Cecilía Rán tryggði Inter í Meistaradeildina Andri Broddason skrifar 2. september 2026 19:44 Cecilía Rán Rúnarsdóttir var hetja Inter Milan í kvöld þegar hún varði mikilvæga vítaspyrnu. Pier Marco Tacca/Getty Images Inter Milan vann dramatískan sigur í vítaspyrnukeppni á Wolfsburg og náði að tryggja sig í Meistaradeild Evrópu. Cecilia Rán Rúnarsdóttir var hetja Inter en Karólína Lea Vilhjálmsdóttir var einnig í byrjunarliðinu.
Wolfsburg vann fyrri viðureign liðanna 2-0 og því var mikilvægt fyrir Inter að sækja á Wolfsburg ef liðið ætlaði ekki að detta úr leik. Inter spilaði leikinn á heimavelli og virtist það hjálpa liðinu að vera með stuðningsmennina með sér. Inter náði að skora á 39. mínútu og var það bakvörðurinn Elisa Bartoli sem skoraði markið. Inter var því með 1-0 forystu í hálfleik en liðið þurfti að skora annað mark í seinni hálfleik. Það gekk erfiðlega fyrir Inter að koma boltanum inn en það hafðist loks á 85. mínútu þegar framherjinn Elisa Polli náði að klára færið sitt vel. Fleiri urðu mörkin ekki í venjulegum leiktíma en framlengja þurfti leikinn þar sem staðan í viðureigninni var orðin jöfn 2-2. Í seinni hálfleik framlengingarinnar náði Wolfsburg forystunni á nýjan leik í viðureigninni og virtist öll von vera úti fyrir Inter. Leikurinn var þó ekki alveg búinn og á lokamínútu framlengingarinnar jafnaði Inter metin og þurftu úrslitin að ráðast í vítaspyrnukeppni. Skorað var úr fyrstu fjórum vítaspyrnum beggja liða en Cecelia Rán varði fimmtu vítaspyrnu Wolfsburg og gat því Inter tryggt sig í Meistaradeild Evrópu með því að skora úr síðasta vítinu. Inter gerði það og fullkomnaði glæsilegan endurkomusigur á sterku liði Wolfsburg. Fleiri Íslendingar tryggðu sig í Meistaradeildina Lið HB Køge var einnig að spila í undankeppni Meistaradeildar Evrópu þar sem Emelía Óskarsdóttir er leikmaður. Liðið mætti PSV frá Hollandi og vann HB Køge fyrri leikinn 1-0. Leikurinn í dag endaði 1-1 og endaði þá viðureignin samtals 2-1. Því er HB Køge einnig komið í Meistaradeild Evrópu líkt og Inter.
Meistaradeild Evrópu í fótbolta kvenna Íslendingar erlendis Mest lesið Veigar opnar sig um lyfjamálið: „Ég var ekkert að fela neitt“ Körfubolti Kínverjar æfir yfir Maó-gríni Mbappé sem kostar hann milljónir Fótbolti Lofsyngur Frey og Alfreð: „Mesta umbreyting síðari tíma“ Fótbolti Ólafur Ingi hættur með Blika Íslenski boltinn Ringulreið og fjöldaslagsmál eftir stórleikinn Fótbolti Breytingar boðaðar í Garðabæ Íslenski boltinn Hætti við Lakers sökum hroka Kobe Körfubolti Davíð Smári hættur hjá Njarðvík Íslenski boltinn Kane og Putellas hlutu Gullboltann Fótbolti Sendi kveðju til Kompany á sjúkrahúsið Fótbolti Fleiri fréttir Biður kínversku þjóðina afsökunar Breytingar boðaðar í Garðabæ Davíð Smári hættur hjá Njarðvík Rúnar Páll kynnti teymið sitt Framherjarnir þurfi að stíga upp Gæti farið í sex leikja bann Kínverjar æfir yfir Maó-gríni Mbappé sem kostar hann milljónir Ólafur Ingi hættur með Blika Drottningin í fámennan hóp Ringulreið og fjöldaslagsmál eftir stórleikinn Sendi kveðju til Kompany á sjúkrahúsið „Virkaði öfugt við það sem hann vonaðist til“ Kane og Putellas hlutu Gullboltann Lofsyngur Frey og Alfreð: „Mesta umbreyting síðari tíma“ Sjáðu bombu Mikaels Egils sem neitaði að fagna Spánn á bestu þjálfarana Barcelona á bæði bestu ungstirnin Viktor nálægt sigurmarki en FCK gefur eftir Æðið vindur upp á sig og Gudjohnsen-merking ókeypis Ringulreið á Ballon d'Or: Birtu fréttir um sigurvegara áður en hátíðin hófst Harma ákvörðun Hattar Ingibjörg valin sú efnilegasta Spila til að vinna deildina, ekki Barcelona Gullboltinn afhentur í kvöld Uppaldir spiluðu eitt prósent mínútna hjá Val Vakinn með símtölum um miðja nótt: „Lenti í hakkavélinni“ Kveðja Kristin og Kristin „Ég sá fólk gráta úr gleði“ Eiríkur nýr þjálfari Vals Treyja Gylfa fór á milljón Sjá meira