Sport

Ekki sofa á Vals­mönnum

Henry Birgir Gunnarsson skrifar
Ágúst Þór Jóhannsson og lærisveinar hans ætla sér að verja titilinn.
Ágúst Þór Jóhannsson og lærisveinar hans ætla sér að verja titilinn. vísir/diego

Handboltaáhugamenn gleðjast í dag því fyrstu leikirnir í Olís-deild karla fara fram í kvöld.

Valur hefur sína meistaravörn á Selfossi á meðan HK tekur á móti KA. KA er spáð góðu gengi í vetur. Því besta í lengri tíma.

Á morgun þreytir Aron Pálmarsson frumraun sína sem aðalþjálfari FH gegn Stjörnunni. Afturelding tekur á móti nýliðum Víkings á sama tíma. Þór sækir Fram heim á laugardag en lokaleikur umferðarinnar er á sunnudag er ÍBV mætir á Ásvelli og spilar gegn Haukum sem er spáð deildarmeistaratitlinum.

Það gengur illa að leggja nýtt gervigras í Garðabænum þannig að Stjörnuliðin halda áfram að spila í Miðgarði. Einhverjum til armæðu.

Svo skoðum við aðeins bestu kaupin í sögu ensku úrvalsdeildarinnar.

Besta sætið er aðgengilegt á öllum helstu hlaðvarpsveitum.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×