Fordæma útförina sem „Slátrarinn“ fékk í Serbíu Kjartan Kjartansson skrifar 8. september 2026 14:25 Múgur og margmenni fylgdi stríðsglæpamanninum Ratko Mladic til grafar í Belgrad í Serbíu í gær. Vísir/EPA Æðstu embættismenn Evrópusambandsins fordæmdu í dag útför Ratko Mladic, stríðsglæpamanns úr Bosníustríðinu sem hlaut viðurnefnið „Slátrarinn“. Nokkrir ráðherrar í ríkisstjórn Serbíu tóku þátt í athöfninni og hermenn fylgdu kistu stríðsglæpamannsins.
Mladic var hershöfðingi Bosníuserba í Bosníustríðinu á tíunda áratug síðustu aldar. Hann var síður sakfelldur fyrir stríðsglæpi og glæpi gegn mannkyninu vegna þjóðernishreinsana á bosnískum múslimum í stríðinu. Hann lést 27. ágúst. Útför Mladic var gerð í Belgrad með pompi og prakt í gær. Serbneskir hermenn fylgdu kistu hans og patríarki serbnesku rétttrúnaðarkirkjunnar, sem er náinn bandamaður Aleksandars Vucic forseta, stýrði athöfninni. Þar sagði patríarkinn að nafn Mladic yrði í minningu og bænum serbnesku þjóðarinnar. Serbía hefur stöðu umsóknarríkis hjá Evrópusambandinu en umsókn landsins hefur verið í biðstöðu undanfarin ár. Ástæðan er andstaða átta ESB-ríkja við aðild Serba vegna stöðu réttarríkisins í landinu og þess að stjórnvöld þar neita að taka þátt í refsiaðgerðum gegn Rússlandi. Ursula von der Leyen, forseti framkvæmdastjórnar ESB, fordæmdi útförina í dag og sagði hana stangast á við þau gildi sem lægju til grundvallar leiðar Serbíu inn í sambandið. Sérstaklega lýsti hún áhyggjum af því að háttsettir embættismenn hefðu tekið þátt í útförinni. Það benti til þess að þeir hefðu ekki gert upp dökka kafla í samtímasögu Evrópu. The public glorification afforded to a convicted war criminal in Belgrade is an affront to the memory of the victims, their families, and all those who suffered during the conflicts in the Western Balkans. (1/2)— Kaja Kallas (@kajakallas.bsky.social) September 8, 2026 at 12:33 PM Í svipaðan streng tóku António Costa, forseti leiðtogaráðs ESB, og Kaja Kallas, utanríkismálastjóri ESB. „Opinber upphafning dæmds stríðsglæpamanns í Belgrad svívirðir minningu fórnarlambanna, fjölskyldur þeirra og alla þá sem liðu þjáningur í átökunum á vestanverðum Balkanskaga,“ skrifaði Kallas á samfélagsmiðla í dag. Serbnesk stjórnvöld halda því fram að útförin hafi ekki verið á þeirra vegum. Líki Mladic var þó flogið heim til Serbíu frá Haag í Hollandi í flugvél á vegum serbneska ríkisins, að sögn evrópska blaðsins Politico.
Serbía Hernaður Evrópusambandið Mannréttindi Tengdar fréttir „Slátrarinn í Bosníu“ Ratko Mladic látinn Ratko Mladic, alræmdur fyrrverandi hershöfðingi Bosníuserba, er látinn. Hann hlaut lífstíðardóm fyrir þjóðarmorð og stríðsglæpi sem hann framdi í Bosníustríðinu á tíunda áratug síðustu aldar. 27. ágúst 2026 13:07 Mladic verður aldrei sleppt úr fangelsi Áfrýjunardómstóll Sameinuðu þjóðanna staðfesti í dag ævilangan fangelsisdóm yfir Ratko Mladic fyrir þjóðarmorð og aðra stríðsglæpi í stríðinu í Bosníu á árunum 1992 til 1995. 8. júní 2021 19:21 Mest lesið Segir Viðreisn í krísu og útilokar ekki að hætta stuðningi Innlent „Noregur sökkar“ Erlent „Jón Gnarr er ein mesta prímadonna Íslandssögunnar“ Innlent Stjórnarskráin trompi alltaf bókun 35 Innlent Ekki boðaður á stjórnarfundi: „Þetta hefur aldrei gerst áður í sögu Landsvirkjunar“ Innlent Ekki sjálfsagt að bóka flug með löngum fyrirvara Innlent Lægðin fyrr á ferðinni Veður Vučić játar ósigur Erlent „Ég er bara svolítið sár“ Innlent Lést við að bjarga sonum sínum undan straumnum Erlent Fleiri fréttir „Noregur sökkar“ Vučić játar ósigur Stúdentahreyfing freistar að velta þaulsetnum Vučić Leikur á hnífsegg í Brasilíu Machado snýr heim eftir nær árs útlegð Hinn grunaði með geðklofa og fluttur á geðdeild Stefna Anthropic fyrir brot á höfundarrétti Presley Loka Vesturbakkanum á kjördag Ísraela Serbar ganga til skyndikosninga Baráttan um Brasilíu Sleit sambandi við föður sinn í ljósi ásakana Nóg sé komið af Trump Musk segi ósatt um Starlink Lést við að bjarga sonum sínum undan straumnum Arnarhreiður Hitlers sviðin rúst Þúsund handteknir og táragasið hvergi sparað Yfir hundrað handteknir í mótmælunum Geta notað drónana til fulls á ný Hafi fengið bréf um ásakanirnar en deildu því ekki með fleirum Minkarækt Dana mun heyra sögunni til Kim fór til Kína Neglt fyrir glugga og lestarstöðvum lokað Ekki enn náðst að slökkva í Arnarhreiðri Hitlers Vopnakapphlaup á Kóreuskaga „Rasísk hryðjuverkaárás“ að mati Macron Arnarhreiður Hitlers stendur í ljósum logum Gríðarlegur viðbúnaður í Frakklandi vegna morgundagsins Segist hafa tryggt staðbundið vopnahlé „Loka“ Vesturbakkanum eftir árás á hermenn Einn látinn eftir mögulega hryðjuverkaárás Sjá meira
„Slátrarinn í Bosníu“ Ratko Mladic látinn Ratko Mladic, alræmdur fyrrverandi hershöfðingi Bosníuserba, er látinn. Hann hlaut lífstíðardóm fyrir þjóðarmorð og stríðsglæpi sem hann framdi í Bosníustríðinu á tíunda áratug síðustu aldar. 27. ágúst 2026 13:07
Mladic verður aldrei sleppt úr fangelsi Áfrýjunardómstóll Sameinuðu þjóðanna staðfesti í dag ævilangan fangelsisdóm yfir Ratko Mladic fyrir þjóðarmorð og aðra stríðsglæpi í stríðinu í Bosníu á árunum 1992 til 1995. 8. júní 2021 19:21