Jóhanna, Egill og dr. Tingting til Reykjavík Geothermal Bjarki Sigurðsson skrifar 3. september 2026 14:41 Jóhanna Harpa Árnadóttir, Egill Agnar Októsson og Dr. TingTing Zheng hafa verið ráðin til Reykjavík Geothermal. Reykjavík Geothermal Reykjavík Geothermal, alþjóðlegt jarðvarmaþróunarfyrirtæki, hefur ráðið til sín þrjá nýja starfsmenn. Forstjórinn segist afar ánægður með ráðningarnar.
Jóhanna Harpa Árnadóttir, Egill Agnar Októsson og dr. Tingting Zheng hafa öll verið ráðin til fyrirtækisins. Í tilkynningu segir að ráðningarnar séu hluti af áframhaldandi uppbyggingu félagsins á tímum mikils vaxtar og aukinna umsvifa, bæði á Íslandi og erlendis. „Jóhanna Harpa hefur áður starfað hjá Icelandair, Landsvirkjun og Norðuráli og hefur jafnframt sinnt sjálfstæðri ráðgjöf og stundakennslu við Háskólann í Reykjavík. Hún er verkfræðingur með meistaragráðu frá Danmarks Tekniske Universitet (DTU). Í starfi sínu hjá Reykjavík Geothermal mun Jóhanna Harpa leiða umhverfis-, samfélags- og gæðamál félagsins og styðja við þróun jarðhitaverkefna með áherslu á sjálfbærni, upplýsingagjöf og samskipti við hagaðila,“ segir í tilkynningu. Egill Agnar er ráðinn frá McKinsey & Company í Danmörku þar sem hann starfaði við ráðgjöf. „Egill er með meistaragráðu í iðnaðarverkfræði og aðgerðagreiningu frá University of California, Berkeley og BS-gráðu í iðnaðarverkfræði frá Háskóla Íslands. Í starfi sínu hjá Reykjavík Geothermal mun Egill styðja við viðskiptaþróun, fjárhagsgreiningar og mat á fjárfestingarkostum félagsins. Hann mun jafnframt koma að fjármögnun og þróun verkefna á Íslandi og erlendis,“ segir í tilkynningunni. Tingting hefur sérþekkingu á vatnajarðfræði og forðafræði, með áherslu á greiningu jarðhitakerfa og mat á jarðhitaauðlindum. Áður en hún gekk til liðs við Reykjavík Geothermal starfaði hún sem forðafræðingur hjá Arctic Green Energy í Reykjavík. Þar kom hún að þróun jarðhitaverkefna og alþjóðlegum ráðgjafarverkefnum. Áður starfaði hún um árabil hjá opinberri jarðfræðistofnun í Kína, þar sem hún vann að rannsóknum á jarðhita og grunnvatni, auk umhverfisrannsókna. „Tingting hefur jafnframt tekið virkan þátt í alþjóðlegu samstarfi á sviði jarðhita. Hún hlaut styrk til þátttöku í Jarðhitaskóla GRÓ og hefur meðal annars komið að starfsemi kínversk-íslenska jarðhitaskólans og tekið þátt í starfi alþjóðlegra samtaka á sviði jarðhita. Tingting er með doktorspróf í jarðvísindum frá Háskóla Íslands, meistaragráðu í grunnvatnsfræðum og verkfræði og BS-gráðu í vatnafræði og stjórnun vatnsauðlinda frá China University of Geosciences,“ segir í tilkynningunni. Magnús Dagur Ásbjörnsson forstjóri kveðst spenntur. „Þetta ár hefur verið eitt mest spennandi ár félagsins frá upphafi og við stöndum nú á spennandi tímamótum. Síðastliðin 18 ár höfum við komið að þróun jarðhitaverkefna í um 50 löndum um allan heim. Nú er okkar stærsta verkefni hins vegar hér heima og í sumar setti Alþingi virkjanakostinn Bolaöldu í nýtingarflokk rammaáætlunar eftir átta ára þróunarvinnu. Að auki erum við núna að bora í fyrsta verkefni okkar á Kanaríeyjum og vinnum að fleiri verkefnum erlendis. Við erum í miklum vexti og höldum áfram að byggja fyrirtækið upp til framtíðar,“ er haft eftir honum í tilkynningunni.
Vistaskipti Orkumál Jarðhiti Mest lesið Stefndi á Hollywood en hefur ekki heyrt í þeim enn Atvinnulíf Stjórnarlaun hækkuðu 75 prósent meira en önnur laun Viðskipti innlent Fyrsta konan sem kjörin er formaður Hafnarsambandsins Viðskipti innlent Pólfarinn verður yfir starfsstöðvum á jöklum Viðskipti innlent Frá fjósinu í Hörpu – fjölskyldubú hlýtur viðurkenningu Framúrskarandi fyrirtæki Ella frá Marel til Landsbankans Viðskipti innlent Fréttirnar sem fylgja okkur í vinnuna Atvinnulíf Framleiðendur verða að vera á tánum Viðskipti innlent Forstjóri McDonald's hættir vegna sambands við samstarfsmann Viðskipti erlent Icelandair flutti metfjölda farþega til landsins í júlí Viðskipti innlent Fleiri fréttir Pólfarinn verður yfir starfsstöðvum á jöklum Stjórnarlaun hækkuðu 75 prósent meira en önnur laun Fyrsta konan sem kjörin er formaður Hafnarsambandsins Ella frá Marel til Landsbankans Fráfarandi forstjóri Landsvirkjunar opnar sig um starfslokin Högnuðust vel á fjórðungnum en reiknað með tapi á árinu Landsvirkjun og Elkem semja til 2039 Stýrir vörumerkja- og markaðsmálum hjá Íslandshótelum Norðurlöndin efla samstarf sitt í fjármálaeftirliti Leiguverð lækkar að raunvirði og óvissa á fasteignamarkaði Íslendingar lent í slæmum málum á Ítalíu Veiðigjöldin lækkað en ekki hækkað á þessu ári Skuldar þrotabúi föður síns hundruð milljóna króna til Lilja Dögg ráðin forstjóri Eitt greiðir arð en annað með neikvætt eigið fé Willum í stjórn Litla spítalans Eggert ráðinn til Litla spítalans Taldi sig hafa boðið 5.000 kall í fyrsta farrými en greiddi sexfalt meira Þriggja milljarða hagnaður hjá Emblu Medical Borgar sig að taka lífeyri samhliða 100% vinnu? Afkoman úr þremur milljónum í plús í tuttugu í mínus Allt uppselt og skellt í lás hjá Skims Tekur við stjórn Fyrirtækjamiðstöðvar Íslandsbanka Fella niður 1,4 milljarða sekt Landsvirkjunar Ísraelskt flugfélag boðar beint flug til Íslands Play komið í eignasafn Icelandair Verðbólguþrýstingurinn að gefa eftir Phoenix Seafood og Eðalfang sameinast Apple notendur geta sent SMS á Neyðarlínu í gegnum gervihnött Íhuga að krefja Ölgerðina skýringa Sjá meira