Að þora að spyrja og þola svarið Katrín Þrastardóttir skrifar 9. september 2026 08:18 Þegar einhver í fjölskyldunni glímir við mikla vanlíðan snertir það allt fjölskyldukerfið. Maki liggur vakandi, foreldri fylgist með hverri breytingu, systkini veit ekki hvort það eigi að spyrja eða gefa rými. Óttinn getur orðið mikill og með honum kemur gjarnan sú tilfinning að þurfa að finna réttu orðin eða gera nákvæmlega réttu hlutina. En fjölskyldan þarf ekki að kunna að lækna vanlíðan. Hún þarf fyrst og fremst að geta verið til staðar. Fjölskylda og nánir vinir geta gegnt mikilvægu hlutverki þegar einstaklingur glímir við sjálfsvígshugsanir. Það þýðir þó ekki að fjölskyldan beri ábyrgð á því að koma í veg fyrir sjálfsvíg. Sjálfsvíg eru flókið fyrirbæri og eiga sér aldrei eina einfalda skýringu. Hlutverk fjölskyldunnar er annað: að skapa tengsl, taka vanlíðan alvarlega, hjálpa til við að auka öryggi og styðja við að viðkomandi fái aðstoð. Þorum að opna samtalið Margir óttast að gera illt verra með því að nefna sjálfsvíg. „Hvað ef ég kveiki hugmyndina?“ er skiljanleg hugsun. Þekking okkar í dag bendir hins vegar skýrt til þess að það að spyrja um sjálfsvígshugsanir valdi ekki sjálfsvígshugsunum eða ýti undir þær. Ef við höfum áhyggjur megum við því spyrja. „Mér finnst þú hafa verið svo þung/ur undanfarið og ég hef áhyggjur af þér. Hefur þér liðið svo illa að þú hafir hugsað um að vilja ekki vera til?“ Og stundum þarf að spyrja enn skýrar: „Hefur þú hugsað um að taka eigið líf?“ Við þurfum ekki strax að hughreysta, útskýra eða finna lausn. Við þurfum ekki fullkomið orðalag. Það sem skiptir mestu máli kemur á eftir spurningunni: að þola svarið. Ekki laga, heldur vera til staðar Þegar ástvinur glímir við vanlíðan viljum við strax laga ástandið. Við jafnvel bendum á allt sem viðkomandi hefur að lifa fyrir, finnum lausnir eða sannfærum um að hlutirnir muni batna. En manneskja í mikilli vanlíðan þarf oft fyrst að finna að einhver geti verið með henni í sársaukanum án þess að gera lítið úr honum. Setningar eins og „þú hefur svo margt að vera þakklát/ur fyrir“ eða „hugsaðu um hvað þetta myndi gera fjölskyldunni“ eru yfirleitt ekki hjálplegar. Þær geta aukið skömm og þá tilfinningu að vera byrði. Við getum frekar sagt: „Ég heyri hvað þetta er orðið erfitt.“ „Þú þarft ekki að vera ein/n með þetta.“ „Hvað getum við gert næst, saman?“ Að hlusta á vonleysi er ekki það sama og að samþykkja það. Við getum tekið upplifun manneskjunnar alvarlega án þess að taka undir þá niðurstöðu hennar að engin leið sé út. Tökum breytingum alvarlega Það er mikilvægt að þekkja möguleg viðvörunarmerki, til dæmis þegar einstaklingur talar um dauða eða að vilja ekki lifa, dregur sig óvenju mikið í hlé, sýnir miklar breytingar á líðan, kveður fólk með óvenjulegum hætti eða leitar leiða til að deyja. En hér þarf að stíga varlega til jarðar. Sjálfsvíg eru ekki alltaf fyrirsjáanleg og enginn listi getur sagt fjölskyldu með vissu hver er í hættu. Eftir á að hyggja getur verið freistandi að leita að „merkjunum sem við hefðum átt að sjá“. Slík hugsun getur lagt þunga og ósanngjarna byrði á aðstandendur. Betri regla er einfaldlega þessi: Þegar við höfum áhyggjur, tökum við þær alvarlega. Við spyrjum. Við hlustum. Og við leitum hjálpar þegar hennar er þörf. Öryggi skapast í samvinnu Þegar sjálfsvígshugsanir eru til staðar getur fjölskyldan verið mikilvægur hluti af öryggisnetinu, en hún á ekki að vera eina öryggisnetið. Gagnreyndar leiðbeiningar leggja áherslu á að gera öryggisáætlun með einstaklingnum: þekkja hvað gerist þegar líðanin versnar, hvað hefur hjálpað áður, hverja hægt er að hafa samband við og hvert hægt er að leita eftir faglegri aðstoð. Fjölskyldan getur tekið þátt í þessu, en hún á ekki að standa ein á vaktinni. Fjölskyldan getur hjálpað við að hringja eftir aðstoð, farið með í viðtal, verið til staðar eftir erfiðan dag og hjálpað til við að fylgja áætlun eftir. En maki þarf áfram að fá að vera maki, foreldri foreldri og systkin systkin – ekki meðferðaraðili eða öryggisvörður. Hver heldur utan um þann sem heldur utan um? Í vinnu með fjölskyldum verður mér oft hugsað til þess hversu auðveldlega öll athyglin beinist að þeim sem líður verst. Það er skiljanlegt. En á meðan getur fólk í kring verið orðið örmagna af áhyggjum. Að standa nærri manneskju í sjálfsvígshættu getur haft mikil áhrif á líðan aðstandenda. Óttinn getur verið stöðugur og mörgum finnst þeir aldrei mega slaka alveg á. Þess vegna þarf stuðningurinn að ná til fjölskyldunnar allrar. Aðstandandi má sofa. Hann má fara í vinnuna. Hann má hlæja, hitta vini og eiga stund þar sem hann hugsar um eitthvað allt annað. Og hann má sjálfur þurfa hjálp. Það er ekki merki um minni umhyggju. Það er viðurkenning á því að enginn getur haldið utan um aðra manneskju öllum stundum. Eitt það mikilvægasta sem fjölskylda getur gefið manneskju sem glímir við vanlíðan er ekki fullkomin orð eða fullkomin viðbrögð heldur einfaldlega að vera til staðar. Ég sé að þér líður illa. Ég þori að spyrja. Ég get hlustað. Ég skal standa með þér á meðan við finnum hjálp. Og fjölskyldan þarf að fá sömu skilaboð: Þið þurfið ekki að bera þetta ein. Gulur september er vitundarvakning um sjálfsvíg og sjálfsvígsforvarnir. Hluti þeirra forvarna felst meðal annars í því að skapa samfélag þar sem við megum tala um vanlíðan áður en hún verður óbærileg, og þar sem jafnvel erfiðustu hugsanir mega heyrast án skammar. Höfundur er fjölskyldufræðingur og fagstjóri Auðnast Klíník Í þessari grein er fjallað um sjálfsvíg. Fólki með sjálfsvígshugsanir er bent á upplýsingasíma heilsugæslunnar s.1700, netspjallið heilsuvera.is, Hjálparsíma Rauða krossins s.1717, á netspjallið 1717.is og á Píeta símann s.552-2218. Viltu birta grein á Vísi? Kynntu þér reglur ritstjórnar um skoðanagreinar. Senda grein Mest lesið Örvæntingafullir karlar Ebba Margrét Magnúsdóttir Skoðun Opnum Skálafell Valdimar Breiðfjörð Birgisson Skoðun Endurreisa þarf Kennaraháskólann Jón Bjarnason Skoðun Allir ósáttir við PISA – en hvað er hægt að gera? Fanný Gunnarsdóttir Skoðun Hreyfing skiptir sköpum – fyrir og eftir heilablóðfall Guðbjörg Þóra Andrésdóttir Skoðun Við vissum að þetta myndi gerast Íris E. Gísladóttir Skoðun Stokkið á (barna)vagninn Samúel Karl Ólason Skoðun Loksins úr mínus í plús Daði Már Kristófersson Skoðun Bókun 35, ESA og stjórnarskrá Íslands — hvenær verður EES samningurinn stjórnarskrárlega ólýðræðislegur? Eggert Guðmundsson Skoðun Betri gögn, minni stjórnsýsla? Karl Steinar Óskarsson Skoðun Skoðun Skoðun Að þora að spyrja og þola svarið Katrín Þrastardóttir skrifar Skoðun Ábyrgðin eftir 29. ágúst: Sölumenn efans, fargan ósanninda og ógegnsæir sjóðir Sveinn Atli Gunnarsson skrifar Skoðun Um fitulag og burðarvirki – atlaga að velferð barna og unglinga í Reykjavík Steinunn Gyðu- og Guðjónsdóttir skrifar Skoðun Stokkið á (barna)vagninn Samúel Karl Ólason skrifar Skoðun Opnum Skálafell Valdimar Breiðfjörð Birgisson skrifar Skoðun Allir ósáttir við PISA – en hvað er hægt að gera? Fanný Gunnarsdóttir skrifar Skoðun Örvæntingafullir karlar Ebba Margrét Magnúsdóttir skrifar Skoðun Endurreisa þarf Kennaraháskólann Jón Bjarnason skrifar Skoðun Loksins úr mínus í plús Daði Már Kristófersson skrifar Skoðun Hreyfing skiptir sköpum – fyrir og eftir heilablóðfall Guðbjörg Þóra Andrésdóttir skrifar Skoðun Við vissum að þetta myndi gerast Íris E. Gísladóttir skrifar Skoðun Betri gögn, minni stjórnsýsla? Karl Steinar Óskarsson skrifar Skoðun Eru tómstundir allra? Margrét Júlía Rafnsdóttir skrifar Skoðun Öryggisnet í 90 ár! Unnur Sverrisdóttir skrifar Skoðun Þrautseigja í framlínunni Sigríður Björk Þormar skrifar Skoðun Hjartaendurhæfing er fjárfesting Kristín E. Hólmgeirsdóttir,María Barbara Árnadóttir skrifar Skoðun Hvaða gervigreind og skýjaþjónustur mega opinberir aðilar nota? Karl Thoroddsen skrifar Skoðun Hvenær hættum við að vera þjóð? Jón Pétur Zimsen skrifar Skoðun Hver ertu þegar yfirmaðurinn fer út úr herberginu? Valerio Gargiulo skrifar Skoðun Fjárfestum í heilsu – Alþjóðlegur dagur sjúkraþjálfunar Gunnlaugur Már Briem skrifar Skoðun Varnir frá 2019, ógnir frá 2026 Sigvaldi Einarsson skrifar Skoðun Hvað varð um það að vilja betri heim? Indriði Þröstur Gunnlaugsson skrifar Skoðun Sjálfbærni í heimi glötunar Kristján Logason skrifar Skoðun Ert þú kannski frábær í ofbeldisforvörnum barna? Alfa Dröfn Jóhannsdóttir skrifar Skoðun Bókun 35, ESA og stjórnarskrá Íslands — hvenær verður EES samningurinn stjórnarskrárlega ólýðræðislegur? Eggert Guðmundsson skrifar Skoðun Gleðilegan dag læsis Auður Soffíu Björgvinsdóttir skrifar Skoðun Engin miskunn hjá Reykjavíkurborg Kolbrún Áslaugar Baldursdóttir skrifar Skoðun Brjóstagjöf er svoddan streð… Íris Erlingsdóttir skrifar Skoðun Stækkum kökuna í stað þess að sneiða hana þynnra Rannveig Grétarsdóttir skrifar Skoðun Er þetta ásættanleg frammistaða íslenskrar stjórnsýslu? Þorsteinn Narfason skrifar Sjá meira
Bókun 35, ESA og stjórnarskrá Íslands — hvenær verður EES samningurinn stjórnarskrárlega ólýðræðislegur? Eggert Guðmundsson Skoðun
Skoðun Ábyrgðin eftir 29. ágúst: Sölumenn efans, fargan ósanninda og ógegnsæir sjóðir Sveinn Atli Gunnarsson skrifar
Skoðun Um fitulag og burðarvirki – atlaga að velferð barna og unglinga í Reykjavík Steinunn Gyðu- og Guðjónsdóttir skrifar
Skoðun Bókun 35, ESA og stjórnarskrá Íslands — hvenær verður EES samningurinn stjórnarskrárlega ólýðræðislegur? Eggert Guðmundsson skrifar
Bókun 35, ESA og stjórnarskrá Íslands — hvenær verður EES samningurinn stjórnarskrárlega ólýðræðislegur? Eggert Guðmundsson Skoðun