Ancelotti dásamar Hákon fyrir stórt kvöld Sindri Sverrisson skrifar 8. september 2026 10:57 Hákon Arnar Haraldsson hefur svo sannarlega heillað Davide Ancelotti. Samsett/Getty Hákon Arnar Haraldsson hefur svo sannarlega heillað nýja þjálfarann sinn hjá Lille og er eflaust ætlað stórt hlutverk í kvöld þegar franska liðið tekur á móti Real Betis í fyrsta leik í Meistaradeild Evrópu.
Eftir að hafa hjálpað pabba sínum, Carlo Ancelotti, með brasilíska landsliðið á HM í sumar hóf Davide Ancelotti að þjálfa sitt nýja lið Lille. Leikurinn í kvöld verður fyrsti leikur Davide í keppninni sem pabbi hans hefur unnið svo oft. Ljóst er að Ancelotti yngri hefur hrifist mjög af framgöngu Hákonar í upphafi tímabils – ekki bara marksins glæsilega gegn PSG og gæða í sendingum og pressu heldur orkunnar miklu sem Skagamaðurinn leggur í alla leiki eins og Íslendingar ættu að vita. „Hann er leikmaður sem ég þarf ekki að ýta á eftir því hann er mjög kappsamur. Hann er með svo rosalega mikla orku. Hann er alltaf alveg útkeyrður í lok leikja. Ég er virkilega ánægður með að hafa hann,“ sagði Davide Ancelotti samkvæmt Eurosport í Frakklandi. Feðgarnir Davide og Carlo Ancelotti hafa starfað saman hjá brasilíska landsliðinu, þar sem Carlo er aðalþjálfari.Getty/Maddie Meyer Hákon skoraði tvö mörk í sex leikjum í Meistaradeildinni á þarsíðustu leiktíð, gegn Sturm Graz og Dortmund, og lét þá til að mynda einnig ljós sitt skína í erfiðum leik gegn Liverpool á Anfield. Hákon skoraði níu mörk og átti sjö stoðsendingar í 46 leikjum á síðustu leiktíð en átti líka kafla um mitt tímabil þar sem hann lék fimmtán leiki í röð án þess að skora, og átti bara tvær stoðsendingar, í bikarkeppninni. „Ég er hérna til að hjálpa honum að bæta sig og styðja við feril sem á eftir að verða stórkostlegur. Ég er nú þegar hæstánægður með stöðuna á honum. Auðvitað reynum við alltaf að gera betur en hann er líka fyrsti maður til að reyna að bæta sig,“ sagði Ancelotti. Lille og Real Betis mætast klukkan 19 á Sýn Sport 3 en á sama tíma mætast Real Madrid og Inter, Dortmund og Villarreal, og Porto og Manchester City. Að vanda er fylgst með öllum leikjum samtímis í Meistaradeildarmessunni á Sýn Sport.
Franski boltinn Mest lesið Heppinn að vera á lífi eftir rosalegan 15 bíla árekstur Sport Vakinn með símtölum um miðja nótt: „Lenti í hakkavélinni“ Íslenski boltinn Man. United-stuðningsmaðurinn með hárið algjörlega búinn á því Enski boltinn „Ég sá fólk gráta úr gleði“ Fótbolti Treyja Gylfa fór á milljón Íslenski boltinn Hver gæti tekið við af Carrick? Enski boltinn Utan vallar: Fólk með ADHD má spila íþróttir Sport Það er ekki hægt að reka allar þessar pissudúkkur Sport Ræddu bann Veigars: „Hræðilegur tími“ en „heppinn með dóminn“ Körfubolti „Guð morning!“ Enski boltinn Fleiri fréttir Uppaldir spiluðu eitt prósent mínútna hjá Val Vakinn með símtölum um miðja nótt: „Lenti í hakkavélinni“ Kveðja Kristin og Kristin „Ég sá fólk gráta úr gleði“ Eiríkur nýr þjálfari Vals Treyja Gylfa fór á milljón Stuðningsmennirnir fögnuðu Carrick en bauluðu á leikmennina Hver gæti tekið við af Carrick? Þurfti að sauma 50 spor eftir hundaárás Sakar leikmenn Manchester United um ófagmennsku utan vallar KR á nú tvo yngstu markaskorara sögunnar Man. United-stuðningsmaðurinn með hárið algjörlega búinn á því „Hann brást hrapallega sem manneskja“ Sjáðu ræðu Óskars fyrir markaveislu KR-liðsins Mbappé með bæði mörkin í sigri á Barcelona „Guð morning!“ Skaut á Liverpool eftir leikinn: „Aðeins eitt lið reyndi að skapa“ Orri skoraði í þriðja leiknum í röð Katla tryggði Fiorentina sigur „Þetta snýst ekki um mig“ Hákon Arnar meiddist Guðlaugur Victor lagði upp mark í stórsigri í Íslendingaslag „Við verðum að líta í eigin barm“ Newcastle vann í London og sanngjarn jafntefli í Hull Siggi Raggi gerði NSÍ Runavík að meisturum Varð markahæstur í deildinni gegn bróður sínum. Mikael Egill var hetja Genoa í sigri Fékk tvö gul spjöld á innan við mínútu Ásdís Karen með tvennu í góðum sigri Liverpool - Brighton 2-0 | Góð byrjun kláraði mávana Sjá meira