Upplifa endurtekið áfall vegna dómsins Innlent Ekki sjálfsagt að bóka flug með löngum fyrirvara Innlent Skiljanlega skiptar skoðanir á stærstu kerfisbreytingu í áratug Innlent Bóndinn segist stoltur stunda blóðmerahald Innlent Fleiri fréttir Machado snýr heim eftir nær árs útlegð Hinn grunaði með geðklofa og fluttur á geðdeild Stefna Anthropic fyrir brot á höfundarrétti Presley Loka Vesturbakkanum á kjördag Ísraela Serbar ganga til skyndikosninga Baráttan um Brasilíu Sleit sambandi við föður sinn í ljósi ásakana Nóg sé komið af Trump Musk segi ósatt um Starlink Lést við að bjarga sonum sínum undan straumnum Arnarhreiður Hitlers sviðin rúst Þúsund handteknir og táragasið hvergi sparað Yfir hundrað handteknir í mótmælunum Geta notað drónana til fulls á ný Hafi fengið bréf um ásakanirnar en deildu því ekki með fleirum Minkarækt Dana mun heyra sögunni til Kim fór til Kína Neglt fyrir glugga og lestarstöðvum lokað Ekki enn náðst að slökkva í Arnarhreiðri Hitlers Vopnakapphlaup á Kóreuskaga „Rasísk hryðjuverkaárás“ að mati Macron Arnarhreiður Hitlers stendur í ljósum logum Gríðarlegur viðbúnaður í Frakklandi vegna morgundagsins Segist hafa tryggt staðbundið vopnahlé „Loka“ Vesturbakkanum eftir árás á hermenn Einn látinn eftir mögulega hryðjuverkaárás Thomas Markle sakaður um vörslu barnaníðsefnis Enn einu skipinu sökkt á Svartahafi Flugsamgöngur í lamasessi vegna öflugs fellibyls Saka Kanadamenn um afskipti af kosningunum Sjá meira