Kjúklingur kostnaður fyrir treyjunúmerið Valur Páll Eiríksson skrifar 4. september 2026 10:02 Miller verður í treyju númer 40 í vetur. Hann borgaði fyrir það með kjúklingi. Sam Hodde/Getty Images Ruðningskappinn Von Miller gerði nýstárlegan samning til að fá uppáhalds treyjunúmer sitt hjá Dallas Cowboys.
Miller hefur verið meðal betri varnarmanna í deildinni á þessari öld en aðeins hefur hallað undan fæti eftir að hann varð fyrir slæmum meiðslum sem leikmaður Buffalo Bills fyrir tveimur árum. Cowboys tók séns á honum í sumar en þá blasti við eitt vandamál. Treyjunúmerið 40, sem Miller hefur borið með bæði Los Angeles Rams og Buffalo Bills, sem og í menntaskóla og háskóla, var upptekið. Hunter Luepke bar númerið og báðir æfðu í treyjum númer 40 í æfingabúðum í sumar. Miller fékk loks númerið alfarið í gær eftir að hafa náð samkomulagi við Luepke. Luepke færði sig yfir í treyju númer 30 þar sem Miller gaf honum hluta af kjúklingabúi sem hann rekur. „Ég verð að hrósa Hunter. Hann hefur lært af bestu samningsviðræðumönnum hér hjá Cowboys. Samningaviðræður stóðu fram á síðustu stundu en þetta tókst. Ég vil ekki segja frá smáatriðum en ég lýsi því glaður yfir að hann er viðskiptafélagi minn í dag. Hann á hluta í Greener Pastures Chicken. Kjúklingi meistaranna,“ segir Miller. Fleiri núverandi og fyrrverandi NFL-leikmenn eiga hluta í fyrirtækinu. Þar á meðal Patrick Mahomes, Drew Brees og Nick Foles. NFL-deildin hefur göngu sína á miðvikudagskvöldið næsta og leikir verða í beinni útsendingu á rásum Sýnar Sport í allan vetur.
NFL Mest lesið Lofsyngur Frey og Alfreð: „Mesta umbreyting síðari tíma“ Fótbolti Kane og Putellas hlutu Gullboltann Fótbolti Hætti við Lakers sökum hroka Kobe Körfubolti Sendi kveðju til Kompany á sjúkrahúsið Fótbolti Ringulreið og fjöldaslagsmál eftir stórleikinn Fótbolti Æðið vindur upp á sig og Gudjohnsen-merking ókeypis Enski boltinn Ólafur Ingi hættur með Blika Íslenski boltinn Sjáðu bombu Mikaels Egils sem neitaði að fagna Fótbolti „Virkaði öfugt við það sem hann vonaðist til“ Íslenski boltinn Man. United-stuðningsmaðurinn með hárið algjörlega búinn á því Enski boltinn Fleiri fréttir Ólafur Ingi hættur með Blika Drottningin í fámennan hóp Ringulreið og fjöldaslagsmál eftir stórleikinn Hætti við Lakers sökum hroka Kobe Sendi kveðju til Kompany á sjúkrahúsið „Virkaði öfugt við það sem hann vonaðist til“ Dagskráin í dag: Bónus-deildin, Extraleikar, Lokasóknin og Arsenal Kane og Putellas hlutu Gullboltann Lofsyngur Frey og Alfreð: „Mesta umbreyting síðari tíma“ Sjáðu bombu Mikaels Egils sem neitaði að fagna Spánn á bestu þjálfarana Barcelona á bæði bestu ungstirnin Viktor nálægt sigurmarki en FCK gefur eftir Æðið vindur upp á sig og Gudjohnsen-merking ókeypis Ringulreið á Ballon d'Or: Birtu fréttir um sigurvegara áður en hátíðin hófst „Ég skil ekki af hverju þetta er ekki ofar“ Harma ákvörðun Hattar Ingibjörg valin sú efnilegasta Spila til að vinna deildina, ekki Barcelona Gullboltinn afhentur í kvöld Sjáðu skelfileg meiðsli Jalen Williams Uppaldir spiluðu eitt prósent mínútna hjá Val Vakinn með símtölum um miðja nótt: „Lenti í hakkavélinni“ Kveðja Kristin og Kristin „Ég sá fólk gráta úr gleði“ Eiríkur nýr þjálfari Vals Treyja Gylfa fór á milljón Stuðningsmennirnir fögnuðu Carrick en bauluðu á leikmennina Það er ekki hægt að reka allar þessar pissudúkkur Utan vallar: Fólk með ADHD má spila íþróttir Sjá meira