Bandaríkjaher gerði árásir á þrjú írönsk skip Áróra L Davíðsdóttir skrifar 5. september 2026 18:10 Ráðgjafar Bandaríkjaforseta vilja sjá til þess að Donald Trump Bandaríkjaforseti haldi átökum á Hormússundi í lágmarki fram að þingkosningum í nóvember. Samsett Bandaríkjaher hefur gert árás á þrjú írönsk olíuskip eftir að Íranir skutu skotflaugum að tveimur bandarískum herskipum, að sögn aðgerðarstjórnar hersins. Árásir milli ríkjanna tveggja hafa færst í aukana síðastliðna viku.
Bandaríkjaher segist hafa gert olíuskip nærri Kharg-eyju og annað nálægt Jask í Ómanflóa „varanlega óvirk“ og „gjöreyðilagt“ það þriðja eftir að áhöfn þess var gert að yfirgefa skipið. Að sögn Bandaríkjahers voru árásirnar svar við tilraunum íranska byltingarvarðarins til að skjóta að tveimur skipum bandaríska sjóhersins. Í færslu aðgerðarstjórnarinnar (CENTCOM) á X er haft eftir aðmírálnum Brad Cooper: „Látum skilaboðin til Íranska byltingarvarðarins vera skýr: Ef þið skjótið á tvö af okkar skipum munum við leggja á ykkur enn meiri efnahagslegan kostnað – með því að taka út þrjú af ykkar skipum. “Let the message to the IRGC be clear: If you shoot at two of our ships, we will impose an even higher economic cost —taking out three of yours. We will not hesitate to defend American forces, and if necessary, destroy Iran’s limited and exposed oil fleet.” — Adm. Brad Cooper,… pic.twitter.com/UGGcSGsUtd— U.S. Central Command (@CENTCOM) September 5, 2026 Við munum ekki hika við að verja bandaríska heri og, ef nauðsyn krefur, eyðileggja takmarkaðan og berskjaldaðan olíuflota Írans.“ Bandaríkjaher hafi komist hjá árásum byltingarvarðarins sem hafi beinst að bandarísku flugmóðurskipi. Engir bandarískir hermenn hafi særst í tilraunum Írana. Pete Hegseth, varnarmálaráðherra Bandaríkjanna, skrifaði í færslu á X: „Þetta er einfalt: ef Íran skýtur á bandarísk skip munum við eyðileggja (og sökkva) olíuskipum þeirra. Það eina sem þeir þurfa að gera er að hætta að skjóta á sjóher Bandaríkjanna“ Hefur áður hótað árásum á Kharg-eyju Íranskir miðlar greindu frá því að Bandaríkjaher hafi gert árás á þrjú olíuskip, þar á meðal eitt nærri Kharg-eyju, líkt og segir í yfirlýsingu aðgerðarstjórnar Bandaríkjahers. Ekkert manntjón hafi orðið á árásinni nærri eyjunni. Áhafnir um borð í olíuskipunum tveimur sem ráðist var á í Ómanflóa hafi verið fluttar í land í björgunarbátum. Bandaríkjaforseti birti gervigreindarmyndband á Truth Social á mánudaginn þar sem hann skrifaði að Kharg-eyja yrði „sprengd í tætlur“. Íranir hafa heitið hörðum viðbrögðum verði ráðist á eyjuna. Kharg-eyja er lítill klettahólmi rúmlega tuttugu kílómetrum undan strönd Írans. Níutíu prósent af olíu Írans fóru um eyjuna fyrir átökin, segir meðal annars í umfjöllun Reuters. Árásir milli ríkjanna tveggja hafa færst í aukana síðastliðna viku eftir um mánaðarlangt hlé. Bandaríkjaher hóf loftárásir á tvo eldflaugaskotpalla á Larak-eyju í Hormússundi á sunnudaginn síðastliðinn. Síðan hafa ríkin skipst á árásum en Trump hefur haldið því fram að átökin muni „ekki vara lengi“. Átök milli Bandaríkjanna og Írans stigmögnuðust enn frekar aðfaranótt miðvikudags þegar stjórnvöld í Teheran gerðu árásir á bandarískar herstöðvar víðs vegar um Mið-Austurlönd í kjölfar þess að bandarísk árás hæfði hús í Íran þar sem brúðkaupsveisla var sögð fara fram, með þeim afleiðingum að fimm létust og tugir særðust. Ráðgjafar Bandaríkjaforseta vilja sjá til þess að forsetinn haldi átökum á Hormússundi í lágmarki fram að þingkosningum í nóvember, í von um að draga ekki enn frekar úr stuðningi við Repúblikana.
Bandaríkin Donald Trump Íran Hernaður Mest lesið Nóg sé komið af Trump Erlent Musk segi ósatt um Starlink Erlent Fluttur á bráðamóttöku eftir líkamsárás í Skeifunni Innlent Ekki sjálfsagt að bóka flug með löngum fyrirvara Innlent Bóndinn segist stoltur stunda blóðmerahald Innlent Skiljanlega skiptar skoðanir á stærstu kerfisbreytingu í áratug Innlent Lést við að bjarga sonum sínum undan straumnum Erlent Sleit sambandi við föður sinn í ljósi ásakana Erlent Arnarhreiður Hitlers sviðin rúst Erlent Hörður Arnarsson og náttúru- og innviðagjald á Sprengisandi Innlent Fleiri fréttir Loka Vesturbakkanum á kjördag Ísraela Serbar ganga til skyndikosninga Baráttan um Brasilíu Sleit sambandi við föður sinn í ljósi ásakana Nóg sé komið af Trump Musk segi ósatt um Starlink Lést við að bjarga sonum sínum undan straumnum Arnarhreiður Hitlers sviðin rúst Þúsund handteknir og táragasið hvergi sparað Yfir hundrað handteknir í mótmælunum Geta notað drónana til fulls á ný Hafi fengið bréf um ásakanirnar en deildu því ekki með fleirum Minkarækt Dana mun heyra sögunni til Kim fór til Kína Neglt fyrir glugga og lestarstöðvum lokað Ekki enn náðst að slökkva í Arnarhreiðri Hitlers Vopnakapphlaup á Kóreuskaga „Rasísk hryðjuverkaárás“ að mati Macron Arnarhreiður Hitlers stendur í ljósum logum Gríðarlegur viðbúnaður í Frakklandi vegna morgundagsins Segist hafa tryggt staðbundið vopnahlé „Loka“ Vesturbakkanum eftir árás á hermenn Einn látinn eftir mögulega hryðjuverkaárás Thomas Markle sakaður um vörslu barnaníðsefnis Enn einu skipinu sökkt á Svartahafi Flugsamgöngur í lamasessi vegna öflugs fellibyls Saka Kanadamenn um afskipti af kosningunum „Niðurstaðan er sú að hann setti þetta aftur á“ Ákærður fyrir að nauðga sautján ára stúlku en neitar sök Lögðu andstæðingunum vafasöm orð í munn með gervigreind Sjá meira