Innlent

Bein út­sending: Kynna þingmálaskrá vetursins

Silja Rún Sigurbjörnsdóttir skrifar
Inga, Kristrún og Þorgerður halda blaðamannafundinn í Ráðherrabústaðnum.
Inga, Kristrún og Þorgerður halda blaðamannafundinn í Ráðherrabústaðnum. Vísir/Viktor Freyr

Formenn ríkisstjórnarflokkanna kynna þingmálaskrá fyrir komandi þingvetur á blaðamannafundi. Hægt er að fylgjast með í beinni útsendingu og textalýsingu hér á Vísi.

Kristrún Frostadóttir, formaður Samfylkingarinnar og forsætisráðherra, Þorgerður Katrín Gunnarsdóttir, formaður Viðreisnar og utanríkisráðherra, og Inga Sæland, formaður Flokks fólksins og barna- og menntamálaráðherra, halda blaðamannafundinn í Ráðherrabústaðnum.

Fundurinn hefst klukkan níu og verður Oddur Ævar Gunnarsson, fréttamaður Vísis, á staðnum.

Fjárlagafrumvarp fjármála- og efnahagsráðherra var kynnt í gær þar sem gert er ráð fyrir fimm milljarða afgangi. Ráðherrann sagði að um væri að ræða fyrstu hallalausu fjárlögin frá árinu 2018.


Tengdar fréttir




Fleiri fréttir

Sjá meira


×