Guðni Eiríksson: ,,Við spilum fyrir þetta fólk og munum alltaf gera það” Andri Broddason skrifar 2. september 2026 19:17 Guðni Eiríksson, þjálfari FH er ánægður að FH komst áfram. Pawel/Vísir Guðni Eiríksson, þjálfari FH, viðurkenndi að það hefði tekið á taugarnar að fylgjast með liði sínu tryggja sér sæti í næstu umferð Evrópubikarsins. FH tapaði síðari leiknum gegn Apollon 1–0 en vann einvígið 2–1 samanlagt. „
Mér fannst erfitt að horfa á leikinn. Það var mikil spenna í honum frá upphafi til enda,“ sagði Guðni eftir leik. Apollon skoraði eina mark leiksins strax á 9. mínútu og minnkaði þar með forskot FH í einvíginu niður í eitt mark. „Við fengum mark á okkur snemma og það var alls ekki gott. Eftir það þurftum við að halda í þessa aumu forystu í langan tíma. En gott og blessað, það skiptir engu máli núna. Við héldum þetta út, unnum einvígið og komum klúbbnum áfram í næstu umferð.“ Guðni sagði leikáætlun FH bæði hafa gengið upp og mistekist, eftir því hvernig litið væri á málið. „Já og nei. Hún gekk ekki upp að því leyti að við skoruðum ekki, en hún gekk upp að því leyti að við unnum einvígið og komum FH áfram í næstu umferð.“ „Við höfum dregið mikinn lærdóm af sumrinu og það er sömuleiðis dýrmæt reynsla fyrir okkur að spila leik af þessari stærðargráðu. Við erum yngsta liðið í þessari Evrópukeppni. Þarna voru mjög ungir leikmenn að mæta fullorðnum konum og spennustigið var eðlilega hátt. Átta leikmenn sem spiluðu í dag voru að spila með ÍH í 2. deild fyrir aðeins tveimur árum.“ Næsta verkefni FH er deildarleikur á sunnudaginn og sagði Guðni að nú tæki við endurheimt. Hann viðurkenndi þó að hugurinn leitaði einnig að næsta Evrópuverkefni. „Það er leikur á sunnudaginn og það er næsta verkefni. Nú þurfum við fyrst og fremst að endurheimta. Við erum þó að sjálfsögðu mjög spennt fyrir drættinum og því að sjá hvað tekur við í Evrópu.“ Að lokum þakkaði Guðni stuðningsmönnum FH fyrir að fjölmenna í Kaplakrika og styðja liðið áfram. „Við erum ógeðslega þakklát fyrir stuðninginn sem við fengum hér í dag. Það voru rúmlega 500 FH-hjörtu í stúkunni. Við spilum fyrir þetta fólk og munum alltaf gera það.“
Íslenski boltinn FH Evrópubikar kvenna í fótbolta Mest lesið Verðlauna stuðningsmenn sína fyrir að nota ekki símana Fótbolti Knattspyrnusamband Asíu tekur U-beygju í málum Infantino Fótbolti Bayern gefur út yfirlýsingu vegna veikinda Kompany Fótbolti Enn eitt áfallið fyrir Stjörnuna – Viktor meiddist illa Körfubolti FH-konur töpuðu leiknum og titlinum en fengu bæði stóru verðlaunin Íslenski boltinn Stórleiknum frestað vegna mótmælanna Fótbolti Brautryðjendur heiðraðir í Vesturbænum Körfubolti Vondur dagur varð enn verri fyrir fyrirliða Man. United Enski boltinn Af hverju fékk Veigar Páll eins árs dóm og hvort fellur KA eða Þór? Sport Öll börn eigi að fá að vera hluti af liðinu Sport Fleiri fréttir FH-konur töpuðu leiknum og titlinum en fengu bæði stóru verðlaunin „Þetta er bara ólýsanlegt” „Fólk var alveg að efast en ég vissi alltaf að þetta myndi detta” Gylfi: „Við erum ódýrasta liðið í þessari deild“ Bríet Fjóla: „Sjálfstraustið er komið til baka“ Uppgjörið: Þróttur-Grind/Njarðv. 3-2 | Markaveisla í seinni Uppgjörið: ÍBV - Stjarnan 2-0 | Sannfærandi sigur tryggði ÍBV bronsið Uppgjörið: Breiðablik-FH 6-2 | Ása með fimm mörk í meistarasýningu Blika Matthías í stað Viktors við hlið Sölva „Förum inn í daginn til þess að njóta“ Höttur slítur samstarfi og FHL heyrir sögunni til FH-ingurinn sem er fljótastur í Evrópu: „Góð gen eða eitthvað“ „Á morgun mun ég reima á mig takkaskóna í síðasta sinn“ Líf tilnefnd til tvennra verðlauna Matthías hættur hjá Val Svona missti Aron markið sögulega Akranesvöllur sundurgrafinn og handónýtur Hólmar Örn hættur: „Þakklátur fyrir allt ferðalagið“ ÍA fékk skömm í hattinn en undirbýr byltingu Framlengir í Vesturbænum „Hverjir í fjandanum eru í markanefnd?“ Sjáðu mörkin sex og rauða spjaldið í Dalnum Bætti stoðsendingametið sem faðir hans átti í tuttugu ár Gummi Ben: Matthías aðstoðar Rúnar Pál í Stjörnunni Uppgjör: Fram-ÍA 2-4 | Tvö Skagamörk í uppbótartíma Uppgjörið: Stjarnan-Breiðablik 0-1 | Íslandsmeistarar þriðja árið í röð Titillinn undir: „Farið illa með okkur í sumar“ Kristinn kveður Breiðablik: „Hlutirnir fara ekki alltaf eins og maður sér þá fyrir sér“ Uppgjörið: FH - Þróttur 0-4 | Titilvonir FH-inga í tætlum Sjáðu mörkin: KR tryggði annað sætið og fallbaráttan tók óvænta stefnu Sjá meira