Eitraður reykjarmökkur veldur vandræðum í Suðaustur-Asíu Smári Jökull Jónsson skrifar 3. september 2026 06:37 Hér sést reykjarmökkurinn í borginni Palembang á Suður-Súmötru þar sem Musi áin rennur í gegn. Vísir/Getty Þykkur og eitraður reykjarmökkur liggur nú yfir stórum hluta Indónesíu og hefur breiðst út til nágrannaríkjanna Malasíu, Singapúr og Filippseyja en gróðureldar hafa geisað þar vikum saman.
Ástandið er einna verst í borginni Banjarbaru í Indónesíu þar sem skólum hefur meðal annars verið lokað vegna mengunarinnar. Kennari í borginni sagði við BBC að reykurinn hefði verið svo þykkur að fólk hefði ekki einu sinni séð sína eigin fætur. Reykurinn hefur borist inn á heimili fólks og samkvæmt upplýsingum frá heilbrigðisráðuneyti Indónesíu hafa rúmlega 50 þúsund tilfelli öndunarfærasýkinga verið skráð í júlí og ágúst sem rakin eru til gróður- og skógarelda. Þúsundir hafa þurft að leggjast inn á sjúkrahús af þeim sökum. Skólar draga úr útiveru nemenda Stór hluti eldanna geisar á Borneó-eyju sem Indónesía deilir með Malasíu og Brúnei. Í Sarawak-héraði, Malasíumegin á eyjunni, hafa loftgæðin mælst heilsuspillandi á nokkrum svæðum. Í Singapúr fylgjast yfirvöld grannt með loftgæðum. Bæði stjórnvöld og verslanir hafa hafið birgðasöfnun á grímum og þá undirbúa skólar áætlanir um að draga úr útiveru nemenda á meðan ástandið varir. Ekki nýtt vandamál Skógar- og gróðureldar í Indónesíu eru ekki nýir af nálinni heldur eiga rætur að rekja áratugi aftur í tímann og tengjast því hvernig landnotkun breyttist. Í tíð Suhartos forseta, frá 1967–1998, var opnað á skógarhögg, plantekrur og umfangsmiklar þróunarframkvæmdir. Í dag tengjast stórir eldar oft útþenslu iðnaðarplantna og annarri hagnýtingu lands. Umhverfissamtök og opinberar rannsóknir hafa ítrekað haldið því fram að sum fyrirtæki noti eld sem ódýra og skilvirka leið til að ryðja stór landsvæði.
Indónesía Náttúruhamfarir Malasía Singapúr Filippseyjar Mest lesið Segir Viðreisn í krísu og útilokar ekki að hætta stuðningi Innlent „Noregur sökkar“ Erlent „Jón Gnarr er ein mesta prímadonna Íslandssögunnar“ Innlent Stjórnarskráin trompi alltaf bókun 35 Innlent Ekki sjálfsagt að bóka flug með löngum fyrirvara Innlent Vilja hækka samræðisaldur Innlent „Ég er bara svolítið sár“ Innlent Telja brýnt að endurskoða fækkun lögregluembætta Innlent Landsbyggðin „brjáluð“ vegna málsins Innlent Sjö þúsund krónur séu ekki nóg Innlent Fleiri fréttir „Noregur sökkar“ Vučić játar ósigur Stúdentahreyfing freistar að velta þaulsetnum Vučić Leikur á hnífsegg í Brasilíu Machado snýr heim eftir nær árs útlegð Hinn grunaði með geðklofa og fluttur á geðdeild Stefna Anthropic fyrir brot á höfundarrétti Presley Loka Vesturbakkanum á kjördag Ísraela Serbar ganga til skyndikosninga Baráttan um Brasilíu Sleit sambandi við föður sinn í ljósi ásakana Nóg sé komið af Trump Musk segi ósatt um Starlink Lést við að bjarga sonum sínum undan straumnum Arnarhreiður Hitlers sviðin rúst Þúsund handteknir og táragasið hvergi sparað Yfir hundrað handteknir í mótmælunum Geta notað drónana til fulls á ný Hafi fengið bréf um ásakanirnar en deildu því ekki með fleirum Minkarækt Dana mun heyra sögunni til Kim fór til Kína Neglt fyrir glugga og lestarstöðvum lokað Ekki enn náðst að slökkva í Arnarhreiðri Hitlers Vopnakapphlaup á Kóreuskaga „Rasísk hryðjuverkaárás“ að mati Macron Arnarhreiður Hitlers stendur í ljósum logum Gríðarlegur viðbúnaður í Frakklandi vegna morgundagsins Segist hafa tryggt staðbundið vopnahlé „Loka“ Vesturbakkanum eftir árás á hermenn Einn látinn eftir mögulega hryðjuverkaárás Sjá meira